19. júní - 01.05.1919, Blaðsíða 14
látin í, og bandið síðan soðið í leginum
3U klt.
Nr. 4. Gnlrnutt með hvítmððru o? jnfna.
250 gr. band, 500 gr. jafni, 250 gr. möðrurót.
Þurkaður jafni er brytjaður smátt, og lagð-
ur i litunarpottinn til skiftis við bandið. Vatni
er helt yíir og hitað í suðu. Þessu er svo
haldið volgu í 2 sólarhringa, t.'d. í heykassa, og
suðu hleypt upp á því tvisvar á dag. Bandið
er þá tekið upp úr og þurkað óþvegið.
Þurkuð möðrurót er söxuð og látin iiggja
í vatni tvo sólarhringa. Þegar vatnið er orð-
ið volgt er bandið látið í löginn og soðið
ásamt rótinni 1 klt. Það er ekki tekið upp
úr og þvegið fyr en lögurinn er orðinn kald-
ur. í staðinn fyrir jafna má hafa álún eins
og í nr. 1.
>ír. 5. Ljósrauðbrúnt með fjnllagrösum.
500 gr. band, 750 gr. fjallagrös.
Litað eins og nr. 31.
Hreint kúahland er látið standa á hlýjum
stað i 4 sólarhringa, þá er bandið látið í það,
og látið liggja í því í 3 sólarhringa.
Nr. (!. Dökkrnnðbrúnt með fjnlIngTÖsuin.
500 gr. band, 1 — V/2 kg. grös, 100 gr. salt.
Litað eins og nr. 32 og nr. 5.
14