Lögrétta - 01.07.1934, Page 43
181
LÖGRJETTA
182
BÓKMENT ABÁLKUR___________________
-------- LÖGRJETTU
^Jslenskar bækur
Dr. Stefán Einarsson í Baltimore hefur
lengi viðað að sjer efni í æfisögu Eiríks
Magnússonar og er hún nú komin út, all-
mikið rit og myndarlegt. Er þar lýst ætt
og uppruna Eiríks og rakinn nákvæmlega
starfsferill hans hjer og erlendis, ritstörf
iians og afskipti af opinberum málum. En
hann ljet margt til sín taka og var merkur
maður á ýmsa grein, fjölhæfur og fjölfróð-
ur. Dr. Stefán hefur haldið af lærdómi og
smekkvísi á miklu efni og gert úr sögunni
fróðlega og læsilega bók, sem er ekki ein-
ungis góð og sanngjörn mannlýsing Eiríks,
en varpar einnig að ýmsu leyti fróðlegu ljósi
á sumt, sem merkilegt var í sögu samtíma
hans.
Af fornritaútgáfunni eru komin tvö bindi,
Egla og nú síðast Laxdæla í útgáfu dr.
Einars Ól. Sveinssonar. Hann hefur skrifað
fróðlegan formála og skýringar neðanmáls
eins og þær, sem fylgdu Eglu. Þessum út-
gáfum hefur miðað fremur seint áfram, og
miklu röskar gengu hinar myndarlegu
dönsku þýðingarútgáfur, sem eru merkilegt
verk, þótt sitt hvað megi að þeim finna eins
og gengur, t. d. því, sem sumstaðar hefur
verið felt úr. En hvorug þessi útgáfa nær
líklega þeim tilgangi, að verða almennings-
eign á þann hátt sem útgáfur Sigurðar
Kristjánssonar urðu hjer og eru að vissu
leyti enn. Þó eru nýju útgáfurnar vandað-
ar og fallegar og formálar þeirra og skýr-
ingar til góðs fróðleiks, þótt ýmislegt í þeim
orki tvímælis eins og eðlilegt er og títt í
þessum fræðum.
Axel Thorsteinsson hefur nýlega gefið út
tvær sögubækur, aðra nýja, Dokað við í
Hraunahreppi og Hannibal og Dúna. Hann
hefur orðið vinsæll höfundur hjá almenn-
ingi. Hann segir vel frá og lipurt, en hisp-
urslaust og athugar margt skemtilega og
glögt. Hann hefur að einu leyti sjerstöðu
meðal íslenskra höfunda. Hann mun vera sá
eini, sem talist getur stríðstímaskáld, að því
leyti, að hann var sjálfur hermaður og hef-
v j
ur það orðið honum yrkisefni í sjerkenni-
legar sögur og nokkuð einstæðar í bók-
mentunum hjer.
Á seinustu árum hefur bætst við íslenskan
bókaforða allmikið af nýjum kenslubókum
og er það á margan hátt breyting til bóta,
þótt ýmsar þær bækur sjeu að vísu nokkuð
dýrar, og jafnvel dýrari en aðrar bækur. t
haust hafa bætst við tvær nýjar bækur,
aðallega fyrir verslunarskóla. Bókfærsla,
kennslubók og handbók eftir Þorstein
Bjamason, fyrsta þessháttar bók á íslensku.
Það er fróðlegt og skilmerkilegt yfirlit og
kemur víða við, vel samið og læsilegt með
mörgum skýrum dæmum. Ensk verslunar-
brjef eftir Eirík Benedikz og Þórarinn Bene-
dikz er einnig fyrsta þessháttar bók á ís-
lensku, vandvirknislega samin, handhæg og
lipur. Báðar bækurnar ættu að geta orðið
að góðum notum, einnig fýrir kaupsýslu-
menn utan skóla.
Ljóðmæli Gríms Thomsen eru nýkomin út
í heild á kostnað Snæbjamar Jónssonar bók-
sala. Þau eru í 2 bindum og útgáfan mjög
smekkleg og vönduð. Framan við fyrra
bindið er æfisaga Gr. Th., eftir Jón Þorkels-
son skjalavörð, prentuð upp úr Andvara, en
framan við síðara bindið ritgerð um Gr.
Th., eftir Sigurð Nordal prófessor, prentuð'
upp úr Eimreiðinni. Þrjár myndir fylgja,
tvær af höfundinum og ein af Bessastöðum
á hans dögum. Útgefandinn helgar þessa
fyrstu heildarútgáfu af ljóðum Gr. Th.
minni fegðanna Björns Jónssonar og ólafs
Bjömssonar ritstjóra. — Þessi útgáfa er
l'arft verk og gott.
Hjálmarskviða (Hjálmar og Ingibjörg),
eftir Sigurð Bjarnason, er einnig nýkomin
út í 4. útgáfu á kostnað Snæbjarnar Jóns-
sonar. Það er falleg og vönduð útgáfa og
fylgir henni fróðleg ritgerð um höfundinn,
eftir Snæbjörn Jónsson.
títlendar beekur
Margt og merkilegt hefur komið í ljós við
foi'nminja- og mannfræðarannsóknir síðustu
ára, sem varpað hefur nýju ljósi yfir frum-
sögu mannsins. Saga lians er nú rakin óra-
langt aftur í forneskjuna, miklu lengra eu