Óðinn - 01.01.1935, Page 33
O Ð I N N
33
Bjarni Ðjörnsson
skopleikari.
Hann er sá maður, sem nú fær besfa að-
sókn, bæði hjer í Reykjavík og víða úti um
land, þegar hann býðst til að skemta fólki.
Hjer í bænum hefur hann hvað eftir annað
sýnt listir sínar fyrir fullu húsi áheyrenda.
Hann hermir eftir mönnum, yrkir og syngur
gamanvísur um ýmislegt, sem fyrir kemur
og almenningur kannast vel við. Og menn
skemta sjer vel á þessum leiksýningum hans.
Einkum hafa menn nú að undanförnu haft
gaman af þingfundahöldum hans, er hann
hermir eftir þingmönnum, einum eftir annan,
og lætur þá hvern um sig halda stuttar
ræður. Einnig hafa menn gaman af skop-
vísnasöng hans. Hefur hann nú gefið út safn
af skopkvæðum eftir sig, og fást þau í bóka-
verslunum. — Nokkur ár dvaldi Bjarni
meðal íslendinga vestan hafs og sýndi þar
listir sínar, en kom heim hingað aftur 1930.
í Leikfjelagi Reykjavíkur hefur hann einnig
tekið að sjer nokkur hlutverk og þykir
góður Ieikari. — Gamanvísnakveðskapur og
söngur, af því tægi, sem Bjarni iðkar, er
ekki gamall hjer á landi, þ. e. Ijett og mein-
laust skop í leik og söng um menn og
málefni; ekki gert til þess að særa þá,
eða reita þá til reiði, sem fyrir verða, heldur
græskulaust, svo að þeir sjálfir eiga að geta
hlegið með og haft af leiknum góða skemtun.
Bjarni Björnsson skopleikari.
egg sjeu tekin, ef miðuð er við fuglatölu. Það er
undantekning ef tekin eru nema glæný egg. Og þar
sem jeg þekki best til, er ekki tekið nema 1 egg af
þremur, 1 af fjórum, 1 af fimm og 2 af sex, sje fugl-
inn nýr og að verpa; en sje það augljóst, að æðar-
kollan sje alorpin og eigi ekki nema 3 eða 4 egg,
þá er ekki snert við þeim hreiðrum til eggjatöku.
Svo er auðvitað mesti fjöldi af æðarfugli, sem ekkert
egg er tekið frá; því þegar ekki er farið oftar í varp-
löndin en að framan greinir, þá eru vitanlega ekki
öll hreiðrin ný þegar að er komið og halda þau þá
öllu sínu. Venja er að fara 3—4 leitir yfir varptim-
ann. Dúnn er aðallega tekinn í tveimur síðari leitun-
um. Síðasta leitin er nefnd »hroðaleit«. Hún er ekki
farin fyr en í lok varptímans. Þá eru öll eggin hreins-
uð að dúni, og sje þá eftir kolla á eggjum, er dúnn-
inn tekin frá henni, en aftur látið í hreiðrið þurt
þang, mosi eða annað slíkt til skjóls. —
Venjulega fara fjórar manneskjur í hverja leit. Á
meðan kvenfólkið var ekki orðið svo trylt í kaffi-
húsalíf og saltfisksþvott, sem það nú er orðið, hafði
það oftast veg og vanda af leitunum. Það þótti að
jafnaði vandvirknara og nærfarnara við fuglinn en
karlmenn. En nú er öld snúið; nú er kvenfólkið á-
reiðanlega í minni hluta í öllum sjóferðum á Breiða-
firði, og þá eins í leitunum. Best ef ein hræða flýtur
með bát, ef farið er í leit í hvítalogni og sólskini.
— Margt er breytt og með öðrum hætti nú en var