Alþýðublaðið - 16.10.1963, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 16.10.1963, Blaðsíða 1
1 44. árg. — Miðvikudagur 16. október 1963 — 224. tbl. VMMMUMHIHMMMUUMMW MUNAÐI MIÓU Vilhjálmur Stefánsson horfir á rúðuna — brotna eft ir skotið, sem enn ér ekki vit að hvaðan kom. Söá nánar á baksíðu. — 220 verkamanna- bústaðir í smíðum 220 IBÚÐIR í verkamannabústöð- um eru nú í smíðum víðs vegar um landið samkvæmt þeim lánsloforð um, sem Byggingasjóður verka- manna hefur gefið á síðastliðn- um 12—14 mánuðum. Veitir sjóð- urinn lán jafnóðum og byggingum miðar áfram, allt að 300.000 krón- EGGERT G. ÞORSTEINSSON um. Þannig verður alls veitt 60 milljónum króna í liagstæðum lánum til þessara íbúða, sem eru eingöngu fyrir tekjulágar fjöl- skyldur. Frá þessu skýrði Eggert G. Þorsteinsscn alþingismaður í við tali við blaðið, en hann er for- maður stjórnar byggingasjóðsins. Kvað hann sjóðinn nú hafa lán- að til íbúðabygginga á 35 stöð- um á landinu. Eggert sagði, að það mundi gilda um alla, sem fá þessar í- búðir, að þeir mundu ekki geta eienazt íbúðir á annan hátt. Eftir síðustu umbætur á löggjöfinni um verkamannabústaði, sem gerð var að tilhlútan núverandi ríkis- stiórnar, hafa lánin verið hækk- uð upp í allt að 300.000 krónur á ibúð og hafa alltaf, síðan lögin tóku gildi verið veitt hámarks- lán. Jafnframt var breytt því tekjumarki, sem lánveitingar eru háðar. Verkamannabú.staðir eru ætlaðir rúmlega 10% af tekju- lægstu fjölskyldunum, og mega hjón með þrjú börn nú ekki hafa yfir 95.000 krónur í tekjur til að fá verkamannabústað. Nánar til- tekið er tekjumarkið í lögunum 65.000 fyrir hjón og 5000 fyrir hvert bara, en síðan er bætt við 20% fyrir þeim launabreyting- um, sem orðið hafa síðan Iögin voru sett. í seinni tíð hafa þess sézt nokkur merki, að sjómenn í út- gerðarbæjum hafa farið yfir tekjumarkið, en samt er aðsókn í lán til verkamannabústaða mikil. Atvinnutryggingasjóður hef- ur verið mikil hjálþarhella við fjárútvegun til verkamannabú- staða, hélt Eggert áfram. Lánaði sjóðurinn 8 milljónir 1958 og aftur Framh. á 15 síðu. Ólögleg sala á ís- lenzkum krónum Reykjavík 15. okt. — EG Uppvíst er, að nú í sumar hef- ur allmikið af íslenzkum pening- um verið seft erlendis í trássi við íslenzk bankayfirvöld. Er hér um allstóra fjárfúlgru að ræða, eða hátt á ajöunda hundrað þúsund kjrónur. Samkvæmt ístemfcum lögum er ferðamönnum heimift að flytja úr landi islenzkar krónur, og þó aðeins lágar upphæðir. Seðiabaínk^nn ^inn gitnfr leyft, að íslcnzkir peningar séu fluttir úr landi í ríkara mæli, en tögin segja fyrir mn. Það var gjaldeyris eftirlitið, sem komst að þessu, og er málið nú í höndum rannsókn- arlögreglunnar. í fyrrj viku varð lögbrot þðtta uppvíst. Vitað er, að í sumar voru seldar erdenidia, í tvonnu lagi, 650 þúsund íslenzkar krónur Fyrstu útvarpsum- ræður frá Alþingi n.k. þriðjudag FVRSTU útvarpsumræður vetrar- ins frá Alþingi fara fram þriðju- daginn í næstu viku, 22. þessa mánaöar. Verður þetta fyrsta um- ræða um f járlög. Fylgir fjármála- ráðherra, Gunnar Thoroddsen, frumvarpinu úr hlaði, en síðan tala fulltrúar hinna flokkanna í hálftíma hver, og loks fær ráð- lierrann að svara. Helsingfors KEKKONEN forseti samþykkti í dag tillögu frá Karjalainen forsæt- isráðherra um að ákvörðun um líf ríkisstjórnarinnar skuli enn um sinn slegið á frest. Þýðir þetta að beiðni ráðherrans síðastliðinn föstudag um að honum verði ekki falin ný stjórnarmyndun, hefur verið dregin tilbaka. Er ástæðan sú, að finnski Folkepartiet hefur ákveðið að taka þátt í stjórnmynd- unarviðræðum. tW%MMMMMMMMMMMMMMMMMMM%%MMMM%MMMMM»i FRAMB SUM ÚTVARPAÐ LÍKLEGT ER, að framboðs- messum umsækjenda um preste embætti verði á næstunní út- varpaö um sérstakar miðbylgju stöðvar, eins og framboðsfund- um hefur verið útvarpað utan Reykjavíkur. Biskup íslands hefur Ieitað eftir samþykki Ríkisútvarpsins fyrir slíku útvarpi með tilliti til þess, hve margar prestskosn ingar eru framundan i höfuð- staðnum. Eru þar tólf frambjóð endur, svo að væntanlega verð- ur útvarpað tólf framboðsmess- um Útvarp ems og tíökazt hefur af framboðsfunduni utan Reykjavíkur og Akureyrar, fer þannig fram, að Landssíminn leigir litla sendistöð (bátastöð) og er útvarpað beint af fundar- eða messustað. Má þvi búast við, að messur verði á mörgurn bylgjulengdum, þegar kosning- ar nálgast. í sjálfri útvarpsdag- skránni verða aðeins venjuleg- ar útvarpsmessur. Rannsókn málsins er enn á frum- stigi og vilja opinberir aðilar lítt láta eftir sér hafa um það. Viesa mun þó vera fyrir því, að hér sé um að ræða einstakling, eSa ein- staklinga, en ekki stofnun eða íyrirtæki. 5 Kunnugir telja, að hér hafi verið um að ræða ótta við gengisfellingu eða tilraun til að græða á gengis- mun, ef til gengisfellingar kæmi. Samkvæmt íslenzkum lögum mega ferðamenn búsettir hér á landi, hafa með sér 2500 ísl. kr. til útlandp, og útlendir ferða- menn mega hafa með sér hingað 5000 krónur og mega fara héðan með 2500 lcr. ísl. Þessar reglur voru settar 1. júli 1962, en íyrxr þann tíma, mátti enginn fara með íslenzkar krónur úr lar.di rié flytja þær inn í landið. Þesg skal getið, að þessar ferðamannareglur gilda ekki um flugmenn eða sjó- menn á millilandaskipum. Þeim er óheimilt að flytja íslenzha pen- mga úr landi. Seðlabankimi einn getur veitt undanþágu frá J>essum reglum. Skemmst er þess að minr.ast, er íslenzka krónan var ekki í háu á- liti, sem gjaldmiðill hjá erlendum peningastofnunum. í dag er á- standið hins vegar þannig, að ís- lenzkir ferðamenn geta skipt ís- lenzkum peningum í r.æstum hvaða banka sem er erlendis fyrir lítið eitt hærra verð, en fari skipt in fram í banka hér. í Danmörku fást nú t.d. 15.25 danskar krónur fyrir 100 kr. íslenzkar, sem er mjög nærri því að vera akráð gengi. MMMMMMMMMMMMMWMW MMMMMMMMMMMMM*MMMMMMMMMMMMMMMM*MM DÓMUR I GEIRSMÁLI Reykjavík, 15. okt. - EG í KVÖLD var kveðinn upp í Saka dómi Reykjavíkur dómur í máll skipstjórans á bv. Geir, en togar- inn var sem kunnugt er tekinn þar sem hann var að meintum ó- löglegum veiðum innan fiskveiði- takmarkanna norðvestur af Garff- skaga. Dómur féll á þá lund, aff skipstjóra var gert að greiða 269 þúsund króna sekt, og afli og veiö- arfæri voru gerð upptæk. Logi Eta arsson yfirsakadómari kvað upp dóminn. Skipstjóri áfrýjaði dómnum. j Algeirsborg BEN BELLA forsætisráðheiTa Al- sír liefur kvatt alla hermeon í frelsisher Alsír til vopna og enn- fremur fyrrverandi hermenn. Er hér um almenna hervæðingu aff ræða vegna bardaganna á landa- mærum Alsír og Marokkó. Be» Bella hélt ræðu á torgi einu I Al- geirsborg í kvöld og var henni fagnað mjög af gífurlegum m»nn- fjölda. t

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.