Óðinn - 01.01.1935, Qupperneq 6

Óðinn - 01.01.1935, Qupperneq 6
6 Ó Ð I N N höfðingja- og prestavaldi Árnessýslu; og loks hepnað- ist því líka að fleka til fylgis við sig allmargt af al- þýðu manna, og tókst þannig að fella Sigurð frá þing- mensku. Hafði hann þó reynst hinn nýtasti maður sýslu sinni. — Á þingi naut hann virðingar; hann var starfsmaður mikil! og hlífði sjer ekki. Eins og að líkum ræður, beitti hann sjer þar mjög fyrir búnaðar- málum; þau vóru altaf hans mesta áhugamál. Átti hann og lengst af sæti í landbúnaðarnefnd. — Sigurður ráðunautur var orðsnjall maður, talaði hátt og skýrt, svo að gjörla mátti mál hans heyra. — Hina mestu skömm hafði hann á bitlingasýki og bruðlunarsemi allri og vítli slíkt óspart. Fjekk hann oft ómjúkt orð í eyra vegna þeirrar tilhneigingar, að vilja halda spart á fje ríkisins. En lífið hafði kent honum að spara, bæði sitt eigið fje og annara; enda var heiðarleik hans við brugðið — og annað samrýmdist honum ekki. Sigurður ráðunautur þótti skemtilegur fyrirlesari. Á flestum búnaðarnámsskeiðum Búnaðarfjelagsins mun Sigurður hafa verið og flutt þar fyrirlestra, einn eða fleiri, og á fundum búnaðarfjelaganna víðsvegar um land. — Stóð hann og altaf fyrir og var aðal- kennari á námsskeiðum þeim, er haldin vóru við og við í Reykjavík fyrir eftirlitsmenn nautgriparæktar- fjelaganna. Þegar litið er yfir hin miklu og margþættu störf Sigurðar og löngu ferðalög, er furðulegt, hvað hann hefur getað sint mikið ritstörfum. Ekki þar með sagt að hann væri neinn rithöfundur. Og ekki liggur heldur í þeim efnum neitt stórt verk eftir hann. Fjekk hann og ekki nema mjög takmarkaða kenslu í móðurmáli sínu á uppvaxtarárunum. En hann lagði mikla rækt við íslenskuna og vildi skrifa gott mál; enda mun honum hafa tekist það sæmilega. Hann skrifaði af nauðsyn. Áhugamálin kröfðust þess. Fjölda greina á hann víðsvegar í blöðum vorum og tímaritum; en sjerstaklega þó í »Búnaðarritinu€ og búnaðarblaðinu »Frey«. — »Freyr« hóf göngu sína 1903. Stofnendur vóru: Magnús Einarson dýralæknir, Einar Helgason og Guðjón Guðmundsson. Sigurður ráðunautur varð meðeigandi blaðsins 1909 og meðútgefandi þess í næstu 14—15 ár; og annaðist rnikið af þeim tíma einn að mestu ritstjórn þess og afgreiðslu. Átti «Freyr* vinsældum að fagna meðal bænda. — Margar greinar Sigurðar í »Frey«, »Búnaðarritinu« o. v. eru langar og fróðlegar ritgerðir, snertandi áhugamál hans, og hafa ýmsar þeirra verið sjer- prentaðar. Mætti af ritgerðum hans nefna t. d.; »Um mjólkurbú í Danmörku og Noregi* (»Búnaðar- rit«, 13. árg, 1899). »Smjörbúin og smjörsalan* (»Búnaðarrit« 1905). »Starfsemi smjörbúanna 1900 — 1910« (»Búnaðarrit«, 26. árg., 1912). »Smjörbúin 1911 — 1915« (»Búnaðarrit«,31.árg., 1917). »Smjörbúastarfsemin« (»Búnaðarrit« 1919). »Um sölu á smjöri til útlanda« (»Búnaðarrit« 1901). »Mjaltir á kúm« (III. kafli í »Mjólkurfræði« Gísla mundssonar gerlafræðings, útg. 1918). »Nautgriparæktin og nautgriparæktarfjelög* (»Bún- aðarrit*, 29. árg., 1915). »Hestaræktin« (»Búnaðarrit«, 32. árg., 1918). »Vatnsveitingaengi« (»Búnaðarrit«, 17. árg.). »Vatnsveitingar« (»Búnaðarrit«, 33. árg., 1919). »Reynsla um áveitur* (»Búnaðarrit«, 34. árg., 1920). Þá má nefna fróðlega ritgerð um landbúnaðinn á Vestfjörðum, er upphaflega birtist í skýrslu Búnaðar- sambands Vestfjarða, en var síðan sjerprentuð; svo og tvær greinar um fyrirmyndarmenn í 9. og 12. árg. »Freys«, og loks skemtilega og þarfa hugvekju um búskaparsyndir bænda, í 11. árg. »Freys«. — Hjer er aðeins drepið á nokkrar greinar Sigurðar; en als mun hann hafa ritað á 6. hundrað smærri og stærri greina í blöð og tímarit. Eftir fyrstu utanför sína, sem að framan getur, fór Sigurður tvisvar til útlanda (Norðurlanda), 1903 og 1923, til þess að kynna sjer nýjungar í búskapar- málum, hið síðara skiftið þó um leið sjer til hvíldar. Fjelagslyndur maður var Sigurður ráðunautur og hverjum fjelagsskap var hann mikill styrkur, því að hann lá ekki á liði sínu. Meðan hann dvaldi í Dýra- firði starfaði hann því mikið á meðal unga fólksins; gekst, ásamt fleiri góðum mönnum, fyrir leikstarfsemi á Þingeyri. Ljek hann þar t. d. eitt sinn hlutverk Skrifta-Hans í »Æfintýri á gönguför*, og þótti vel takast. — Einn aðal-hvatamaður var hann og þess, að stofnað var til þing- og hjeraðsmálafunda Vestur- ísafjarðarsýslu. — í Góðtemplarareglunni sfarfaði hann og mikið um skeið og var meðlimur stúkunnar »Einingin« nr. 14 frá 1892 og til dauðadags. — Hann var einn af stofnendum verkamannafjelagsins »Dagsbrún« og fyrsti formaður þess; lengi var hann meðlimur þess, þó að þar skildi að lokum leiðir. Bókamaður var Sigurður mikill; átti prýðilegt og vel um gengið bókasafn. Enda Ias hann mikið, þegar tekið er tillit fil þess hve nauman tíma hann til þess hafði og oft var á ferðalagi. Ljóðelskur var hann; uppáhalds-skáld hans var Grímur Thomsen. Enginn var hann söngmaður, en hafði yndi af söng, og á námsskeiðum og fyrirlestraferðum sínum er sagt, að hann hafi gengið að því með dugnaði að fá fundar-

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.