Óðinn - 01.10.1928, Síða 15

Óðinn - 01.10.1928, Síða 15
Þuríður Eyjólfsdóttir i Fljótsdal Oddsonar á Fossi búið alllengi eftir að hún misti mann sinn, í Norðurbænum þar, við fremur litil efni, en með dugnaði sínum og sparsemi hafði henni þó tekist að ala svo vel upp dætur sinar, Ey- rúnu og Þórunni1) að þær þóttu hinn besti kost- ur. Eigi að síður þurfti, sem von var, margt að færa í lag og helst að auka búið, ef þess væri kostur. Þegar Kristján var nú setsíur að á Árgilsstöð- um og tekin við bústorráðum af Þuríði, sem síðan dvaldi hjá þeim hjónum til dauðadags, komu brátt í ljós búskaparhæfileikar hans, tók hann þegar að hýsa bæinn, bygði hann öll hús upp og klæddi með járni, sömuleiðis fjenaðar- hús og heyhlöður; ekki bygði hann stórhýsi, heldur snotran og sterkan bæ, eítir íslenskum sið og þörfum. Sömuleiðis bætti hann jörðina eins og við varð komið, einkum með girðingum, sem þá var miklu torveldara en nú, einnig með áveitum, þar sem það var auðið, enda jókst nú fjenaðurinn og búið stórum, sem fór að vonum; húsbóndinn sistarfandi, framúrskar- andi reglusamur, hirðumaður, nýtinn, sparsam- ur, fjárglöggur og nokkuð vinnuharður, ekki siður við sjalfan sig en hjú sín, og húsmóðirin í ötlu honum svo samhent að þau voru óvenju- lega saman valin; hún var mesta búkona, og heimilisiðnaður hennar var orðlagður, mun hún hafa verið ein hin fyrsta austur þar er eignaðist og notaði saumavjel, enda þótti það þá fasjeður og merkilegur gripur. Mjög voru þau hjón gestrisin, svo unun var að koma til þeirra, sjá alla umgengni og njóta veitinga þeirra samfara hinni hispurslausu fram- komu og glaðvæið. Þannig bjuggu þau hjón hinu mesta sæindarbúi, setn sífelt blómgaðist fyrir hinn framúrskarandi dugnað þeirra og for- sjalni, þrátt fyrir allmikla ómegð, höfðu þau nú keypt ábúðarjörð sína og part úr annari jörð, sem liggur svo nála»gt, að þau gátu haft þar slægjur til viðbótar heimajörðinni. Árið 1916 Ijetu þau af búskap og fengu jörð- ina í hendur Bergsteini syni sínum, sem þar býr enn, dvöldu þau svo hjá börnum sínum í nokk- ur ár. 1) Pórunni álti siðar Guðjón bróðir Kristjáns, bjuggu þau fyrst á Stórólfshvoli og síðar í Sölfholti í Flóa. Voru þau bæði dugnaðar og mannkosta menn. Síðasta árið sem Kristján lifði fluttu þau til Reykjavíkur til Þuríðar dóttur sinnar og manns hennar og þar andaðist Iíristján 20. janúar 1925, 83 ára gamall. Eyrún kona hans liíir enn, háöldruð að vísu — fædd 5. jan. 1848 — en enn þá ljett í hreyf- ingum og ung í anda, og sannast þar sem oft- ar orð skáldsins: »Fögur sál er ávalt ung undir silfurhærumcc. Þau hjón eignuðust 11 börn, 4 dóu ung, en einn sonur þeiira, Sigurður, dó uppkominn, hann druknaði af fiskiskipi í mannskaðaveðrinu mikla 7. apríl 1906 Hann þótti afbragð annara ungra manna, var því mikitl harmur kveðinn að fjöl- skyldunni við fráfall hans. 6 eru á lífi: Bergsteinn, bóndi á Árgilsstöðum, kvæntur Steinunni Auðunsd. frá Eyvindarmúla. Þórarinn, ókv. í Reykjavík. Guðný, gift Pjetri bónda Jóns- syni á Skammbeinstöðum í Holtum. Kristrún, gift Ulfari bónda Jónssyni í Fljótsdal. Þuríður, gift Magnúsi Jónssyni bónda í Reykjavík. Jó- hanna, gifl Finnboga R. Ólafssyni rafveitum. í Reykjavík. Öll þessi börn eru uppalin í hollu umhverfi, andlegu og veraldlegu, ljósastan vott um það getur hver sem vill fengið, komi hann á heimili þeirra, eða hafi náin kynni af þeim; aðal andlega uppeldisreglan mun hafa verið þessi: trúmenska gagnvart guði, sjálfum sjer og öðrum. Þar gengu foreldrarnir á undan. Kristján Jónsson var fremur lítill maður vexti en svaraði sjer vel, afarsnarlegur og sterkur að afli, fríður sýnum, augun fjörleg og fögur, talaði snjalt og orðin ákveðin, gleðimaður í vinahóp, lastvar, en þungur mótstöðumönnum, einhver hinn tryggasti vinur vina sinna, og reyndist þá jafnan best er mest lá við. Með Kristjáni Jónssyni er fallinn einn af hin- um gömlu og góðu islensku stofnum, sem haldið hafa uppi sannri alþýðumenningu og skuldlaus- um búnaði i landinu; þeir menn eru landinu stólpar. Hamingjan gefi að ísland ætti og eignaðist marga slíka. Oddur Oddsson.

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.