Óðinn - 01.01.1935, Síða 38

Óðinn - 01.01.1935, Síða 38
38 Ó Ð I N N og ekki nema svipur hjá sjón að sjá hann móts við það, sem hann er á sumrin í júlí og ágúst. Það ber við að farið er í selafar meðan selurinn liggur sem fastast og reynt að drepa hann uppi á skerjunum. Til útseladráps eru að eins valdir hinir færustu menn. Ferðir á útsker eftir útsel þykja einhverjar hinar mestu víkingaferðir, sem farnar eru nú á dög- um. En það er enginn hægðarleikur að komast að skerjunum án þess að selurinn verði þess var. Oftast er brim við skerin og sá grákollótti hefur jafnan vörð um sig þegar hann sefur. Hann treystir aldrei land- synningnum. Ekki mun heldur skorta viðbragðsflýti og örugga vörn, sje komið að honum óvörum. Heigl- um er ekki hent að eiga við hann nein skifti á þeim vettvangi. — Gömul munnmæli herma, að selurinn og svartbakurinn hafi gert með sjer svofeldan samn- ing: Svartbakurinn vakir á skerjunum meðan selurinn sefur og gerir honum aðvart, ef hættu ber að hönd- um, með háværum hljóðum og miklu flugi, en hlýtur að launum fiskslor og lifur hjá selnum þegar hann er á veiðum. — Þannig vakir hvað yfir öðru í nátt- úrunni til að varast yfirvofandi hættur, sjerstaklega til að varast hinn eina skæða óvin alls dýralífs á jörð- unni — manninn. Að vopni í slíkt selafar eru hafðir alllangir og þungir keppir með 2—3 járngöddum í endanum. En það gildir þar sem víðar, að rögum manni þýðir ekki að hafa langt vopn. Hitt er aðalatriðið, að maðurinn sje öruggur og höggviss. — Þegar selurinn verður var við mannaferðina, hendist hann ofan af skerjun- um, blásandi, hvæsandi af heift og hræðslu, æðir á hvað sem fyrir er og beitir kjaftinum fyrir sig eftir því sem hann kemur honum við. Þá gildir það, að þora að beita kepnum og slá rjett, annars er veiðin töpuð og maðurinn hlýtur enga frægð af frammistöð- unni. — Annars held jeg, að þessar ferðir sjeu farn- ar meir til frægðar en fjár, því oftast mun veiðin vera lítil — máske 3 — 4 selir í ferð — en vitanlega eru þeir stórir og gefa mikla átu og sterka húð. Þættina hjer að framan úr atvinnulífinu í Breiða- fjarðareyjum hef jeg nefnt vorannir. Jeg hef um það fylgt gamaili málvenju í eyjunum. Það er þó að vísu svo, að öll störfin, sem að framan eru nefnd, eru ekki unnin að vordögum, eins og þættirnir líka bera með sjer. En langmestur hluti þeirra eru þó vor- verk, að undanskildu uppidrápinu og fuglatekjunni að nokkru leyti. Það eru mörg störf, sem kalla að á sama tíma í eyjunum á vorin, bæði fólksfrek og seinunnin. Má þar einkum tilnefna dúnleitir og selalagnir, ávinslu á túnum og hreinsun, auk margskonar ferðalaga, svo sem fjárflutninga o. fl., sem að nokkru verður getið síðar. Vinnutími hefur og heldur ekki verið reglu- bundinn eða miðaður við 8 eða 9 tíma sólarhring, fremur en annarsstaðar, þar sem afkoma manna bygg- ist á sjósókn. Sæta verður líka sjávarfölíum yfirleitt við sjóferðir á Breiðafirði sökum mikils útfyris og harðra strauma. En fjölbreytt vinna og langur dagur gerir lífið ljett, þrátt fyrir mikla vinnu — og oft erfiða. © Sjera Friðrik Friðriksson: Starfsárin II. Heima. Daginn eftir komu mína var sunnudagur og fór jeg í kirkju, og fanst mjer hátíðlegt að hlýða messu á móðurmáli mínu. Eftir messu þyrftust margir vinir um mig og fögnuðu mjer svo hjartanlega, að mjer fanst jeg verða hálf sneiptur af því, að hafa verið svo lengi í burtu. Jón docent Helgason fagnaði mjer vel og kvaðst hafa verið orðinn mjer afar reiður, en sjer hefði þegar runnið reiðin, er hann kom auga á mig í kirkjunni. Þegar jeg fór nú að grenslast eftir, hvernig fjelagið stæði, fann jeg að það var ekki eins vel statt og jeg hafði átt von á. Vngri deildin hafði Iegið alveg niðri, og engir fundir verið haldnir þar. Aðaldeildin hjarði, en mjer var sagt af mörgum, að eftir væru aðeins fáeinir, hinir trúföstustu, og væri fundarsókn afar treg. Sumir vildu telja mjer trú um, að dagar fjelagsins væru þá og þegar taldir, því upp væri risinn annar æskulýðsfjelagsskapur, sem hertæki hugi allra ungra manna og unglinga. Þau fjelög væru kölluð ungmennafjelög; væru þau rekin með miklu kappi og fjöri, hefðu kristilega stefnuskrá, væru afar þjóðleg og skipuðu sjer um ýms mentamál og fram- farir. í þeim fjelagsskap sameinaðist alt gott og nyt- samlegt.og hann hrifi hugi allra ungra íslendinga. Þeir hjeldu þar þjóðlega og fræðandi fyrirlestra, beittu sjer fyrir íþróttum t. d. sundi, og væru að koma upp skíðabraut og sundskála, iðkuðu glímur og annað, sem laðaði hugina; enda hefði fjöldi ungra manna úr K. F. U. M. gengið inn í þann fjelagsskap; í K. F. U. M. væru eftir nokkrar þröngsýnar eftirlegukindur.

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.