Óðinn - 01.01.1935, Blaðsíða 32

Óðinn - 01.01.1935, Blaðsíða 32
32 Ó Ð I N N eru eins og fingur með kartnögl á risavaxinni hendi, er vill seilast út til eyjanna eftir björg í búið. — Og víst er um það, að margan málsverðinn hafa nesja- bændur dregið í bú sitt úr eyjunum. í suðri er »Skarðsströndinc með öllum sínum forn- frægu stórbýlum. Þaðan blása hinir hlýjustu vindar um eyjarnar. Utar tekur við Snæfellsnesfjallgarður- inn, sundurrifinn og sjerkennilegur og endar á hin- um sviphreina Snæfellsjökli. Bárður situr enn á jökl- inum og er ákaflega mislyndur — enda er hann gamall orðinn. — Stundum spýr hann hinum verstu útsynningshryðjum og jeljagara inn yfir fjörðinn, en hina stundina er hann mjallhvítur og tandurhreinn eins og forkláraður engill, er fengið hefur syndafyrir- gefningu á himnum — og má nú aftur fara að láta illa. Atvinnuvegir. Vorannir. Hreinsun. Þegar vora tekur og ísa leysir af sund- um, er það eitt af fyrstu vorverkum í eyjunum, að fara í úteyjar og »hreinsa« þær. Haustflosar fleyta oft þangi og þara langt upp á eyjar, einkum þar sem eyjar eru Iágar en sjógangur mikill. Isinn ber möl og sand upp á grundirnar. Þetta þarf að hreinsa burtu, eigi það ekki að valda skemdum á eyjunum, og spilla slægjum og beit. Annað er og erindi í eyjarnar. Vorið er komið og varptíminn er í nánd. Allir eyjabændur reyna að hæna æðarfuglinn að löndum sínum eftir því sem þeir geta best. Hræður eru reistar, hús eru bygð og þangi er kastað upp á sker og utan með á eyjar. Að því er unnið í þessari ferð. — Það er kostur, að æðarfugl verpi í þangi. Þangdúnn er bestur af öllum æðardún. Hann virðist skemmast minst í hreiðr- unum, og það er best að hreinsa hann. Að þessu mun þó hafa verið gert meira áður en nú tíðkast. Þess má víða sjá vott í eyjum, að hreiður hafa verið gerð og smáhús hlaðin fyrir æðarfuglinn að verpa# í, en sem nú eru gróin og sokkin í jörð, og koma ekki að notum lengur. Þess munu og dæmi, að grjótgarðar hafa verið hlaðnir, einungis fyrir æðar- fuglinn að leita sjer skjóls undir og verpa meðfram. Enda er alkunnugt að æðarfugl sækist mjög eftir að verpa með fram nýhlöðnum görðum, er liggja nærri sjó í eyjum. Slíkar umbætur á varplöndum hafa ef- laust verið til bóta, enda fallegur siður. Æðarfuglinn er nýungagjarn og þykir vænt um að hlynt sje að honum, sje það gert af nærfærni og viti. Fleira er og haft í huga í þessari fyrstu vorferð í úteyjar. Meðan mikið var um refi, kom það fyrir, að þeir komu út í eyjar á ís að vetrinum og urðu þá stundum innligsa, er ísa leysti. Að þeim var vand- lega leitað og þeim bægt viðstöðulaust í burtu, og ekki Ijelt leitinni fyr en þeir voru að velli lagðir. Refur er hinn alversti vargur í varplöndum. — Gætt var og að hreiðrum krumma. Hann er enginn aufúsu- gestur í eyjunum um það leyti árs. Örninn er og hafður í huga. Ef sjetst til ferða hans, er venjulegt að »bræla*. Eldur er kyntur af þangi og öðru rusli, er gefur mikinn reyk. — Álitið er, að örninn fælist reyk og reykjarlykt meira en alt annað, og að hann komi ekki í nánd við þá staði, er brælt hefur verið á, langan tíma á eftir. Hrognkelsaveiði. Að þessari eyjaferð lokinni taka vorverkin við hvert af öðru. Eyjaferðin er einskonar inngangur að önnum vorsins. — Hrognkelsaveiði er í hverri ey í hrepnum. Víðast er stutt í lagnir og oft veiðist vel. Lagt er um eða stuttu eftir sumar- mál. Notkun hrognkelsanna er margvísleg. Þau eru borðuð ný, sjerstaklega rauðmaginn; hert, reykt og söltuð. Rauðmaginn þykir mörgum allra fiska bestur — sjerstaklega er hann ljúffengur nýr, eða þá reyktur. Dálítið hafa hrognkelsi, aðallega grásleppan, verið notuð til gripafóðurs. Kýr þykja mjólka vel af nýjum hrognkelsum (soðnum), og á tímabili var sauðfje gefið allmikið af hrognkelsa-úrgangi, sjerstaklega hrognum. — Hrognkelsaveiðin er aðallega stunduð framan af vorinu, þar til selveiði og æðarvarp byrja. Æðarvarp. Æðarfuglinn er óefað langsamlega arð- samasti fugl við íslandsstrendur. — Hvergi er meira varp í einum hreppi á landinu en í Flateyjarhreppi á Breiðafirði, enda er æðarvarpið þar til ákaflega mik- illa hlunninda. Árleg dúntekja mun vera um 300— 400 kg. Þegar vel vorar byrjar æðarfuglinn að verpa skömmu eftir sumarmál, en langmestur hluti hans verpir þó í 4. og 5. sumarvikunni. Talið er að allur æðarfugl sje orpinn 6 vikur af sumri og lætur það nærri, vilji ekki til stórhret um varptímann. En vilji svo til, að hret geri framan af varptímanum með fannkomu og frosti, kippir það mjög úr bráðasfa varp- inu og fuglinn er þá að verpa mikið lengur fram eftir sumri en ella. Það er venja þar í eyjunum, að »leita« varplöndin nokkrum sinnum yfir varptímann. — Fyrsta leit er farin, þegar fugl er um það bil hálf sestur upp. Þá er lagt af stað með fötur og poka undir dún og egg. Dúnn er að vísu lítið tekinn í þessari leit, en þetta er aðaleggjaleitin. Ekki er þó hægt að segja að mikil

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.