Alþýðublaðið - 16.10.1963, Side 13
f
Greinargerð frá Knatt
spyrnuráði Sigluf j.
Framh. af 11. síðu
kvæmt símtalinu og smímskeytinu,
og væri því leikurinn löglegur.
Þess skal hér strax getið, að hér
var ekki farið í neinar felur með
þennan undanþágumann, enda
taldi KS sig hafa allt á hreinu
' varðandi hann og hafði ekkert
verið falið, honum viðkomandi,
' þegar sótt var um keppnisleyfi
fyrir hann til KSÍ.
Þegar líða tók á daginn fór það
að fréttast, að Þróttarar mundu
ætla sér að kæra leikinn vegna
þátttöku Sigurjóns, enda hafði
liðsmaður Þróttar þau orð um
‘þetta, „að það yrði erfitt að koma
heim aftur með tapið éftir að hafa
átt svona góða vinningsstöðu í leik
liléi, og því væri ekki annað áð
’ gera en kæra leikinn.“
Það er erfitt að taka þátt í leikj
um og kunna ekki að taka réttlátu
tapi með drenglyndi.
En hvaðan vissi nú Þróttur öll
þessi déili á hinum unga duglega
undanþágu leikmanni, sem varð
þeim. þessi fjötur um fót, hvað
hann væri gamall og hvenær liann
var fæddur? Ekki stóð neitt um
aldur hans á leikskránni né held-
ur, að undanþágá hafði fengizt
fyrir hann til leiksins. Jú, allt
þetta vissu þeir löngu áður en
þeir mættu til leiks, og var þeim
því hægðarleikur að finna að því
við dómarann áður en leikurinn
hófst, að þessi ólöglegi ungi mað-
ur væri þarna í liðinu, og þeir
mundu ekki hefja keppni fyrr en
KS hefði skipt um mann. Þetta
hefði verið heiðarlegt og hefði
þá KS, ef því sýndist svo, getað
skipt um mann. Þetta hefði verið
drengilegt að gera fyrir þá Þrótt
ara, en það hefur kannski verið
ætlazt til of mikils af þeim með
• þessu, enda kom það á daginn. Það
glopraðist nefriilega upp úr for-
ráðamönnum Þróttar við frammá-
menn KSÍ, er þeir (Þróttarar)
voru spurðir um það, hvort þeir
mundu hafa kært nefndan ieik
ef þeir hefðu unnið hann? Þessu
svöruðu „sigurvegararnir1 ‘neit-
andi. Hér má því hver maður sjá,
að þessi framkoma þeirra gefur
til kynna, að hér hafi aldrei átt
að vera drengilegur leikur frá.
Þróttar sjónarmiði, heldur hitt,- að
ná sér í vinninginn án tillits til
þess hvaða leið skyldi til þess far
in.
Það er til vottföst yfirlýsirig æ
heyranda að því, að Þrótti var sagt-
frá unga undanþágumanninum og ■
ÖU deili á honum, sama daginn t>g
leikurinn átti að fara fram.
Eftir komu Knattspyrnufélagsi
ins „Þróttar“ til Keykjavíkur, þá
barst formanni KS fyrsta vitneskj-
an um að Þróttur mundi ætfa að"
kæra leikinn, en það var eftif
farandi bréfi: frá. formanni Þrótt-
vinna okkar haldist þrátt fyrir
þetta.
Með beztu kveðjum,
f.h. Knattspyrnufélagsins
„Þróttur”
Jón Ásgeirsson
— sign —
Reykjavík 6/8 1963.'1
Knattsspyrnufélag Siglufjarðar
c/o hr. formaður
Tómas Hallgrímsson.
Stjóm Knattspymufélagsins
„Þróttur" vill með bréfi þessu
þakka Knattspyrnufélagi Siglur
fjarðar, og alveg sérstaklega for-
manni þess, hr. Tómasi Hallgríms.
syni, fyrir frábærar móttökur á
Siglufirði um síðustu helgi. Þátt-
takendur í ferðinni lýsa allir yfir
ánægju sinni með dvölina, og ség?
ist þeim svo frá, að á móti þeim
hafi verið tekið af sérstakri gesfcv
risni. Vonumst við til þess að geta
endurgoldið ykkur þetta síðar. "
Því miður hefur samt borið
skugga á. Það hefur komið í ljós,
að lið Siglufjarðar var ekki lög-
legt í leiknum við Þrótt, og sjá-
um við okkur tilneydda að kæra
það. Vonumst við til þess, að til
slíks komi ekki aftur, og að sam
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur:
verður haldiim í Iðnó (niðri) nœstkomandi
föstudag 18. október og hesft kl. 8.30 e. h.
FUNDAREFNI:
1. Píanóleikur: Einar Jónsson.
2. Félagsmál: Erlendur Vilhjálmsson, for-
maður félagsins
3. Litkvikmyndin Þjóðgarðurinn (íslenzkt tal)
4. Kaffihlé.
5. Umræður um kaupgjaldsmál, verðlagsmál
og stjórnmálahorfur. Stjórnandi: Arn-
björn Kristinsson. Þátttakendur: Gylfi Þ.
Gíslason ráðherra, Óskar Hallgrímsson
borgarfulltrúi og Pétur Pétursson forstjóri.
Alþýðuflokksmenn eru hvattir til að
fjölmenna.
STJÓRNIN
Þessi setning í bréfi Þróttar
„því miður hefur samt borið
skugga á“, er dálítið bjóstum-
kennanleg fyrir þá og sýnir
þeirra „hreina og drengilega" inn
ræti, með því að vorkenna KS
fyrir þennan „skugga". En hvern
ig hefðu nú Þróttarar farið að, ef
þeir hefðu ekki haft þennan
þeirra „því miður skugga" til
þess með hjálp skuggans og
KSÍmeðborgara sinna, að komast
yfir sigurinn frá KS og gerast þann
;ig „slgurvegarar“ í sínum riðli.
Kei. KSÍ-dómstóllinn gat ekki sam
kvæmt lögum dæmt KS til refsing
ar fyrir réttilegan sigur þeirra yf
Jr Þrótti, . lieldur hefðu þeir í
hæsta lagi, vegna þessara mistaka
KSÍ-„drengjanna“ látið leika leik-
inn upp aftur á Siglufirði, en það
hefði einnig verið óréttlátt gagn-
vart KS.
Nokkru síðar, eða hinn 9. ágúst,
frétti formaður KS að þann dag
á hádegi hefði borizt til KSÍ kæra
dags. 6. ág., vegna leiks KS og
Þróttar hinn 3. ágúst s. 1.
íþróttabandalagi Siglufjarðar
barst einnig samskonar kæra, sem
tekin var hér fyrir á fundi íþrótta
héraðsdóms liinn 11. gúst, og var
þar, með tilliti til þeirra upplýs-
iriga sem fyrir láguð að hér að
framan er getið úrskurðað, að leik
urinn væri löglegur og kærunni að
öðru leiti vísað frá, sem of seint
kominni.
Þessari málsmeðferð undu þeir
Þróttarar ekki og kærðu því á-
fram til KSÍ, en síðan fékk Knatt-
spyrnudómstólnum málið til með
ferðar, en liann dæmdi það síðan
Þrótti í vil, og var sú dómsniður
staða tilkynnt KS hinn 3. septem
ber, með eftirfarandi símskeyti:
Knattspyrnuráð Siglufjarðar
formaður Tómas Hallgrímsson
Siglufirði.
Dómsorð knattspyrnudómstóls-
ins Vegna ólöglegs leikmanns í
liði KS í kappleik í annarri deild
háðum á Siglufirði 3. ágúst 1963
milli KS og Þróttar, Reykjavík
skal leikurinn dæmast tapaður
fyrir KS, bréf á leiðinni.
Knattspyrnusambandiff.
NIÐURLAG Á MORGUN
FlugvalJarleigan
Keflvikingar
Suffurnesjamenn
Höfum opnað bflaleigu á Gónhó
Ytri-Njarðvík,
Höfum á boðstólum hina vii
sælu Fiat 600.
Ferðist í hinum nýju Fiat 601
— Flugvallarleigan veitir góð
þjónustu. — Reynið viðskiptii
Flugvallarleigran s.f. - Sími 19í
Utan skrifstofutíma 1284.
Gónhóll h.f. _ Ytri-Njarffvík
Bílaleiga
Handritahýsið
Framh. af 16. síffu
Einars, Jónasar og Ólafs, hafa tvær
af þremur styrkþegastöðum verið
veittar Einari Sigurðssyni cand.
mag. og Arnheiði Sigurðardóttur
mag. art.
Freistandi er að gera grein fyr
ir störfum og fyrirætlunum stofn-
Framhalð af 3. síffu.
lagi vestrænna ríkja, koma á
sættum við Frakka, hinn svarna
fjandmann Þjóðverja á liðnum
öldum, og vinna að sameiningu
Evrópu.
Hann hefur alltaf haft óbeit
á kommúnistum. Líkt og John
Foster Dulles frv. utanríkisráð
herra Bandaríkjanna, heldur
hann því fram. að hvers konar
viðræður við Rússa geti aðeins
farið fram á grundvelli eigin
máttar.
* LUDWIG ERHARD
ADENAUER lætur ekki af
embætti kanzlara með fúsu
geði. Hann var lieldur ekki
hrifinn af manninum, sem
kosinn var eftirmaður hans.
Hann telur, að LUDWIG Er-
hard, sem til þessa hefur gegnt
embætti efnahagsmálaráðherra
og á að miklu leyti heiðurinn
af „efnahagsundri” Vestur-
Þjóðverja hafi ekki nógu mikla
reynslu í stjómmálum til þess
að stjórna landinu.
En Kristilegir demókratar
sannfærðust um það eftir að
flokkurinn missti hreinan
meirihluta sinn á sambands-
þinginu í kosningunum 1961 og
eftir nokkra ósigra f fylkiskosn-
ingum síðan, að nauðsyn bæri
til að fá nv.ian leiðtoga. Og aldr
ei þessu vant varð Adenauer að
láta í minni pokann.
Hinn pattaralegi Erhard, sem
er 66 ára. hefur liins vegar tek-
ið skýrt fram, að hann hyggst
fylgja sömu stefnu og fyrir-
rennari hans, enda þótt öðrum
aðferðum verði beitt. Erhard
mun taka ákvarðanir sínar á
grundvelli viðræðna við félaga
sína í stjórninni og foringja
þingflokkanna þriggja í ríkari
mæli en hinn ráðríki Aden-
auer.
Erhard er kominn af ætt
bænda og iðnaðarmanna. Hann
er fæddur í nágrenni Ntimberg
4. febrúar l897, tók gagnfræða-
skólapróf og hóf nám í verzl-
unarskóla en var kvaddur í
herinn. Hann særðist illa í
heimstyrjöldinni fyrri, og á
meðan hann var að ná sér hóf
hann nám í hagfræði. Seinna
lærði hann í Niirnberg og tók
doktorspróf við háskólann í
Frankfurt.
Þegar Hitler brauzt til valda
1933 var Erhard vikið úr stöðu
yfirmanns haefræðirannsóknar
stofnunar í Niirnberg, því að
hann neitaði að ganga í Naz-
istaflokkinn. Hins vegar styrktu
þýzkir iðjuhöldar hann til þess
að halda starfi sínu áfram
Hann hélt starfinu einnig á-
fram í sfðari heimsstyrjöldinni,
og þegar friður komst á hafði
Erhard samið í algerri leynd
víðtæka áætlun um aðlögun
þýzka gengisins að nýjum að-
stæðum. Þessi áætlun var grund
völlurinn að hinum velheppn-
uðu fjárhagsumbótum Vestur-
Þjóðverja 1948.
unarinnar, en eigi er unnt að
sinna öðru en útgáfustörfum, fyrr
en úr rætist með húsnæði. Útgáfu
störf stofnunarinnar í fyrstu eru
í beinu framhaldi af verki hand-
ritaútgáfunefndar Háskólans, en
nokkur vandkvæði eru á að gera
fullkomna áætlun um útgáfur,
jfyrr en afhending handrijtanna
frá Kaupmannahöfn hefur farið
fram samkvæmt samþykkt danska
þjóðþingsins frá 1961, sem íslend-
ingar treysta að framkvæmd verði.
Sennilega verður fyrsta útgáfu-
verk stofnunarinnar Sýnisbók elztu
ísTenzkra handrita, þar sem prent-
uð verða sýnishorn allra íslenzkra
handrita og flestra rithanda, sem
fyrir koma, frá upphafi til svo sem
1270-80. Sýnishornunum fylgir um
ritun með prentletri, svo og inn-
gangur og athugasemdir. Þetta rit
annast prófessor Hreinn Bene-
diktsson. Þá er framhald riddara-
sagna, 2. bindið, Viktors saga og
Bíávus, og annast Jónas Kristjáns
son útgáfuna. Gert er ráð fyrir
inntaki á ensku, en um efniff muh
Einar Ól. Sveinsson skrifa. Unnið
er að rímnasafni, framhaldi af
Rímnasafni Finns Jónssonar, og
af sérstökum ástæðum má vera, aö
eitt bindi af því komi fljótt á eftir
áðurnefndum verkum. Allmikið hef
ur verið unnið að vísindaútgáfu
af Færeyingasögu og Svarfdælu,
og mun Jdnas gefa aðra út, en Ó1
afur hina. Lengra framundan er
Árna biskups saga og Lárentíus
saga. Þá hefur nefndin og hug á
nýrri vísindaútgáfu af Sturlungu.
Ýmislegt fleira hefur verið rætt
um, sumt frá síðari öldum. Af
ljósprentunum liandrita hefur
komið til tals útgáfa af íslerahum
ártíðaskrám og kalendaríum (e.k.
almanökum frá fornöld), mjög
merkilegum söguheimildum. Vænt
anlega koma fyrstu ritin út
snemma á næsta ári.
Síðar er fyrirhugað að skipta
stofnuninni í deildir, eins og heim
ilað er í lögum, og má þar nefna
bæði þjóðfræðideild og örnefna-
rannsóknadeild. Að lokum skal
þess getið, að forráðamenn stofnun
arinnar hafa með tímanum fullan
hug á því að íslenzk handrit utan
Danmerkur verði tekin á filmur
éða ljósmynduð, ef það hefur ekki
verið gert áður, svo að íslending-
ar hafi hér heima með tímanum
öll handrit sín — annað hvort sjálf
eða í eftirmyndum, þó að það
geti að sjálfsögðu ekki orðið, fyrr
en eftir alllangan tíma.
Skotið á giugga
Framh. af 1 síffu
að sjá hvaðan skotið var. En
allavega getur það ekki hafa
verið langt frá.
Ingólfur Þorsteinsson varð-
stjóri hjá Rannsóknarlögregl-
unni sagði að unnið hefði verið
að rannsókn málsins í dag en
ekki væri enn fundið hvaðan
skotið hefði komið. Hann sagði
að ef til vill væri um slysaskot
að ræða og hefði það komið
fyrir áður að menn hafi hleypt
óvart úr byssum og skotið far-
ið inn um glugga hjá náungan-
um.
1ÍCTYL
ryðvöm.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 16. okt. 1963 13