Óðinn - 01.01.1935, Síða 41

Óðinn - 01.01.1935, Síða 41
Ó Ð I N N 41 alt á sömu leið. Það kom ekki einn einasti ungling- ur. Eins fór miðvikudaginn þann 18. nóv. Svo leið sú vika. ]eg fann að það væri eiginlega dauðadómur á fjelagið í heild sinni, ef jeg biði ósigur á þessu svæði. En jeg einsetti mjer að gefast ekki upp, því jeg trúði á sigurinn. Svo kom kvöldið 25. nóv. Það var vont veður, hríðarjagandi og jeljagangnr. Salur- inn var tilbúinn að vanda, en af því veðrið var svona slæmt, hafði jeg vanrækt að búa mig undir ræðu. Þegar klukkan var 8ty2 og enginn var kominn, ljet jeg vera að kveikja ljósin og sat aleinn á lestrarstof- unni, en inn á bókasafni sátu tveir ungir menn og voru að lesa ensku. Svo heyri jeg fótatak í stigan- um, barið er að dyrum og unglingspiltur kemur inn og spyr, hvort ekki ætti að vera samkoma. ]eg svara, að svo sje, og læt hann setjast niður. Síðan kom ann- ar, þriðji og fjórði. Taldi jeg þá fundarfært. ]eg hjelt fundinn og talaði um töluna 4. Síðan spurði jeg þessa 4, hvort þeir vildu og þyrðu að stofna unglingadeild í fjelaginu. Þeir gáfu því samþykki. Kallaði jeg þá á ungu mennina, sem voru inni á bókasafni, og stofn- aði svo í guðsnafni þessa deild. Vil jeg gjarnan nefna nöfn þessara pilta, því að koma þeirra hafði svo mikla þýðingu fyrir mig. Þeir komu með sólskin inn í líf mitt. Þeir hjetu Ingvar Arnason, Hallur Þorleifsson, Filippus Guðmundsson og Bergur Thorberg Þor- bergsson, en skírnarvottar deildarinnar voru þeir ]úl- íus Árnason og Sigurbjörn Þorkelsson. Eru þessir allir enn þá í fjelaginu, sumir af þeim starfandi menn, kunnir í bæjarfjelaginu og koma mikið bæði við mína sögu og fjelagsins. Upp frá þessu auglýsti jeg ekki fundina, en þessir fyrstu urðu að auglýsingu, svo að deildin dafnaði með hverjum fundi, og varð mjög á- hrifamikil fyrir vöxt fjelagsins í heild sinni. Alt fór nú að fá á sig gleðiblæ, en þó voru margir af hin- um eldri, sem kvörtuðu um að daufast væri yfir að- aldeildinni, en jeg huggaði þá og mig með því að segja, að ekki kæmi reglulegt fjör í A-d., aðaldeild- ina, fyr en unglingadeildin færi að senda þangað 17 ára pilta til að yngja fjelagið upp. — Þennan vetur lifði jeg því mjög glöðu lífi. Móðir mín var vel heil- brigð og varð meir og meir eins og móðir allra fje- lagsmanna, og urðu fjölda margir til þess að bæta henni upp það, er á skorti að jeg gæti verið henni til fulls unaðar. Hamlaði því hið vaxandi fjelags- starf og allmikil kensla. ]eg hafði einnig á hendi ýms störf við húsið, að hugsa um ræstingu fundar- salanna og gæta olíulampanna og fleira þess háttar. ]eg var svo heppinn að fá hjálpardreng til þeirra starfa, Filippus Guðmundsson, og var hann vikapilt- ur minn um veturinn og reyndist mjög vel. Hann varð mjer eins og sonur og hefur vinátta okkar hald- ist alt til þessa. Eftir nýár bar ekkert sjerlegt til tíð- inda. Starfið var nú komið í fastar skorður og yngri deildirnar uxu hröðum skrefum, og var mjer mikið yndi að unglingadeildinni, því líf og gleði var yfir starfinu og minnist jeg með gleði margra pilta, sem þá komu og fyltu flokkinn með áhuga. Af öllum fundum þóttu mjer fundirnir skemmtilegastir í U-D. Enginn aldur kann eins vel að hlusta og unglinga- aldurinn. Og fanst mjer eftirtekt og athygli piltanna gefa mjer eins og nýjan þrótt, og vekja hjá sjálfum mjer blundandi krafta og gefa fölleitum hugsjónum nýjan fegurðarblæ. ]eg varð að lesa allmikið til þess að hafa efni til þessara funda. ]eg minnist enn með gleði margra slíkra funda, og unaðsins við að búa mig undir þá og halda erindi eða biblíuútskýringar. Það var eins og almanakið þann vetur kæmi mjer til hjálpar. Miðvikudagana bar þá oft upp á einhverja merkisdaga. Þriðji febr. er minningardagur St. Ans- gariusar, það var miðvikudagur þá, og talaði jeg um St. Ansgar; þá var upptökufundur líka og inn gengu nokkrir pilíar úr Latínuskólanum. Á næstu miðviku- dögum komu svo margir nýir, að jeg þurfíi að taka aftur inn nýja fjelaga á síðasta fundi mánaðarins, og gengu inn í unglingadeildina þann mánuð 24 piltar, og fengu sumir þeirra seinna meir mikla persónulega þýðingu fyrir mig, og eru nú starfandi menn í fjelag- inu. Lyfti öll þessi velgengni mjer upp og jók lífs- þrótt minn. ]eg minnist líka ávalt með sjerstökum fögnuði miðvikudagsins 3. marz; þá var foreldrum drengjanna boðið á fund og var það allfjölmennur fundur. Þann dag bar upp á ]ónsmessu Hólabiskups hina fyrri, voru þá liðin 709 ár frá því, er helgur dómur hans var upp tekinn. ]eg hjelt erindi um ]ón Ögmundsson og bjó mig eins vel undir það og jeg gat. Á milli funda fjekk jeg oft heimsókn af þessum æskumönnum og var oft fjörugt og skemtilegt á þeim stundum. Margir unnu og skák og iðkuðu hana vel, eða höfðu samtöl um ýms áhugamál. Bókasafnið var vel notað og mikið kapp lagt á lestur í íslendinga- sögum. — Njála og Laxdæla voru lesnar og ræddar af miklum áhuga. Það var einu sinni tilrætt um, hvernig á því stæði að Kapitola, reifarasagan, væri höfð á safninu. Hún hafði slæðst inn án þess að jeg vissi. ]eg sagði að hún væri á safninu til þess að hægt væri að sjá hverjir væru svo vitlausir og smekk- lausir að lesa hana, en láta Njálu liggja ólesna, og aðrar góðar bækur. Þennan vetur var talsverð söngalda innan yngri

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.