Óðinn - 01.01.1935, Síða 43

Óðinn - 01.01.1935, Síða 43
Ó Ð I N N 43 fjekk þó oft aðra ræðumenn. Á mánudögum og þriðju- dögum vóru biblíu-samlestrar, sinn flokkurinn hvorn daginn. Á þeim samlestrum græddi jeg mikið, eink- um með tilliti til efnis í ræður og uppbyggileg erindi. Á miðvikudagskvöldum vóru fundir í U-D. ]eg hlakk- aði alla vikuna til þeirra funda. Það var eins og sjálfur fengi jeg við þá fundi aukinn þrótt. Það var líka oft svo skemtilegt á undan fundunum, meðan piltarnir voru að safnast saman, og fást við að tefla eða tala saman í flokkum og gera að gamni sínu. Þá var gaman að vera í þrönginni og taka eftir hreyfingum og töktum og einkennileikum hinna einstöku, án þess þeir yrðu varir við að þeir stæðu fyrir andlegri myndavjel. Var hægt að læra margt af gamni þeirra eða ertni og meinlausri stríðni hjá þeim innbyrðis. Gat það, sem maður lærði á slíkum stundum, oft komið að góðu gagni, til þess að vinna á móti agnú- um og styðja kosti, svo að segja án þess að þeir vissu af því sjálfir að verið var að eiga við þá per- sónulega. Þurfti oft og einatt ekki nema eina setn- ingu, sem sögð var eins og tilgangslaust, til þess í kyrþei að vekja athygli þeirra á einhverju sjerstöku í fari þeirra eða framkomu, án þess að þeir fyndu að við þá væri átt. — Svo þegar inn á fundinn kom og piltarnir vóru komnir í sæti, var einnig fróðlegt að taka eftir og »stúderac hina opnu bók og lesa þar milli línanna. Hvernig þeir sungu og stellingar þeirra undir söngnum, svipbrigði og ýmsir smámunir, mismunurinn á hinni glaðvakandi og hinni sofandi eftirtekt undir ræðum eða erindum, alt þetta gaf efni til íhugunar og leiðbeiningar. En fegurst af öllu var að sjá þegar »sálin var að vakna*, sjá vaxandi morgunroða smámsaman læðast inn í meðvitundina og boða komandi dag í sjálfsvitundinni um afstöðu sína til sjálfs sín og til Gnðs og manna. Þá reið á fyrir leiðtogann að hafa sjálfsafneitun til þess að halda sjer frá að grípa inn í, í ótíma, en vera til taks til hjálpar eða leiðbeiningar, er leitað væri. Alt þetta gerir starfið meðal hinna ungu svo unaðsfult og um leið oft sársaukakent, að því verður varla lýst. Aldrei líður mjer úr minni einn fundur í U-D þann vetur. Tildrögin vóru þau, er nú skal greina: Á ein- hverju uppboði hafði jeg endur fyrir löngu keypt bunka af gömlum bókum. Jeg rekst svo einn dag af tilviljun (hafi það þá verið tilviljun) á eina skræðu fornfálega mjög. Það vóru sorgarleikir Sophoklesar á grísku. ]eg fór að blaða í henni og tek þá eftir að neðan undir gríska textanum, sem mjer var óvið- ráðanlegur, var fullkomin þýðing á latínu. ]eg tók mig svo til og las þessa latnesku þýðingu á sorgarleikn- um »Oedipus tyrannus*. ]eg las hana ekki vandlega, en þó svo að jeg komst að efninu. Skömmu síðar fór jeg einn miðvikudag suður að Vífilsstöðum, dvald- ist mjer þar svo lengi hjá Sigurði lækni vini mínum, að jeg komst heim rjett svo að jeg gat sett fund í tíma með því að hlaupa alla leiðina. Þegar jeg var búinn að til taka fyrsta sönginn og byrjað var að syngja, fór jeg að hugsa um, hvað jeg ætti að segja drengjunum, því jeg hafði ekki búið mig undir neitt vegna oflangrar dvalar á Vífilsstöðum. Mjer datt þá Oedipus í hug og meðan verið var að syngja söng- inn eftir bænina, fór jeg niður í kjallara og náði í bókina. Svo las jeg hinn mikla harmleik upp eins vel og jeg gat, eftir stuttan formála. Það má nærri geta, að þýðing mín á latínunni var ekkert snildarverk, en það hjálpaði nokkuð að jeg var sveittur og ör eftir gönguna. ]eg var svo bundinn við bókina að jeg gat ekki litið á áheyrendurna, en fann þó að jeg hafði athyglina með mjer. Svo í síðasta þætti varð mjer samt litið upp, því jeg fann að kyrðin var svo þrungin af eftirvæntingu. Þá mætti mjer sú sýn, er jeg sje enn fyrir mjer: Haf af augum, er blíndu á mig, full af tárum, sem ekki einu sinni var reynt að dylja. Það var eins og allir hjeldu andanum niðri. Það rann líka út í fyrir mjer, er jeg svo sá í lestrinum fyrir mjer hinn blindaða konung koma út úr höllinni með andlitið alblóðugt og hefja sínar síðustu átakanlegu harmatölur. Svo fjell tjaldið. Drengirnir sátu eins og agndoða, enginn hreyfði hendurnar til að klappa, og það þótti mjer vænt um. Jeg talaði svo hægt og lágt í nokkrar mínútur um mismuninn á trúnni á þá guði, sem jafnvel knýðu göfuga sál út í glæpi og hinar hræðilegustu afleiðingar þeirra, og svo á vorum kær- leiksríka föður á himnum. Svo var þessum fundi slitið. — Brennandi þakklæti svall í hjarta mínu, því að jeg fann að þetta var sjerstök gjöf, og jeg veit að engin prjedikun hefði haft eins mikil áhrif á hugina og þessi meir en tvö þúsund ára gamli sorgarleikur. Drengirnir rómuðu þetta kvöld svo mjög, að jeg var beðinn um að gefa þetta sama á aðaldeildar- fundi. Og er drengirnir í Unglingadeildinni komust að því, að lesa ætti Oedipus upp þar, báðu margir um að mega koma á þann fund, til þess að heyra sjónleikinn lesinn aftur. Það fengu þeir auðvitað. En þótt jeg hefði undirbúið mig rækilega undir þann fund, þá vantaði eitthvað til þess að áhrifin yrðu jafn mikil. — Jeg gat ekki stilt mig um að skýra svona nákvæmlega frá þessum fundi. í desember dó biskup Hallgrímur Sveinsson og átti jeg þar að minnast manns, sem sífelt hafði verið

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.