Óðinn - 01.10.1928, Síða 26
98
ó Ð I N N
Sigurjón Friðjónsson skáld.
Nú í haust kom út eftir hann allstór kvæða-
bók, um 20 arkir, og fæst nú hjá bóksölum um
alt land. Verðið er kr. 7,50, innb. kr. 10,00.
Lesendur Óðins eru svo kunnugir kveðskap
S. F., að þeir þarfnast ekki lýsingar á honum.
Frá því er Óðinn byrjaði að koma út, fyrir nær
fjórðungi aldar, hefur S. F. árlega birt í honum
fleiri eða færri kvæði, og er hann því fyrir löngu
þjóðkunnugt ljóðskáld, þótt ljóðabók hafi ekki
komið út eftir hann fyr en nú, er aldri hans
hallar frá sextugu. Bókinni hefur að verðleikum
verið vel tekið í þeim blöðum, sem getið hafa
um hana. Sjálfur hefur hann skrifað stuttan
formála fyrir henni og gerir þar að umtalsefni
mun »ómrænna« og »myndrænna« ljóða, en ljóð
hans sjálfs eru flestum fremur »ómræns eðlis«.
Þau eru mörg, eins og segir í ritdómi í Lög-
rjettu, »á mörkum milli ljóðs og lags«. Vor-
söngvar eru margir í bókinni. Og þar eru marg-
ar fagrar náttúrulýsingar, einkum frá tíðum
vorsins og sumarsins. Innan um eru draumkend
og dulræn ljóð, og stundum verður lífspeki aðal-
efnið. Einnig eru þar mansöngvar, minningaljóð
o. s. frv. Síðast eru nokkrar þýðingar, flestar af
kvæðum eftir danska skáldið Jóh. Jörgensen og
sænska skáldið E. A. Karlfeldt. Öll eru ljóðin
vöndnð og vel frá þeim gengið. Lipurð og þýð-
leiki eru aðaleinkenni þeirra, og rímsnild er þar
víða á hæsta stigi. Svipar þeim töluvert hvorum
til annars í ljóagerð Sigurjóni og Guðmundi
heitnum Guðmundssyni. Ljóð Sigurjóns hafa
fyrir löngu eignast marga vini, og enginn efi er
á þvi, að með útbreiðslu þessarar bókar aukist
þær vinsældir. Hún á skilið bestu viðtökur hjá
þjóðinni.
óðinn getur, því miður, ekki að þessu sinni
flutt æfiágrip Sigurjóns svo rækilega, að gagn
sje að. En S. F. hefur haft mikil afskifti af al-
mennum málum, hefur gegnt mörgum trúnaðar-
störfum heima í hjeraði sínu og um eitt skeið
átt sæli á Alþingi sem landskjörinn þingmaður.
Hann er enginn hávaðamaður, en drjúgur, er á
reynir, og var vel metinn af samþingismönnum
sínum. Hann er elstur þeirra Sand'bræðra, fædd-
ur sumarið 1867. Hefur hann nú lengi búið á
Litlu-Laugum í Reykjadal, en bjó fyrst á Sandi
og þar næst á Einarsstöðum. Kona hans var
Kristín Jónsdóttir Ólafs'onar, fyrrum bónda á
Rifkelsstöðum í Eyjafirði, er síðast var á Ein-
arsstöðum, og er æfisaga hans í febrúarblaði
óðins 1913, rituð af sjálfum honum. Konu sína
misti Sigurjón í haust, sem leið, og andaðist
hún á heilsuhælinu í Kristsnesi. Elstur barna
þeirra er Arnór skólastjóri á Litlu-Laugum.
&
Sólskinsblettur.
En hvað það var undur gaman
er við Sigga geDgum saman;
eða hvíldumst eftir ról
upp við fossinn, vermd af sól.
Blærinn var svalandi,
blómáliar hjalandi,
brosti hver laut og púfa,
og brosmild, bláeyg dúfa
galdur sinn mjer gól.
Fnjóskur.
V