19. júní - 01.05.1919, Blaðsíða 9
sterkgul. Blómskúfarnir eru brúkaðir bæði
nýir og þurkaðir.
6. Haugarfi. (Stellaria media). Jurt með
sívölum stönglum gagnstæðum blöðum og
hvitum blómum. Vex sem illgresi í görðum.
Nothæfur alt sumarið nýr.
7. Hreindýramosi. (Cladonia shangiferina).
Gráhvítur, kvistóttur. Safnist helst á haustin
eftir fyrstu frost.
8. Hvitmaðra. (Galium boreale). Stöngull-
inn íingerður, venjulegast marggreindur, meir
eða minna jarðlægur. Vex í lyngmóum og ó-
ræktar valllendi. Safnist áður enn hún blómstr-
ar. Getur geymst lengi þurkuð.
9. Jajni (Lycopodium alpinum). Jarð-
læg, sígræn jurt, með smáum lensulagablöð-
nm. Greinarnar eru mjóar, hjer um bil jafn
háar, standa í þéttum skúfum. Vex í grýtt-
um jarðvegi innanum lyng og hrís.
10. Litunarmosi. (Parmelia saxatilis). Grá-
leitur og brúnleilur, íinnst í þykkum lögum
á steinum. Safnist helst seinnipart sumars.
11. Maríustakkur. (Alchemilla vulgaris).
Lítil jurt með fingerðum blöðum og smáum,
ljósgrænum blómum. Vex í blómlendi og
röku vallendi. Öll jurtin notuð meðan hún
er ný.
12. Rabarbar. (Rheum rhapouticum). Stór-
9