Óðinn - 01.10.1928, Side 13

Óðinn - 01.10.1928, Side 13
Ó Ð I N N 83 ► t hans nutu. 1 skóla mátti hann heita jafnvígur á allar námsgreinir, en sjerstaklega var hann stálsleginn í latínu, þýsku og sögu. Hann myndi óefað hafa orðið afburða tungu- málamaður, ef honum hetði orðið lengra lífs auðið. Hugurinn flaug víða, en einkum var honum hugleikið að tala um skáldskap, enda mátti hann heita talandi skáld sjálfur. Jeg á nokkur kvæði eftir Jóhann sál. og hirt- ast hjer brot úr 2 gamankvæðum og 1 þýðing. Eitt Ijóðabrjef á jeg fiá honum, dags. á Stóra- Núpi u/8 1891. Pað sumar dvaldi jeg við versl- unarstörf i Þorlákshöfn. Þar segir hann meðal annars: » . . . Allmargt þó saman masa mætti munnlega, reykjandi að fornum hsetti. í Porlákshöfn nú þú situr í sælu við sumbl — og toddý og vindlasvælu. Nú eturðu brauð — nú bergirðu vín, betur að nokkuð hyrfi til mín! . . . En látækur jeg upp í fjollum bý og föng hef jeg sjaldan af »bónum« ný. . . . Latur jeg er, eins og á þú giskar, og ekki er minn sláttur á marga fiska. Þó er jeg reyndar alloft að, iðinn, sem foiðum! Var ekki það? En stundum mig fýsir að fá mjer næði og fara að reyna að yrkja kvæði. Pá fer jeg að ganga og filósófera og fer svo von bráðar að póetísera. Og ágætt er títt það, sem upp úr mjer dettur, og á því ei lýti, hrukka nje blettur. . . . Hvort sem þú kemst í Kaupmannahöfn eða kúrir alt af í Porlákshöfn; livort sem þú, vinur, fer um Klóann, flækist um Ölfus, Holt eða Skeið, eða hvar helst þín liggur ieið. Vertu æ sæll þinn vinur Jóhann«. Þetta er að eins lítið brot úr Ijóðabrjefinu. — Jóhann sál. kunni feiknin öll af kvæðum og framsagði þau inæta vel. Jeg hef oft látið hugann hvaríla til fornra samverustunda okkar og saknað þess, hve ung- ur þú hlautst að falla í valinn — en hvað um þetta: »Omnibus moriendum est«. Helgi Jónsson. Ur „Mánudagsmorgnarnir“. Á mánudagsmorgna úr roti’ er vjer röknura ráðlausir þl »á gati« oft vöknum. Vjer skreiðumst úr bólinu og bröltum svo að borðinu syfjaðir oss til að þvo. Og niður og út svo úr loftinu tötrum og leiðir og geyspandi kaftið sötrum. Og eftir hressingu endaða þá — allir vjer guðsorðið hlýðum á. Og svo byrjar hörmungatíðin með tímum, svo tröllauknir þá vjer við bækurnar glímum. Og undan vjer lesum og ásmegin vex og oftast nær fær maður 3—6. Oft »favor« og tilviljun það er að þakka og því er jeg gjarn á að láta það flakka á laugardagskvöldum, að lesa’ ekki neitt; jeg les það oft seinna með höfuð sveitt. I dag máske geturðu heilbrigður hlegið, en hryggur á morgun í bælinu legið. Á laugardagskvöldum þjer Ijett er og gtatt — þú leggur á mánudag undir flatt. . . . Úr kvæðinu „Laugardagskvöldin“. . . . En klukkan álta komum vjer saman og komum á fund — þá er stundum gaman. Vjer upplesum »pródúkl« með andagift þá alt þar til klukkan mun níu slá. En nú er að segja frá níu til líu — þá náungar komast í dispútasíu. Vjer rífumst og skömmust og höfum svo hátt, að heita má úti um frið og sátt. En tíu til ellefu iðrunarfyltir vjer allir í salnuin bænum oss stiltir. Og göngum svo niður með ijetta lund — en lítið er þá um að halda fund. En klukkan ellefu’ í bóiið vjer bröltum, í bælið þó oft með lunta töltum. En allflestir sofa þó sætt og rótt sunnudags- frídags- og helgidagsnólt. Sveirtninn við lækinn. (Eftir Schiller.) Sveinn við lækinn lá og teygði litfríð blóm og vatt í kans, burtu hrifin hann þau eygði hrekjast út í bárudans. Burt svo dagar fagrir fljúga sem flýtur áfram lindin hröð; bliknar og á braut vill snúa blómum lík min æskan glöð. Spyrjið ei, hví syrgi ’eg svona sjálfum blóma lífsins f, allir kætast við og vona vorið þegar skín á ný. En þessir allir þúsund hljómar, r

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.