Lögrétta - 01.07.1934, Side 27
149
L ö G R J fe
T T A
150
og' fyrst og fremst listrænna. Vínið er ljett-
ara en nokkurt Spánarvín hjer. Það gerir
menn káta og ærslafulla en ekki drukna.
Kl. 12 fer síðasti sporvagninn inn í bæinn
og um leið er lokað og slökkt og alt dottið
í dúnalogn í Grinzing.
Þess var getið í upphafi þessa máls, að
Vínarborg væri fögur borg, og það dylst
ongum, sem þangað kemur, en vitanlega er
þar sjón sögu ríkari. Maður skyldi nú halda
að svona gömul borg væri óreglulega bygð,
með þröngum, krókóttum og loftillum
strætum. En það er nú eitthvað annað.
Bænum er skift niður í 18—20 regluleg
hverfi og á ekkert þeirra skilið að heita
gamalt nema eitt — miðbærinn eða
i n n b æ r i n n eins og hann er oft nefndur
— bæjarhverfi nr. 1. Hann er miðdepill Vín.
arborgar og gamla Vín. í honum eru
stærstu bankarnir, peningastofnanir og
verslunarhúsin, klaustrin, kirkjumar, 90%
kaþólskar, og listasöfnin, Keisasahöllin og
ýmsar opinberar byggingar, t. d. fyrir póst
og síma og einnig stærstu veitingahúsin,
flestöll með musik. Þar er Kártnerstrasze,
ein aðal verslunargata bæjarins, ogerhverj-
um útlending starsýnt á allan þann list,-
iðnað og listsmekk, sem þar sjest í búðar-
gluggum, og hinn frábæra smekk Vínar-
stúlknanna í klæðaburði, þótt ekki sje hann
ávalt íburðarmikill. — Miðbærinn er einnig
fullur af sögulegum menjum og listaverk-
um og get jeg þ ví miður ekki farið út í
það. Utan um miðbæinn er afar breið gata
eða stræti með trjágöngum, sporbrautum,
akbrautum og gangstígum, sem heitir
Hringbraut — Ringstrasze. Við hana standa
háskólinn, ráðhúsið, þinghúsið, þjóðleik-
húsið (Burgtheater) og söngleikhúsið
(Staatsoper). Aðal listasöfnin — aðal ho-
telin — ráðuneytin og aðrar opinberar
byggingar og bankar, garðar keisarahallar-
innar o. fl. í stuttu máli fult af glæsileg-
ustu stórbyggingum, ekki hverri niður í
annari, heldur þannig, að hver nýtur sín
og hefur sína landhelgi eftir virðingu. f
einni af þessum glæsilegu byggingum sá jeg
íslands-sýningu Theo Hennings sumárið
1930. Út frá hringbraut skiftist bærinn í 8
iiverfi og ganga breiðar aðalgötur hvers
þess hluta beint út frá hringbrautinni eins
og geislar í 8 mismunandi stefnur. •
Utan um þau gengur aftur hringbraut
— der Gúrtel — og gengur rafknúin jám-
braut bæjarins eftir og yfir henni. Þar utan
við koma svo úthverfin og villuhverfin —
einnig 9 talsins. Hvert hverfi er auðkent
nafni og númeri hverfisins og hvert hús
hverfisnúmeri og götunafni, auk venjulegs
götunúmers. — Af þessu ágripi er sýnt,
að auðvelt er að rata um bæinn, og ekki
nóg með það, heldur hefur það haldist frá
gamalli tíð, að númer skiftast nokkuð í
hverfinu eftir stjettum. Iðnaðarmenn í einu,
verslunamienn í öðru, mentamenn í þriðja
o. s. frv. í einu hverfinu, því IX. búa eink-
um háskólakennarar og læknar, þar er einn-
ig aðalspítali bæjarins og lækningastofur
háskólans. Nær þetta yfir aðalhluta hverf-
isins og- er heimsfrægt, þótt sumt sje þar
fornfálegt að byggingu til. Það er að
nokkru leyti bær fyrir sig. Þangað sækja
læknar allra þjóða til framhaldsnáms og
þykir gott þar að vera, því að fjöldinn af
prófessorunum eru heimsfrægir menn í
sinni grein, og svo var einnig í minni sjer-
grein. Mætti um það margt segja, en fellur
utan við þann rammá, sem hjer er mark-
aðúr.
Hvarvetna þar sem farið er um borgina,
eru sögulegar minningar um ýms andans
stórmenni eða þjóðhetjur. T. d. stendur hús
Schuberts með svipuðum ummerkjum og
þegar hann dó þar. Um 30 hús þekkja menn
l>ar, sem Beethoven hafi búið í. Þá eru víða
á fögru umhverfi líkneski þessara og fjöl-
margra fleiri andans manna. Og svipur
þeirra birtist í tignarlegum meistaraverk-
i’m, einkum byggingarlistinni. öll borgin er
talandi vottur um arfgróinn smekk og
mikla menning. í Vínai'borg búa nú um 2
n.ilj. manna, og lifa af verslun, iðnaði og
útlendingum, að ógleymdum skemtana-
skatti. Hún bjargast einna best áfram af
austurríksku fylkjunum og er það mest að
þakka legunni og þeirri aðstöðu til um-
hverfisins, sem legan gefur. Hún er miðstöð
milli Balkan og Miðevrópu og hefur svip-
aða aðstöðu gagnvart Balkan eins og Kaup-
mannahöfn hafði gagnvart Islandi fyrir 30