Óðinn - 01.01.1935, Qupperneq 28

Óðinn - 01.01.1935, Qupperneq 28
28 Ó Ð I N N þau mistu þar Björn son sinn. Sumarið 1893 fluttust þau til Vesturheims. Vigfús sonur þeirra andaðist á leiðinni, og hafði hann slrax og hann varð lasinn verið tekinn frá þeim, og sáu þau hann svo ekki fyr en líki hans var varpað í sjóinn, og þegar á land kom var móðirin sett í sóttkví með yngri stúlkuna. Þetta og fleira hafði þau áhrif á þennan tilfinningaríka og fastlynda mann, að hann festi ekki yndi í Ameríku, en dreif sig strax á næsta ári heim affur með konu og dætur. Fóru þau fyrst að Nesi í Loðmundarfirði til Páls Ólafssonar, sem átti fyrir seinni konu Ragn- hildi, systur Margrjetar. En á næsta vori fóru þau að búa á parti úr Vakurstöðum í Vopnafirði. Árið 1899 fluttust þau aftur að Nesi í Loðmundarfirði, en dvöldu þar aðeins árlangt og fluttu svo aftur að Vakurstöðum á sama partinn, sem eigandinn hafði ekki viljað byggja öðrum, af því hann bjóst fastlega við að Björn mundi ekki festa yndi í Nesi. — Konu sína misti Björn 21. sept. 1901. Hafði hjónaband þeirra verið hið ástúðlegasfa, enda var Margrjet sál. ágætiskona, glaðlynd og hvers manns hugljúfi, greind og tápmikil. í annað sinn giftist Björn 2. maí 1903 Rannveigu Nikulásardóttur, veitingamanns og borgara í Reykjavík, jafetssonar gullsmiðs Einarssonar, er var bróðir Ingi- bjargar konu ]óns forseta Sigurðssonar. Bjuggu þau á Vakurstöðum þar til vorið 1910 að Björn keypti Refsstað í sömu sveit og fluttist þangað, og þar bjuggu þau í 20 ár. En þá hafði Björn að mestu mist sjón og var nú orðinn þreyttur og slitinn; brá hann því búi og flutti í kauptúnið. Þau Rannveig og Björn eignuðust 3 börn, sem öll eru á lífi: Gunnar, lærði húsasmíði, býr í Reykjavík, kvæntur Margrjeti Björnsdóttur; Karl, lærði gullsmíði, býr í Hafnarfirði, kvæntur Júlíönu Jónsdóftur, og Margrjet, gift Kára bónda Tryggvasyni í Víðikeri í Bárðardal, og dvelja nú gömlu hjónin þar hjá dóttur sinni og tengdasyni. Auk þess er af fyrra hjónabandi Björns á lífi í Winnipeg: Lára Guðrún, var hún gift Guðmundi kaupmanni Arnasyni, sem andaðist þar síðastl. sumar. Björn Pálsson stundaði þannig ætíð búskap og smíðar. Bú sitt stundaði hann af dugnaði og alúð, og fáir þóttu. betri búendur, enda kom þar sem annarsstaðar fram hygni hans og forsjá. Svo var hann kyntur, að allir báru til hans fult traust, enda var hann þektur að öllum heiðarleik og samviskusemi. Tvíbýlinu á Vakurstöðum var viðbrugðið, því það var þannig, að hvorugir vildu annan styggja í neinu, og var það eins á báða vegu. Smíðar Björns vóru eftirsóttar, hvort heldur vóru skartgripir úr gulli eða silfri, skeiðar eða svipur, sem allir vildu eiga. Alt var þetta grafið eða útsagað með mestu snild. Gerði hann sjálfur allar teikningar sínar mjög smekklega og snildarbragur var á allri vinnu. Og það þurfti enginn að vera hræddur um að hann fengi svikna vöru, sem keypti smíðar af Ðirni Páls- syni. Lengi vel reyndi hann að sneiða sig hjá öllum sveitarsökum, en svo fór að hann varð að fara í hreppsnefnd og þótti þar, sem annarsstaðar, ætíð koma fram til góðs. Hann var einnig lengi safnaðar- fullfrúi. © Erling Ólafsson. Fæddur 21. ágúst 1910. Dáinn 23. desbr. 1934. Þú elskaðir vor og ljóð og lag og lifðir í töfra heimi, úr blámóðu sástu bjartan dag þjer brosa frá sólna geimi. Þú gekst í listanna háreist hof, þar hörpustrengurinn glóði, og gladdir marga og gatst þjer lof með glitrandi tónaflóði. Og hrifningu fyltist hugur minn á helgi leyndustu dóma, er síðast jeg heyrði sönginn þinn í sölum musteris óma. En nú ertu horfinn seggjasveit á sólbjörtu æfiskeiði, þá æskumanns sálin örugg leit sín áform á vona heiði. ]á, svona hverfið þjer, einn og einn. — Hver elskandi fámáll stynur. ]eg óska þjer heilla, söngvinn sveinn, og sólin blessi þig, vinur. Hallgrímur Jónsson. (9

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.