Óðinn - 01.01.1935, Page 9

Óðinn - 01.01.1935, Page 9
Ó Ð I N N 9 Jón Þorláksson borgarstjóri. Hann andaðist á heimili sínu hjer í bænum 20. marz síðastliðinn. Hafði hann oft verið sjúkur á síðari árum og hvað eftir annað dvalið erlendis sjer til heilsubótar og hressingar. Nú var hann nýlega kominn heim frá Sví- þjóð, úr samningagerð um virkjun Sogs-fossanna, og hafði án efa lagt þar meira að sjer en hann þoldi. Hann var lasinn eftir heimkomuna og þó farinn að sinna störf- um sínum, en veiktist þá snögglega og andaðist eftir stutta stund. ]ón varð 58 ára, fæddur 3. marz 1877 í Vesturhóps- hólum í Húnav.sýslu, sonur Þorláks hreppstj. Þorláks- sonar, prests á Undirfelli, og Margrjetar Jónsdóttur prests Eiríkssonar. Bróðir Jóns er hinn alkunni dugnaðar- og búsýslumaður Magnús bóndi á Blikastöðum í Mosf.sveit, en systir þeirra, Björg, áður gift Sigfúsi Blöndal, bóka- verði í Kaupmannahöfn, er dáin fyrir nokkrum árum, og var orðin þjóðkunn fyrir ritstörf sín. — Jón varð stú- dent 1897 með ágætiseinkunn, fjekk hærri einkunn en gefist hafði fram til þess tíma við latínuskólann. Segir einn af bekkjarbræðrum hans, Árni Pálsson prófessor, svo frá, að Jón hafi sjaldan mikið þurft að hafa fyrir náminu, verið jafnvígur á allar náms- greinar, en lítt gefið sig að málum skólapilta. Kveðst Árni aðeins einu sinni hafa heyrt Jón taka til máls um þau mál, og var það rjett áður en þeir yfirgáfu skólann, en ræðan, sem hann flutti þá, sje sjer minnisstæðari en flestar ræður, sem hann hafi heyrt um sína daga. — Jón las síðan mannvirkjafræði við háskólann í Kaupmannahöfn og tók próf í henni 1903 með mjög hárri einkunn, rjett við ágætiseinkunn. Fyrsta'starfið, sem hann tókst á hendur hjer heima, var rannsókn byggingarefna til leiðbeiningar við húsa- gerð hjer á landi, og var styrkur veittur úr landsjóði til þeirra rannsókna. Hafði Sigurður Pjetursson mann- virkjafræðingur áður haft það starf, en dó frá því. I þessum erindum ferðaðist Jón fyrst um Noreg, Þýskaland og England, en síðan hjer heima, til og frá um landið, og var það sumarið 1904. Hann komst að þeirri niðurstöðu, að steinsteypan væri hjer heppi- legasta byggingarefnið, enda ruddi hún sjer þá fljótt til rúms. Ritaði hann um þetta fjölda greina á næstu árum, bæði í »Búnaðarritið« og »Lögrjettu«, en hann var einn af stofnendum þess blaðs og lengi mikið við riðinn útgáfu þess. Er hann upphafsmaður og brautryðj- andi steinsteypubygginganna hjer á landi, sem nú eru orðnar langalgengastar ný- byggingar bæði í kaupstöð- um og til sveita. Hann segir um þetta áhugamál sitt í einni greininni í »Lögrjettu«: »Það má telja víst, að torf- bæirnir fari að leggjast nið- ur; það má búast við,að það fari að verða »móðins« í sveitunum, að byggja stein- hús í þeirra stað. En menn ættu að muna eftir því, að sælli er sá, sem lifir áhyggju- lausu lífi í torfbæ og getur goldið hverjum sitt, heldur en sá, sem býr í prýðilegu steinhúsi, en sjer engin úr- ræði til að borga það«. — Sýnir þetta vel athygli hans og varfærni. Hann kvæntist sumarið 1904 Ingibjörgu Claessen dóttur Claessens landsfjehirðis og fyrri konu hans Kristínar, er var dóttir Eggerts Briem sýslumanns. Lifir frú Ingibjörg mann sinn. í ársbyrjun 1905 varð Jón landsverkfræðingur og varð aðalstarf hans þá foistaða vegagerða og brúar- gerða landsjóðs. Sumarið 1906 fór hann um landið og mældi upp allar flutningabrautir og flesta þjóð- vegi. Komst þá fyrst á föst áætlun um vegagerðir yfir alt land. Veturinn á undan hafði hann verið er- lendis, mest í Noregi, til þess að kynna sjer vegamál þar. Það urðu tillögur hans í vegamálunum, að ak- brautir yrðu lagðar um alla aðalvegi landsins og ak- fær vegur heim að hverjum bæ í sveitunum, en járn- braut frá Reykjavík til Suðurláglendisins. Ðílar vóru Jón Þorláksson borgarstjóri.

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.