Óðinn - 01.01.1935, Síða 46

Óðinn - 01.01.1935, Síða 46
46 Ó Ð I N N alúðleg og eins börn þeirra. Sjerstaklega hafði jeg mesta yndi af að kynnast syni hans, Friðriki Theodór, litlum og ljúfum dreng, sem hændist fljótt að mjer. Fanst mjer stundin líða alt of fljótt, og hefði gjarnan viljað vera þar miklu lengnr. — En eins og vant er að vera, varð maður að fara, og láta margt ósagt og óspurt, er gamlir vinir vilja fregna og heyra af högum hvor annars, eftir langt bil funda milli. — Húsfreyjan á Melum og Bjarni vóru með í förinni, og jók það mjög á skemtun fararinnar. Við komum að Kjörseyri og mátti þar sjá myndarbrag á öllu. Heim að Melum komum við ekki fyr en seint um kvöldið. Frá Melum hjeldum við Ingólfur því næst að Mel- stað. Þar töfðum við á aðra viku, því að sjera Eyj- ólfur vildi ekki sleppa mjer að sinni, og var þó ærið mannmargt á Melstað fyrir. Þar var hinn mesti grúi af börnum, einir sjö drengir, og, fyrir utan hið fasta heimilisfólk, suinarmenn, er voru að gera steinsteypu- hús, og var þar yfirsmiður, kær maður og skemti- legur, Einar Finnsson; þetta voru nautnaríkir dagar innan um allan þennan frændahóp; við sjera Eyjólfur vorum þremenningar að frændsemi. Elsti sonur hans, Halldór, var mjer þar að auki kunnugur áður og ástfólginn mjög, því að hann var einn úr úrvaldsliði unglingadeildarinnar í Rvík, í flokki þeirra áhuga- sömustu latínuskólapilta, er veturinn áður höfðu rækt fundina í U-D. — Einn dag riðum við fram að Bjargi, því þar átti Ingólfur litli frændfólk og varð hann þar eftir. Mig greip þar áköf hrifning, er jeg hugsaði um, að þar hafði Grettir Ásmundsson lifað æskudaga sína. Runnu upp fyrir mjer sýnir um Gretti, og líf hans og spakmæli. — Mjer finst ávalt að jeg fari auðg- aður frá þeim stöðum, er jeg þekki úr fornsögunum. Það er eins og sjálfir staðirnir haldi þeim sið for- feðranna, að leysa gesti út með gjöfum. Sunnudaginn eftir komu mína riðum við inn að Núpi og höfðum þar messugerð, það er annexía í hinu víðlenda prestakalli, er samsett er úr tveimur prestaköllum, Melstaðar og Staðarbakka. — Síðdegis var samkoma í kirkjunni á Melstað, meðal þeirra er komu þar til kirkju var heyrnarlaus og mállaus dreng- ur frá Búrfelli, sem hjet Tryggvi Jónsson. Jeg þekti hann, því að hann var nemandi á Daufdumbraskól- anum í Reykjavík, sjerlega gáfaður piltur og vel gefinn. Jeg hafði um vorið verið prófdómari við skólann og komið þar oft um veturinn, og um vorið, meðan jeg var að búa þar tvo pilta undir fermingu, og hafði jeg lagt mig eftir fingramáli, en prófið fór fram skrif- lega. — Mjer þótti vænt um að sjá þennan dreng, því hann var mjög hændur að mjer, og hafði jeg fundið, að hann var óvenjulega fljótur að átta sig á öllu. — Hann átti um þessar mundir að fara suður ásamt einhverju öðru fólki, og var ákveðið, að það yrði mjer samferða. Jeg var enn um nokkra daga á Melstað, og kveið fyrir að fara þaðan, því bæði þótti mjer skemtilegt að vera sem lengst að samvistum við prestinn og Halldór, og svo undi jeg svo vel með öllum drengj- unum litlu, þeir vildu alt af vera í kringum mig, sjerstaklega Þorvaldur, þá um 7 ára. Jeg fór að smá segja honum ýms nöfn og setningar á latínu, og leitst mjer svo vel á hann, að jeg hefði feginn viljað fá hann í fóstur, ef kringumstæður hefðu leyft. — En að burtfarardegi leið og varð ekki við það ráðið. Jeg mun ætíð minnast þessarar veru minnar með þakklæti. Jeg dáðist þar að svo mörgu, sem jeg sá og heyrði. Jeg dáðist líka að dugnaði prestkonunnar, Þóreyjar Bjarnadóttur frá Reykhólum, og að umsjá hennar fyrir hinum mikla barnaflokki, ásamt stór- kostlegum heimilisönnum og miklum gestagangi. Við Ingólfur lögðum af stað snemma morguns og áttum að hitta samferðafólkið á Grænumýrartungu; en við fórum nokkuð á undan því, til þess að hafa betri tíma að tefja á Melum. Þar var okkur aftur vel fagnað, og tók Jósep hest til þess að ríða með mjer fram undir heiði. Það var foli, fjörugur og lítt taminn, sem hann reið. Hugsaði jeg gott til skemti- legrar reiðar fram sljetta melana. Þegar komið var nokkuð fram á leið, vildi svo til að folinn tók alt í einu viðbragð og þaut áfram eins og elding, tóku þá hestar okkar Ingólfs til fótanna og varð úr þessu hinn mesti sprettur. Ingólfur reið á fjöruga klárnum og varð jeg dauðhræddur um hann, því að hestur- inn gat verið svo gapalegur. Jeg knúði því reiðina sem mest jeg mátti, en alt í einu kollsteyptist hest- urinn undir mjer og jeg hentist langa leið fram af honum á höfuðið og slengdist svo niður á melinn. Jeg lá þar kyr litla stund og leið mjer afar-vel; jeg fann einhverja vellíðan um mig allan og hugsaði mjer að sofna örlitla stund, en þá mundi jeg eftir þeim Jósep og datt í hug, að þeir yrðu hræddir, ef jeg lægi kyr, og hristi jeg mókið af mjer og stóð upp til þess að sýna þeim, að jeg væri lifandi og ætlaði svo að leggja mig fyrir aftur. Jeg stóð upp og þá rann víman af mjer. Þeir komu svo til mín og spurðu, hvort jeg hefði meitt mig. Jeg kvað nei við og náði í hest minn og settist á bak. Við riðum svo þjettings- reið þangað til við náðum samferðafólkinu, en þá var hlaupin upp stór kúla vinstra megin á enni mjer. Við Jósep skildum með mikilli vináttu. Jeg varð

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.