Óðinn - 01.01.1935, Qupperneq 11

Óðinn - 01.01.1935, Qupperneq 11
O Ð I N N 11 Bæjarfulltrúar í Reykjavík bera kistu Jóns Þorlákssonar úr kirkju. átt meiri eða minni þátt í öllum framfaramálum bæjarins á mestu vaxtarárum hans, og aðaláhugamál hans, Sogsvirkjunin og jarðhitaleiðslan, vóru nátengd hag bæjarins. Hann var því ánægður með þá stöðu og sinti henni af einlægum áhuga. Fyrir þingkosn- ingarnar 1934 sagði hann af sjer formensku í Sjálf- stæðisflokknum, lýsti því yfir, að hann byði sig ekki fram til þingmensku og drægi sig út úr afskiftum af stjórnmálum. Síðasta verk hans í þágu lands og bæjar vóru samningarnir um Sogsvirkjunina. — Við jarðar- för hans sýndu bæjarbúar af öllum flokkum það vel, hve miklar mætur þeir höfðu á borgarstjóra sínum. Jafnfjölmenn og viðhafnarmikil jarðarför hafði aldrei áður farið fram í þessum bæ. Það stóð til að minningarathöfn um Jón Þorláks- son færi hjer fram eftir jarðarför hans, og átti eftir- farandi kvæði, sem jeg hafði gert, að syngjast þar. En sú minningarathöfn fórst fyrir og læt jeg kvæðið fylgja hjer. Það er undir laginu »Integer vitae«, eða: »Hlíðin mín fríða«: Ósnortinn var hann af þeim lesti, er háir mönnum vors tíma. Munu slíkir fáir. Hvar sem hildi háði, hreinan skjöldinn bar hann. Valmenni var hann. Námsmaður ungur nytsömustu störfum hug vildi helga, hugði að landsins þörfum. Vanrækt á ættjörð víða mátti finna verk til að vinna. Lítum til baka: Landið þurfti djarfa forustu’ í framkvæmd, færa menn til starfa, rökhugsuð ráð, að reisa’ úr alda flagi bygðir og bæi. Vantaði vegi, vötnin þurfti’ að brúa, rotnuðum mó í ræktað land að snúa, út yfir engin árnar láta flæða, gróður að glæða.

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.