Óðinn - 01.01.1935, Qupperneq 26

Óðinn - 01.01.1935, Qupperneq 26
26 Ó Ð I N N Guðmundur Finn- bogason landsbóka- vörður sagði m. a.: >Jóhannes Kjarval var á sínum yngri ár- um fiskimaðuráfiski- flota vorum. Hann var einn í hinu frækna liði, er sótt hefur gullið í greipar Æg- is og þar með lagt grundvöllinn að sjálf- stæði íslands, svo langt sem það nær, og flestu framtaki, sem síðan hefur verið í þessu landi. Hann gat sagt eins og Þórgils veiðimaður forðum: Ófúsa dró ek tfsu, átta ek fang við iöngu, vann ek of hausi hennar hlömm — var þat fyr skömmu. Kjarval hefur eflaust verið liðtækur fiskimaður. Hann hefur alla burði til þess, eins og hver maður getur sjeð, sem lítur á hann. En hann fann það á sjer, að hann gat orðið þjóð sinni að meira liði með því að vinna að öðru, láta aðra draga fiskinn úr sjónum og sjá fyrir frumþörf lífsins, en mála og teikna fyrir þá í staðinn, sýna þeim land og þjóð í ljósi, sem þeir höfðu aldrei áður skynjað. Einstöku menn hafa hver af öðrum lagt á hið tæpa vað að gerast listamenn eða rithöfundar, og reyna að lifa á því að fullnægja andlegum þörfum þjóðarinnar gegn því, að hún sæi fyrir líkamlegum þörfum þeirra. Kjarval er einn þessara ævintýramanna. Þeir hafa löngum átt þungan róður, því að það eru ójöfn við- skifti að bjóða andlega nautn fyrir líkamlega: ’ Kjarval valdi hið góða hlutskiftið, hann hefur numið landið á ný fyrir augu vor, sýnt oss það, sem vjer án hans hefðum aldrei megnað að sjá. Hann hefur ekki farið eldi listar sinnar mjög víða um landið, en hann hefur tekið fyrir nokkur svæði og opnað þar útsýn inn í nýja heima. Ef vjer t. d. rennum augum yfir bestu Þingvalla-myndirnar hans, sjáum vjer nýjan Þingvöll á hverri mynd. Vjer þekkjum að vísu stað- inn aftur. Fjöllin eru þar og gjárnar og hraunin, áin og vatnið. En það er altaf nýtt í hverri mynd, ljós og litir og skuggar í nýju, töfrandi samræmi, hver mynd er hreimmikil hrynhenda ljóss og lita, stuðluð klett- um og klungrum. — Vjer skynjum fögnuðinn í sam- lífi forms og Ijóss og lita, finnum hið und- ursamlega andans veður, sem leikur um það alt; steinarnir tala, klettarnir fá sál í svip og oss finst vjer skilja frumhugs- anir hins mikla fjalla- smiðs betur en áður. Augað gleðst af að skoða munstrið í vef mosans, finna svala hins blátæra vatns, ráða blámadrauma kvöldsins. — Pensill Kjarvals gefur öllu líf með litum, hvort sem hann sýnir okkur gullofið biskupsmítur fjallsins við safírbláan himinn, eða rauð- magann í helgum hreinleik litskrúðans. — En Kjarval þarf ekki alla regnbogans liti til að sýna það, sem hann vill. Hann getur líka sýnt það svart á hvítu og hann krítar svo liðugt með rauðkrít, að með fágæt- um er. Og hann er ekki síður skygn á mennina en landið. Það votta margar mannamyndir hans. Manna- teikningar hans eru oft svo magnaðar af innræti þess, er hann dregur upp, að hver maður getur lesið það í svipnum eins og í opinni bók. Það er leitun á öðru eins safni af einkennilegu fólki og nú má líta hjer í forstofunni. Það er sannarlegt metfje. Þökk sje þeim mönnum, er höfðu framlak til þess að koma þessari sýningu upp svo vel sem nú er orðið. Hún mun veita fjölda manns mikinn unað. Hún mun sanna það, sem raunar allir ættu að vita, hve frumlegur, frjór og snjall listamaður Kjarval er. Hún mun gera mörgum ljóst, að þjóðin er í mikilli skuld við listamanninn fyrir hinn mikla og ágæta skerf, sem hann hefur lagt til hinnar ungu, íslensku myndalistar, og að það væri sæmd að greiða sem fyrst í orði og verki eitthvað af þeirri skuld*. — Kvæðið, sem ritstj. »Óðins« flutti, hljóðar svo: Einn helsti kjarnakarl vors lands hann Kjarval er. Það leiftrar ótal lita glans um líf og starf og nafnið hans. Þau lifa verk þess listamanns í landi hjer. í gegn um fell og holt og hól í huldufólks og álfa ból hann sjer. Kjarval um tvítugt.

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.