Óðinn - 01.10.1928, Page 23
ó Ð I N N
95
Gestur Pálsson.
Gestur heitinn Pálsson sagnaskáld átti á síð-
astliðnu ári (1927) 75 ára afmæli. í minningu
þess kom þá út hjá Bókaverslun Porsteins Gísla-
sonar Ritsafn hans: skáldsögur, fyrirlestrar og
úrval af kvæðum hans og blaðagreinum. Fylgir
því grein um höf. og skáldskap hans, eftir Einar
H. Kvaran. Bók þessari var mjög vel tekið, svo
að hún er nú, eftir liðlega eitt ár, nærri útseld,
enda var líka að öllu leyti vel til hennar vand-
að. En viðtökurnar, sem bókinn fjekk, sýna vin-
sældirnar, sem G. P. nýtur enn hjá islensku
þjóðinni fyrir ritlist sína.
Hjer skal ekki fjölyrt um æfi Gests nje um
ritmensku hans, en vísað um þau efni til rit-
gerðar E. H. K. í bókinni. En inn i myndasafn
Óðins er sjálfsagt að taka mynd hans. Hann var
fæddur í Miðhúsum í Reykhólasveit 25. sept.
1852, kominn af merku bændafólki i báðar ætt-
ir. Stúdent varð hann 1875, las svo guðfræði við
háskólann í Khöfn um nokkur ár, en kom heim
haustið 1882 og stofnaði blaðið »Suðra« á nýari
1883. Var ritstjóri þess í 4 ár og jafnframt skrif-
ari á landshöfðingjaskrifstofunni, og því starfi
gegndi hann þar til er hann fór veslur um haf
sumarið 1890 og varð ritstjóri »Heimskringlu« i
Winnipeg. Þar andaðist hann 19. ágúst 1891,
tæplega 39 ára gamall. En skáldsögur hans
munu lengi lifa og skipa virðulegt sæti í íslensk-
um bókmentum.
hýsa mátti þar um 300 fjár. Auk þessa sljettaði
hann í túninu um 4 dagsláttur á þessum árum.
Vorið 1907 fluttust þau Böðvar og Ingunn
aftur að Laugarvatni, þegar foreldar þeirra brugðu
búi, og hafa búið þar síðan við rausn og mynd-
arskap.
Hefur Böðvar einnig bælt jörð þá að húsum
og gert þar all-miklar jarðarbætur, t. d. sljettað
í túninu og grætt út, er nema mun um 20 dag-
sláttum, en öll jarðarbótastörf hans þessi ár hafa
verið metin 2800 dagsverk. Jafnhliða jarðarbót-
unum hefur hann og bætt fjárkyn silt, svo að
það þykir nú bera af öðru Ije þar um slóðir,
sakir vænleiks.
Ymsum trúnaðarstörfum hefur Böðvar gegnt,
og farist þau vel úr hendi. Hefur hann verið
hreppstjóri í 24 ár, fyrstu tvö árin aðstoðarhrepp-
stjóri í Gnmsneshrepp hinum forna, en siðan
hrepnum var skift i Grímsnes- og Laugardals-
hrepp hefur hann verið einn hreppstjóri hins
síðarnefnda og átt sæti í hreppsnefnd jafnlengi,
eða 22 ár. Sýslunefndarmaður hefur hann verið
í 18 ár. Pegar rjómabúið »Apá« var stofnað, varð
hann formaður þess og var það öll árin sem
það starfaði, eða til 1916, en þá var það lagt
niður. Var þá skift upp um 1400 krónum er
búið átti. og gerðu fá bú betur. Þá hefur hann
og verið endurskoðandi Kaupfjelags Grimsnes-
inga frá öndverðu, en það var stofnað 1909. Og
nú síðast hefur hann bæði verið formaður og
gjaldkeri í nefnd þeirri er haft hefur með hönd-
um byggingu Laugarvatnsskólans. Hefur um
hjeraðsskólamálið staðið all-mikill styr um nokk-
ur ár, eins og kunnugt er. En það segja kunn-
ugir, að Böðvari megi ekki síst þakka að þessi
myndarlegi skóli skuli nú risinn af grunni. í
því máli hefur hann verið hreinn og ákveðinn,
og lagt þar meira í sölurnar en nokkurn grunar.
Þau hjón, Böðvar og Ingunn, hafa á þessum