Alþýðublaðið - 16.10.1963, Page 9
OLAFUR PALMASON lauk
magisterprófi í íslenzkum fræð-
um frá heimspekideild Háskóla
íslands sl. laug-ardag, en Jjví lýk-
ur formlega með því, að sá, sem
prófið þreytir, flytur próffyrir-
lestur um eitthvað efni, sem
deildin ákveður. Eru slíkir próf-
fyrirlestrar jafnan fluttir í heyr-
auda hljóði og öllum heimill að-
gangur. Munu flest sæti hafa ver-
ið skipuð í salnum, þegar Ólafur
flutti próffyrirlestur sinn á laug-
ardaginn.
í tilefni prófsins átti Alþýðu-
blaðið stutt viðtal við Ólaf í gær.
Ólafur Pálmason er fæddur í
Reykjavík, en foreldrar hans
ættaðir úr Dölum vestur. Hann
lauk stúdentsnrófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík vorið 1958,
en síðari hluta nú í haust, eins
og fyrr segir. Hann er kvæntu'r
Þóru Davíðsdóttur. og eiga þau
heima í Mávahlíð 12.
— Um hvaða efni fjallaði próf-
fyrirlesturinn, Ólafur?
.— Fyrstu málfræðiritgerðina í
Snorra-Eddu.
— Og hvað fær meistaraprófs-
maður langan tíma til að semja
fyrirlesturinn?
— Átta daga — eða danska
viku, segir Ólafur.
— Þess má geta, að þá átta
daga mun hann hafa haft nóg að
gera við að semja fyrirlesturinn,
en að því vann hann einkum á
Háskólabókasafninu.
— En hve langan tíma fá stúd-
entar til að semja um það efni,
sem prófessorinn velur úr kjör-
sviði þeirra, og lögð er fram til
lokaprófs?
— Það líða sex mánuðir frá
því að menn fá heitið á r'tseTð-
inni, þangað til þeir eiga að skila
henni.
— Hvert var kjörsvið þitt?
— Bókmenntir upplýsingastefn-
unnar á íslandi.
— Og heiti ritgerðarinnar?
— Magnús Stephensen og bók-
menntastarfsemi hans.
— Hverjir aðrir hafa helzt
skrifað um Magnús?
— Sá, sem mest hefur sinnt
Magnúsi, er Þorkell Jóhannesson,
en hann gerði það frá allt öðru
sjónarmiði, fjállaði um hann sögu-
lega.
— Geturðu ekki sagt mér eitt-
hvað nánar um ritgerðina?
— Eg vann mest að henni á
Landsbóka- og Þjóðskjalasafninu,
en í Þjóðskjalasafninu er til
býsna mikið af heimildum um
prentsmiðjuna á dögum Magnús-
ar og Landsuppfræðingarfélagið,
sem hann átti mestan þátt í. í rit-
gerðinni var eins fullkomin skrá
og ég þóttist geta aflað til um
allt, sem var prentað hér á landi
frá stofnun Landsuppfræðingar-
Ólafur Pálmason, magister
félagsins 1794 fram að dauða Magn
úsar Stephensen 1833. Árið eftir
að félagið var stofnað keyptu
nokkrir félagsmenn Hrappseyjar-
prentsmiðju og fluttu hana suður
að Leirárgörðum. Hólaprentsmiðja
var hins vegar ekki lögð niður,
fyrr en 5 árum eftir stofnun Lands
uppfræðingarfélagsins, og á þeim
5 árum voru prentuð þar örfá
rit, sem féllu fyrir utan það svið,
sem ég var að kanna. Að öðru
leyti stóð Magnús fyrir allri
bókaútgáfu hér um sína daga. —
Þeir menn, sem keypt höfðu
Hrappseyjarprentsmiðju, gáfu
hana landinu árið 1798. Þá var
Hólaprentsmiðja flutt suður og
sameinuð prentsmiðjunni í Leir-
árgörðum 1799, en prentsmiðian
þar laut stjóm Landsuppfræðing-
arfélagsins ög Magnúsar Steph-
ensen, sem kallaðist ,,tilsjónar-
maður þess. Seint á dögum Magn-
úsar Stephensen, fóru stjórnar-
deildirnar í Kaupmannahöfn að
skipta sér af prentsmiðjunni og
rekstri hennar, því að þær töldu
sér málið skylt, þar sem landinu
hafði verið gefin prentsmiðjan.
Urðu út af þessu mikil málaferli
og eru þau rakin í ritgerðinni.
Þess má geta, að upp úr þess-
ari prentsmiðiusamsteypu varð
Landsprentsmiðjan til.
— Hvernig er ritgerðinni skipt
niður?
Höfuðþættir ritgerðarinnar um
æviferil Magnúsar, saga félags-
ins og prentsmiðjunnar um daga
hans, en síðan eru flokkuð þau
rit, er prentuð voru ýmist að til-
hlutan félagsins eða Magnúsar
sjálfs. Nokkur hluti þessa eru
þýdd safnrit, og var þá leitazt
við, eftir því sem föng leyfðu hér,
að gera grein fyrir uppruna efn-
isins. Þar vantar reyndar mikið á,
að öll kurl séu til grafar komin,
en bókakostur íslenzkra safna er
ekki nógur til bess, að betta verk-
efni verður ekki tæmt án aðstoð-
ar erlendra safna. Síðast er svo
bókfræðileg skrá um allt smátt
og stórt, sem prentað var í prent-
smiðjunni um daga Magnúsar og
um verður vitað. Það mætti kann-
ski geta þess, að til eru óvenju
góðar heimildir um það, af því að
varðveittir eru reikningar prent-
smiðjunnar og prenttal í þeim. Um
þá heimild er það dálítið skemmti
legt, að tekið er fram, hve mörg
Verkfræðingur
eða iðnfræðmgur óskast til starfa við meist-
araskóla Iðnskólans í Reykjavík sem fyrst.
Skólastjóri.
Rjúpnaveiðibann
Stranglega eru bannaðar rjúpnaveiðar i
landi Óttarstaðar í Garðahreppi og Hvassa-
hrauns í Vatnsleysustrandarhreppi.
Landeigendur.
Starfsstúlka óskast
í Samvinnuskólann Bifröst, í vetur. Upplýs-
ingar á símastöðinni Bifröst, næstu daga kl.
9—12 og 4—7.
Samvinnuskólinn Bifröst.
GENERAL raf-reiknivéiín komin aftur.
Hentug fyrir samlagningu, frádrátt
og margföldun.
Pantanir óskast sóttar sem fyrst.
Verð aðeins kr. 6.807,00.
SKRIFVÉLIN
Bergstaðastræti 3. — Sími 19651.
Silkihorg auglýsir
Ðanskar og íslenzkar peysur.
Danskir og íslenzkir CREP-SUNDBOLIR.
Japanskir telpna terylene-kjólar. — Verð kr. 214.00.
Drengjaúlpur krónur 520,00.
Sokkabuxur, allar stræðir.
Vinnufatnaður í úrvali. — Stretclibuxur.
Nærfatnaður í úrvali. — Ullargarn í flestum litum.
SILKIBORG
Dalbraut 1 — Sími 34151 •— Reykjavik.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
16. okt. 1963 <$
Framh. á bls. 10