Lögrétta - 01.07.1934, Blaðsíða 44
183
LÖGRJETTA
menn dreymdi nokkru sinni um áður. Einn
af helstu fræðimönnum á þessu sviði L. S.
B. Leakey hefur skrifað bók um það, sem
nýjast hefur komið í ljós um þessi mál, og
kallar bókina Forfeður Adams (Adam’s
Ancestors, Methuen). Hann lýsir þar elstu
menningum, segir frá öpum og mönnum og
frændum mannsins á steinöld, og ræðir að
lckum framtíðarmöguleika mannsins. Leakey
hefur sjálfur gert merkilegar uppgötvanir
á þessu sviði (Homo kanamensis) og er því
rr.anna færastur til þess að lýsa þessu, enda
hefur hann gert það af miklum lærdómi,
en þó mjög lipurt og læsilega.
Lögrjetta hefur áður sagt frá ýmsum
bókum um Austurlandamálin. Þau eru ein-
hver merkustu úrlausnarefni nútímans.
Prófessor Martin, alkunnur útlandaritstjóri
Journal de Genéve, nýlega dáinn, skrifaði
bók um Kínamálin, en til Kína fór hann í
fyrra. Bókin heitir: Skiljið Kínverja
(Understand the Chinese) og segir skemti-
lega frá mörgu einkennilegu, sem fyrir
augun bar þar eystra, frá landi og lýð og
lifnaðarháttum og frá mönnum og málefn-
um. Hann spáir því, að Kína múni sennilega
eiga eftir að verða einhver mesta fram-
kvæmda og menningarmiðstöð heimsins. —
Victor Dane hefur skrifað einkennilega bók
frá Indlandi (Naked Ascetic), þar sem hann
segir frá ýmislegri viðkynningTi sinni við
töframenn og trúmenn Indlands og er ófag-
nrt sumt. Þyldr honum sem menn hafi á
Vesturlöndum ýmsar skakkar hugmyndir
um dulspeki og vitsku Austurlanda, því að
margt af því, sem svo sje nefnt, sje að
rniklu leyti yfirborðsháttur, öfuguggaskapur
eða ósiðlæti.
Andersen-Nexö hefur skrifað allstóra bók
um Rússland og ferðalög sín þar (To Ver-
dener) og lætur vel af. Ensk bók (Russia
To-Day eftir Sherwood Eddy) er líka ný-
komin um þessi efni og segir kost og löst
á tilraununum í Rússlandi og ber þær sam-
an við vestrænt ástand. Gyðingamálin eru
sífelt ofarlega á baugi og má því benda á,
að ekki fyrir löngu kom út á dönsku bók
Jerome og Jean Tharaud um sögu þeirra,
eðli og hlutverk (Jödemes Historie i Om-
rids).
184
Einn af helstu og sjerkennilegustu sálar-
fræðingum nútímans er C. G. Jung, upphaf-
lega lærisveinn Freuds, en síðan gagnrýn-
andi hans að mörgu leyti. Eftir hann (og
nokkura lærisveina hans) er nýkomið safn
af ritgerðum, sem heitir Veruleiki sálarinn-
ar (Wirklichkeit der Seele), og gerir Jung
þar m. a. grein fyrir afstöðu sinni til
Freuds.
Eugene O’Neill má sjálfsagt teljast helsta
ieikritaskáld Ameríkumanna nú, og er leik-
inn víða um lönd. Nýjasta bók hans eru tvö
leikrit, sem heita: Ah. Wilderness og Days
Vöithout End. Aðalpersóna síðara leiksins er
John Loving og lýsir leikritið klofningi sál-
arlífs hans og leit hans að trú og festu í
lífinu, og endar á því, að hann beygir sig
fyrir krossinum. Hitt leikritið er lýsing á
arnerísku smábæjalífi og er ástaleikur.
John Dewey, einn af helstu heimspekijig-
um Ameríkumanna, hefur gefið út merki-
lega bók um listir (Art as Experience).
Hann gerir þar grein fvrir þeirri reynslu
í daglegu lífi, sem liggur að baki listinni
og listaverkunum'. Hann hefur einnig rýlega
skrifað bók um trúmál (A Common Faith).
Gott yfirlit um nýtísku list er Modern Art
eftir Thomas Craven.
Cambridge-mennirnir svonefndu, sem hjer
ferðuðúst 1932 og fóru vfir Vatnajökul, eru
hjer ýmsum kunnir. Einn þeirra, J. Angus
Beckett hefur skrifað um ferðina bók (Ice-
land Adventure) og segir þar lipurt frá
ýmsu því, sem fyrir augun bar dags dag-
lega, og frá jökulförinni, en ekki virðast
vera í bókinni neinar sjerstakar eða merki-
legar nýjungar.
Margaret Schlauch hefur skrifað fróðlega
og merkilega bók um íslenzku lygisögufnar
eða æfintýrasögurnar (Romance in Iceland).
En það efni hefur hingað til verið of lítið
rannsakað. Hún lýsir sögunum sjálfum skil-
merkilega og skemtilega, rekur skyldleika
þeirra og afstöðu til erlendra samskonar
bókmenta. Dómai- hennar og lýsingar bera
vott um víðtækan lærdóm og smekkvísi.
Rannsóknirnar eru góð viðbót við íslenska
bókmentasögu, og almenna samanburðar-
bókmentasögu,