Óðinn - 01.03.1907, Qupperneq 4
92
ÓÐINN.
Völundur.
Vorið 1902 tóku 7 trjesmiðir hjer í bænum
sig saman um að stofna lilutaljelag til þess að
koma hjer upp trjesmíðaverksmiðju, og sóttu til
aukaþingsins þá um sumarið um kaup á Klapp-
arlóð syo nefndri hjer i bænum til þess að reisa
þar verksmiðjuna. Þingmaður Reykvíkinga flutti
kaupbeiðnina. Uppástungumaður að þessu var
Guðmundur Jakobsson trjesmiður, en forgangs-
mennirnir sjö vorn þessir : Einar Pálsson, Guðm.
Jakobsson, Helgi Thordersen, Hjörtur Hjartarson
Jón Sveinsson, Sigvaldi Bjarnason og Sveinn Sveins-
son. Jafnframt
sóttu þeir fje-
lagar tilþings-
ins um styrk
til þess að
koma verk-
smiðjunni
upp, ogfengu
heimild til 15
þús. kr. láns
úr landsjóði
með venjuleg-
um kjörum.
En bæjar-
stjórnin sótti
um forkaups-
rjett á lóðinni
fyrir bæjar-
ins hönd, og
íjekk hún
hann, cn
þingið setti þau skilyrði, að bærinn seldi aftnr
fjelaginu lóðina með sama verði og hann fengi
liana. Lóðin skyldi seld eftir mati dómkvaddra
manna. Hún er um 13000 ferálnir á stærð, og
var hver feralin virt á 65 au. Að þessum kaup-
um vildi bæjarstjórnin ekki ganga, þegar til kom,
og dróst svo alt á langinn, svo að fjelagar mistu
af landsjóðsláninu.
Fimtudaginn 25. febrúar 1904 er trjesmiðafje-
lagið Völundur stofnað og gengu í það um 40
trjesmiðir. I5á eru lög ljelagsins samþykt og stjórn
kosin. Fjelagið er hlutafjelag, og segir í lögum
þess, að hlutverk fjelagsins sje að vinna að timb-
ursmíði í verksmiðju, sem sett verði á stofn í
Reykjavík, og reka timburverslun. Upphaflegt
stofnfje fjelagsins var 12000 kr., er skiftist i 40
hluti, og var hver lilutur 300 kr. Þó var ákveð-
ið, að auka mætti stofnfjeð upp í alt að 20 þús.
kr. En á fundi 15. febr. 1905 var samþvkt, að í
stað 20 þús. kæmi 100 þús. kr. og á fundi 30.
okt. síðastl. var samþykt, að auka veltufje fjelags-
ins upp í alt að 200 þús. kr. Þá var og sam-
þykt útgáfa 100 kr. hlutabrjefa. Arðinum skal
skift þannig : 5°/o af arðinum fær stjórn fjelagsins
í ómakslaun, í varasjóð skal leggja minst 2% af
uppliæð hlutafjárins, en aðalfundur ákveður, hve
miklu fje skuli útbýta hluthöfum af afganginum ;
hitt, sem þá verður eftir, legst í varasjóð, eða yfir-
færist til næsta árs. Enginn fjelagsmanna má
gerast timb-
ursali fyrir
eigin reikn-
ing.
í stjórn fje-
lagsins voru
kosnir: Hjört-
ur Hjartar-
son, Magnús
Blöndahl og
Sigvaldi
Bjarnason, en
varamenn :
Guðm. Jak-
obsson og
Sveinn Jóns-
son.
Magnús
Blöndahl
hafði áður
rekið timbur-
verslun í fjelagi við 6 menn aðra hjer í bænum,
og áttu þeir lóð og lnis við Vonarstræti. Þá eign
keypti Völundur 1. apríl 1904 og rekur frá þeim
tíma timburverslun. En 4 af fyrri eigendum þeirrar
verslunar (Blöndahl & Co.) gengu inn í Völund-
arfjelagið.
Vorið 1904 kaupir bæjarstjórnin Klapparlóð-
ina og býður hana aftur Völundi lil kaups í maí
það ár. Mun strax hafa verið afráðið að fjelagið
keypti lóðina, þótt ekki væri útgert um kaupin
fyr en næsta vor. Því strax um vorið 1904 fær
Völundur leyfi bæjarstjórnar til að byggja tirnb-
urgeymsluhús á lóðinni og byrja á grunni undir
fyrirhugaða verksmiðj u.
Veturinn eftir fór Magnús Blöndalil utan lil