Óðinn - 01.01.1935, Side 1
OÐINN
1.-6. BLAÐ ]ANÚAR-]ÚNÍ 1935 XXXI. ÁR
'
Sigurður Sigurðsson ráðunautur.
Sjötíu ára minning (1864 —1934).
Sigurður Sigurðsson ráðunauíur, kona hans, frú Björg Guðmundsdóttir, og synir þeirra: Sigurður
Haukdal, prófastur í Flatey, og Geir Haukdal, verzlunarmaður í Reykjavík.
Þann 4. október síðastl. haust hefði Sigurður
ráðunautur orðið sjötugur, ef lifað hefði, en þá var
rúmt hálft níunda ár liðið síðan hann dó. Við andlát
hans var hans eðlilega minst í ýmsum blöðum og
lítillega í »Dúnaðarritinu*. Vænst hefði maður þó
þess, að í riti þess fjelags, er hann starfaði fyrir í
fullan aldarfjórðung, hefði birtst rækileg æfiminning
Sigurðar. En á því hefur orðið dráttur. Þess vegna
eru þessar línur skrifaðar, því að enn eru ýmsir, sem
minnast Sigurðar ráðunauts með þakklæti.
Sigurður ráðunautur er fæddur 4. október 1864
að Langholti í Flóa, og var af bændafólki kominn í
báðar ættir. Faðir hans var Sigurður bóndi í Lang-
holti (f. 1831, d. 1905) Sigurðsson, bónda í Vetleifs-
holtshelli (f. 1799, d. 1842) Ólafssonar, bónda sama
staðar (d. 1816) Sigurðssonar, Hafliðasonar í Borgar-
túni, Þórðarsonar ráðsmanns í Skálholti, bónda í Háfi,
Þórðarsonar sýslumanns á Ingjaldshóli (d. 1703),
Steindórssonar sýslumanns sama staðar, Tunissonar á
Ökrum, Steindórssonar sýslumanns á Ökrum (d. 1579)
Finnssonar á Ökrum Arnórssonar. — Er ætt þessi,
Akraætt, gömul ætt og merk. Rekur Steinn Dofri
ættfræðingur þá ætt í beinan karllegg til Ingólfs Iand-
námsmanns.