Óðinn - 01.01.1935, Side 27

Óðinn - 01.01.1935, Side 27
Ó Ð I N N 27 Hann lætur skína fjörð og fjöll og foss og tind, og opnar myrka hamrahöll, sem hýsir dverg og gömul tröll, en lætur brosa blóma völl og bjarta lind. Hann skilur lands og lagar sál og letrar náttúrunnar mál í mynd. í ferðum sínum frjáls er hann sem fjalla blær. Án launa flest sín verk hann vann, en verkin lofa meistarann. Og götu sína gengur hann og glaður hlær, þótt leið hans sje um hjarn og hraun. En hinu megin sigurlaun hann fær. Þ. G. Björn Pálsson gullsmiður. Björn Pálsson, gullsmiður, fæddist 31. des. 1854. Foreldrar hans vóru Páll silfursmiður, á Eyjólfsstöð- um á Völlum, Sigurðsson stúdents s. st., Guð- mundssonar sýslumanns í Krossavík Pjeturssonar. — En kona Sigurðar stúdents og móðir Páls var Ingunn, dóttir sjera Vigfúsar Ormssonar. — Á öðru aldursári fluttist Björn með foreldrum sínum norður að Fjalla- lækjarseli í Þistilfirði, sem er kirkjukot frá Svalbarði en þar þjónaði þá sjera Vigfús Sigurðsson, bróðir Páls. Fjögra ára að aldri var Björn látinn í fóstur til frændkonu föður síns, maddömu Ðjargar Ormsdóttur Lund á Raufarhöfn; er sagt að hún hafi verið hálf- systir sjera Vigfúsar langafa Björns. Björn var snemma fastlyndur og undi aldrei vel á Raufarhöfn, og þegar foreldrar hans fluttust aftur austur á Hjerað, ætluðu þau að taka hann með sjer, en úr því varð þó ekki, heldur varð hann eftir á Svalbarði hjá sjera Vigfúsi, og ólst síðan upp hjá honum og fluttist 16 ára með honum að Sauðanesi. Vildi frændi hans láta hann læra til prests, eða skólalærdóm, en þá braut gat Björn ekki hugsað til að ganga. Árið 1875 fór hann kynnisferð austur til foreldra sinna og sá þá föður sinn smíða járn, steypa kopar og lítið eitt fást við silfursmíði. En þótt það væri ekki mikið, sem hann þannig kyntist smíðum, opnuðust augu hans fyrir því, að þarna væri verk, sem gaman væri að stunda, og skömmu seinna lagði hann aftur land undir fót austur á Hjerað, til Marteins Jónssonar gullsmiðs og var hjá honum í mánuð. Marteinn þessi hafði lært gull- smíði í Kaupmannahöfn og var giftur Guðrúnu ]óns- dóttur, systur sjera Bergs í Vallanesi og hálfsystur sjera ]óns Bjarnasonar í Winnipeg. Fóru þau litlu síðar til Vesturheims og er sjera Runólfur Marteins- son í Winnipeg sonur þeirra. — Hjá Marteini smíð- aði Björn silfurskeiðar úr ríkisdölum og spesíum, sem maddarna Þórunn Pálsdóttir, fyrri kona Páls skálds Ólafssonar, lagði honum til. Skömmu seinna var Björn hálfs mánaðar tíma hjá öðrum smið, Pjetri Guðmunds- syni. Með þennan lærdóm fór hann norður aftur, fjekk sjer verkfæri og notaði nú hverja frístund til að smíða svipur. Ekki vildi sjera Vigfús hjálpa frænda sínum áfram á þessari braut, og því fór Björn frá Sauðanesi vorið 1880 og varð kaupamaður um sum- arið hjá Páli skáldi á Hallfreðarstöðum, en fór um haustið til Kaupmannahafnar til að læra þar gull- smíði. Komst hann til Lindgren gullsmiðs og vann þar um veturinn mest við að smíða silfurskeiðar. Bauð Lindgren honum að láta hann hafa kaup, svo að hann gæti lifað af þar, og svo sveinsbrjef eftir 1 árs nám. En þá kom brjef frá sjera Vigfúsi frænda hans og fóstra, þar sem hann biður hann að koma til sín og takast á hendur bústjórn hjá sjer, og þar sem Birni fanst hann eiga frænda sínum svo mikið gott upp að unna, þá hafnaði hann boði Lindgren’s og hvarf aftur heim að Sauðanesi og tók þar við bústjórn, en vann að silfur- og gullsmíði í hjáverkum. Þann 24. okt. 1884 giftist Björn frændkonu sinni Margrjeti Björnsdóttur stúdents og umboðsmanns Skúlasonar og Bergljótar, systur Páls föður Björns. Dvöldu þau hjón áfram á Sauðanesi meðan sjera Vigfús lifði, en vorið 1889 fluttust þau að Búastöð- um í Vopnafirði með 2 drengi, Vigfús og Ðjörn. Á Ðúastöðum bjuggu þau í 4 ár og eignuðust 2 dætur, Láru Guðrúnu (f. 1890) og Dórhildi (f. 1892), en Björti Pálsson.

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.