Alþýðublaðið - 16.10.1963, Page 7
KASTLJÓS
f
HINN 1. október sl. varð Nígería
lýðveldi. En ekki voru mikil há-
tíðahöld af því tilefni eins og fyrir
þrem árum þegar landið hlaut
sjálfstæði. Tímamót þessi ein-
kennöust þvert á móti af ólgu í
ínnanlandsmálum, deilum og sund
urþykkni.
Verkalýðsfélögin létu óánægja
sína í ljós með því að gera verk-
fall. Járnbrautarlestirnar stóðu
kyrrar og í höfuðborginni Lagos
lögðust samgöngur niður, svo og
önnur vinna. Verkalýðsfélögin,
sem hafa annars ekki verið mjög
vel skipulögð, sýndu þannig óá-
nægju sína vegna lágra launa
verkamanna, en stjórnmálaforingj
arnir halda sig aftur á móti alltof
ríkmannlega að margra áliti.
Dr. Azikiwe, sem er almennt
kallaður Zik, var skipaður forseti,
en meðan þessu fór fram sat leið-
togi stjórnarandstöðunnar, Chief
Awolowo, í fangelsi, þar sem hann
hefur verið dæmdur til að ’sitja í
tíu ár. Einn af nánustu samstarfs-
mönnum hans, Chief Enaharo,
hefur verið dæmdur í 15 ára fang-
elsi.
Það var Enaharo, sem vakti hið
mikla umtal í Bretlandi. Hann
dvaldist þar sem pólitískur flótta-
maður. íhaldsstjómin varð að láta
undan kröfum Nígeríu-stjórnar og
framseldi hann.
NIGERIA
Baksvið stjórnmáladeilnanna er,
að Nígería er skipt í þrjú fylki. í
Norður-Nígeríu, sem er fjölmenn-
asta fylkið, ráða múhameðskir em-
írar í stjórnmálunum, og íhalds-
flokkurinn Northern Pcople’s Con-
gress (NPC) hefur yfirgnæfandi
meirihluta fulltrúa á fylkisþing-
inu.
í Austur-Nígeríu er það National
Convention of Nigerian Citizens
(NCNC), sem öllu ræður í stjórn-
málunum. Flokkurinn fær aðal-
stuðning sinn frá Ibo-ættflokkn-
um og má teljast mjög framfara-
sinnaður stjórnmálaflokkur.
NPC og NCNC standa að sam-
steypustjórninni í Nígeríu. Action
Group, sem hafði mikinn meiri-
hluta að baki í Vestur-Nígeríu og
er í rauninni áhrifamestur í Lagos,
var í stjórnarandstöðu á þingi
landsins. Action Group byggði
stefnu sína á sósíal-demókratískri
hugmyndafræði og var framfara-
sinnaður flokkur.
Foringi flokksins, Chief Awolo-
wo, kaus hins vegar að verða fór-
ingi stjórnarandstöðunnar á sam-
bandsþinginu, en hann lét Chief
Akintoia verða forsætisráðherra
fylkisstjórnarinnar í Vestur-Ní-
geríu. Deila reis upp með þeim
tvímenningunum, og Akintola var
vikið úr embætti forsætisráðherra.
Mikil ólga var á þinginu þegar
Akintola neitaði að láta af emb-
ætti forsætisráðherra og sam-
bandsstjórnin notaði tækifærið til
þess að lýsa yfir neyðarástandi í
Vestur-Nígeríu og varpa Akintola
í fangelsi á nýjan leik. Nokkrir for
ingjar Action Group voru hand-
teknir.
Dr. Benjamín Nnamdi Azikwe
Seinna voru þeir áLærðir fyrir
að hafa eytt af almannafé til flokks
starfsemi og eigin nota. Awolowa
var einnig ákærður fyrir að hafa
sent menn til Ghana, þar sem
þeir voru sagðir hafa fengið þjálf-
un í hernaði, í því skyni að gera
byltingu í Nígeríu.
Réttarhöldin í þessu máli liafa
dregizt mjög á langinn, en nú
sitja Awolowo og margir félagar
hans á bak við lás og slá.
Erfitt er að segja nokkuð um
en margt bendir til þess, að hand-
tökurnar hafi verið gerðar í því
skyni að gera áhrif stjórnarand-
stöðunnar að engu. Því er að
réttarhöldin og baksvið dómanna,
minnsta kosti haldið fram, að
spilling sé ekki einstæð fyrir Ac-
tion Group. Sagt er, að sama eigi
sér stað í öllum flokkum.
Meðal annars er bent á það, að
þingmenn í Nígeríu séu betur
launaðir en starfsbræður þeirra í
Bretlandi og þeir græði vænan
skilding af „dash” — þóknun —
frá erlendum fyrirtækjum og inn-
lendum verktökum.
Action Group-flokkurinn er ekki
bannaður en hann á í erfiðleikum,
þar sem flestir foringjarnir sitja
í fangelsi. Chief Akintola hefur
einnig sagt sig úr flokknum og
stofnað eigin stjómmálaflokk,
United People’s Party, en þeim
flokki hefur ekki tekizt að kom-
ast til áhrifa. Samsteypustjórninni
hefur tekizt að eyða áhrifum
stjórnarandstöðunnar fyrst um
sinn.
★ REYNSLA FRÁ
BANDARÍKJUNUM
FORSETINN, dr. Benjamin
Nnamdi Azikwe, er 59 ára að aldri.
Hann hlaut menntun sína í Banda-
ríkjunum. Þegar hann dvaldist
þar varð hann fyrir miklum áhrif-
um af baráttu blökkumanna fyrir
Framh. á bls. 10
Uppreisn Steingríms skálds
FYRIR mörgum árum lagði ég
leið mína vestur á Snæfellsnes
eíðla sumars og gisti að Arnar-
ístapa undir Jökli. Ágústmánuður
leið, og haustið settist að völdum,
einkenndi byggð og öræfi sterk-
tim litum sínum, lét undan sér
fara gný í fjalli og sjó og yppti
dimmum og úfnum skýjum. Svo
kom stórviðrið: Himinninn virt-
ist ætla að hvolfa sér yfir jörð-
ina eins og risafugl, stormur og
regn börðu foldina í grimmu misk-
unnarleysi, og hafið reyndi að
ganga á land upp þverhníptan
klettavegginn. Allt í einu mundi
ég, að þetta voru æskuslóðir Stein-
gríms skálds Thorsteinssonar, hér
fæddist hann og óx úr grasi. Ég
hugsaði aldrei til hans í blíðunni
undanfarna daga, en nú rifjaðist
upp fyrir mér maðurinn og skáld-
skapur hans. Stormurinn og regn-
ið beindu athygli gestsins að hel-
grindahjarninu og luku upp fyr-
ir honum dynhamraborginni.
Mér verður til þessa hugsað ein-
mitt nú af því að Steingrímur
Thorsteinsson er á dagskrá með
skemmtilegum liætti um þessar
mundir. Hann hefur fengið upp-
reisn. Og nú skal ég skýra fáum
orðum, hvað við er átt:
' Kvæði Steingríms eru mörg
Jandfleyg, sungin í hverjum áætl-
unarbíl, ef farþegarnir taka lagið,
og víða annars staðar á góðra
vina fundum. Hins vegar munu
fæstir íslendingar fæddir eftir
fyrri heimsstyrjöldina gera sér
grein fyrir, liver orti þessa ágætu
söngtexta — og því síður hinu,
hvert er skáldskapargildi þeirra
og margra annarra ljóða Stein-
gríms. Bókmenntapáfar hafa forð-
azt að unna honum sannmælis
eem listamanni og jafnvel lagzt
gegn áhrifum hans og viðurkenn-
ingu. En góðskáld cins og Stein-
grímur Thorsteinsson á sér lengi
uppreisnar von, og nú er stund
hans komin. Halldór Laxness (nú
má víst ekki kalla hann Kiljan
framar) segir í Skáldatíma, að sér
hafi löngum þótt Steingrímur
næstmest skáld okkar íslendinga
á nítjándu öldinni. Iíannes Pét-
ursson hefur ritað ævisögu Stein-
gríms, en hún kemur út í haust
og markar vafalaust nýja og betri
afstöðu til ljóðagerðar hans og rit
starfa yfirleitt. Áður höfðu skáld-
in Tómas Guðmundsson og Steinn
Steinarr farið réttmætum orðum
og drengilegum um Steingrím og
list hans og talið sig í þakkarskuld
við hann.
Sannarlega gegn'ir furðu, hverj-
ir fáleikar urðu á tímabili með
þjóðinni og Steingrími. Hann var
ástfólgnasta skáld okkar fyrir, um
og eftir aldamótin, og vinsældir
kvæða hans í langferðabílunum
og réttunum og á öðrum mannamót
um hafa raunverulega aldrei þorrið
Hins vegar gleymdist allt of mörg-
um skáldskapargildi þessara ó-
venjulega sönghæfu ljóða, en
Steingrímur var þjóðskáld og á að
njóta viðurkenningar sem einn af
hagvirkustu bragasmiðum íslenzkr
ar bókmenntasögu.
Ég þori ekki að vera sammála
Halldóri Laxness, þegar hann veg-
samar Steingrím svo, að skipa
honum til sætis næstum Jónasi
Hallgrímssyni á skáldabekk nít-
jándu aldarinnar. Vitaskuld ber að
muna í því sambandi skáld á borð
við Bjarna Thorarensen, Grím
Thomsen, Matthías Jochumsson
og Stephan G. Stephansson, Stein-
grím vantar síður en svo sam-
keppni um þann titil, sem nóbels-
skáldið velur honum. Fyrr má líka
vera en hann þyki skilyrðislaust
bera af öllum þessum, enda víst
um tómt mál að tala. Tvö skáld
verða naumast borin saman þótt
samtíðarmenn séu og svipaðrar
. stefnu og aðferðar í list sinni,
hvað þá þegar um ræðir jafnger-
ólíka snillinga og þá sem sem
hér hafa verið taldir. Hitt finnst
mér ótvírætt að Steingrímur
Thorsteinsson sómi sér ágætlega í
þessum hópi, hversu sem raða beri
til sætis. Og það er vissulega vel
farið, að hann skuli fá réttrna;ta
og tímabæra uppreisn að fulltingi
dómbærra og sanngjarnra manna.
En getur skáld nokkru sinni
gengið í endurnýjungu lífdáianna,
hvað varðar áhrif og vinsældir?
Þess eru dæmi sem betur fer.
Mér kemur í hug skáldfrægð
Gríms Thomsen. Hún var ekki
upp á marga fiska fyrstu tvo ára-
tugi aldarinnar. íslendingar voru
í þann veginn að gleyma þessum
mikilhæfa og sérkennilega meist-
ara, Grímur var meira að segja
talinn bögubósi af hinum og þess-
um svokölluðum fagurkerum, sem
gátu ómögulega skilið íslenzka
heimsbóndann á Bessastöðum.
Þetta gerbreyttist í tilefni af ald-
arafmæli Gríms. Þá kvaddi Sig-
urður Nordal Grími hljóðs á ný
með stórmerkri ritgerð sinni um
veraldarmanninn, sem sneri heim
til íslands úr ys og háreysti er-
lendra umsvifa til að gerast skáld
og bóndi. Og sjá: Grímur Thom-
sen var aftur kominn á dagskrá
og hefur verið þar síðan. Ég ef-
ast um, að ljóð hans hafi nokkurn
tíma verið lesin meira og betur
eu á okkar dögum. Grímur er á
sínum stað í bókmenntasögunni
sem frábær snillingur, þó að hann
sé ekki alltaf smáfríður eða blíð-
róma. Og þetta er sér í lagi Sig-
urði Nordal að þakka. Ritgerð
lians á aldarafmæli Gríms kom
sannarlega a3 notum. Mér þyk-
ii kannski vænna um hana en
noklcuð annað, sem Nordal hefur
skrifað, ef undan er skilin ævisaga
Stephans G. Stephanssonar.
Mig gruriar, að eins fari fyrir
Steingrími Thorsteinssyni nú og
Grími Thomsen oftir 1920. Og
vissulega á Steingrímur það skil-
ið, að íslenzka þjóðin meti ljóð
hans að verðleikum. Mörg þeirra
eru og verða einstök, ef vel og
rétt er lesið. Svo má heldur ekki
gleyma, hver snillingur Steingrím-
ur var að túlka óbundið mál.-Þýð-
ingar hans á Þúsund og einni
nótt og ævintýrum H. C. Ander-
sens munu lengi í góðu gildi, enda
mörkuðu þær eins konar alda-
hvörf í ritlist okkar á sínum tima.
Framh. á bls. 10
Í HEYRANDA HLJÓDI
eftir Helga Sæmúndsson
VllilllllllllHI IIIIIIHIIIIIIII (II1111111111111| || ||||(||||>*^t« _
I "§
★ Það er oft fullyrt, að |
I bankarnir séu skattfrjálsir =
| með ö.llu, en svo er ekki leng |
| ur . . . Þeir munu sam- I
É kvæmt frjárlagafrumvarpi |
| greiða ríkinu 26 milljónir á §
1 næsta ári í hluta af umboðs í
| þóknun og gengismismun. If
★ Á fjárlagafrumvarpinu l[
| er ætlað 750.000 krónum til js
| að greiða kostnað af Skál- jf
| holtshátíðinni og 1.500.000 ii
É til eftirstöðva af bygginga- jf
| kostnaði auk milljónar sam- |
| kvæmt lögunum um heimild 1
| til afhendingar staðarins. .§
★ Einn erfiðasti hnútur- !
| inn í fjárhag ríkisins, sem 1
| jafnframt er lítið talað um I
| opinberlega, eru Rafveitur %
| ríkisins . . . Það kostar 229, §
1 2 milljónir að koma raf- £
I magni til fólksins á svæðum If
í þeirra, en rekstrartekjur eru ll
I aðeins 100,5 milljónir . . . :!|
| Mismunurinn er uppfærður 1
| sem „framlög:: eða „lántök |
| ur og viðskiptahreyfingar” - f
| um 120 milljónir. IL
★ KEA er citt af mestu ’ !
| fyrirtækjum landsins — með I
| 5344 félagsmenn og rösklega 11
| 400 manna starfslið .... lí
1 Launagreiðslur voru í fyrra j|
1 49,1 milljón. !
= il
★ Benedikt Bogason verk !
I fræðingur hefur látið af |
: starfi sem framkvæmda- li
| stjóri Flóaáveitunnar, en if
| við tekið Erlendur Daníels- S
| son. ;i
★ Landsmót Ungmenna- j|
| félags íslands verður haldið §
I að Laugavatni sumarið 1965 Íl
| . . .í því sambandi er fyrir- íi
| hugað að Ijúka næsta sum- ÍÍ
É ar við grasvöll, ef ekki 11
| skortir fé. !
★ Gert er ráð fyrir 30 !
É þúsund kr. styrk í fjárlaga- Íi
jj frumvarpinu til færeyslcs :!
\ fræðimanns til að flytja hér Íl
| á landi fyrirlestra um fær- í|
= eyskt þjóðlíf, sögu og bók- H
| menntir. jf
★ I fjárlagafrumvarpinu . jj
| er rikisstjórninni heimilað !
| að taka allt að 2 milljón kr. jt
| lán tii framkvæmda við |
| korn- og grasfræræktun í !
| Gunnarsholti. !
★ Einnig er heimiluð í !
| frumvarpinu allt að 12 miUj [I
| ón kr. lántaka til Ennisveg- I
| ar á Snæfellsnesi, allt að 6 .1
É millj. kr. lán vegna Siglu- I
í fjarðarvegar ytri (Strákaveg |
I ar) og allt að einnar millj. £
Ikr. lántaka vegna Múlaveg- ’ jl
ar. ; jj
>'.'raoMHHlitluttiuuutHiufutmmuiuuiuuuumumi£i
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 16. okt. 1963 J,