Alþýðublaðið - 20.10.1963, Side 9
. Þorsteinsson:
ikrifa bók af fyrra bragði.
leiðandi hægt að kalla þá syn,
þess lands, sem þeir lifa á og
hafa fyrir augunum.
— Hvað viltu segja um raun-
verulega staðarákvörðun?
— Hún er milli Akureyrar og
Reykjavíkur og líklega öllu helzt
norðanlands, því að það eru að-
eins tvær áttir í bókinni. Það
er „suður” — og til Akureyrar. -
— Er þetta stórviðburðabók eða
hversdagssaga?
— Eg held, að mesti stórvið-
burðurinn í þessari bók sé, að það
er drepin í henni tík. Svo er mik-
ið um hesta í henni, en eftir að
Darwin dó gerist aldrei neitt í
dýralífinu, eins og menn vita. —
Pilturinn hugsar rvo auðvitað um
stúlkuna sína, en að sjálfsögðu eru
ekki höfð mörg orð um það, svo
að öll tíðindi, sem þarna væri ein-
hvers að vænta af, koðna auðvitað
niður, þannig að þetta verður í
raun og veru ósköp hversdagsleg
saga, enda mundi ég ekki vilja
fara upp á Eyvindarstaðaheiði og
þurfa að standa þar reiknings-
skap fyrir málæði um þau mann-
gerðareinkenni, sem hún hefur
fætt af sér.
— Hvernig finnst þér _að vera
nú að gefa út aftur eftir 5 ára
þögn?
— Mér væri alveg sama, þó að
þessi bók kæmi aldrei út. Þegar
maður er búinn að vinna lengi við
verk, er þetta orðið þannig fyrir
honum, að honum finnst það ekki
koma öðrum við.
— Ertu hættur að skrifa smá-
sögur?
— Nei, nei. Eg hef alltaf litið
á mig eins og mann, sem skrifar
smásögur. Eg hef bara ekki gert
það undanfarið, af því að ég hef
verið að ljúka við þetta. Það
sagði líka einu sinni góður maður,
að ég mundi aldrei skrifa langar
sögur, en mér þykja það engin
tíðindi, því að ég hef aldrei ætl-
að að skrifa annað er smásögur,
þó að þessar tvær bækur hafi
orðið til, sem eru í raun og veru
báðar stuttar.
— Hvað er Land og synir löng?
— Líkiega nær helmingi lengri
en 79 af stöðinni. Mig minnir að
hún sé átján kaflar, en 79 var
ellefu.
— Finnst þér ekki erfitt að
sinna þessu jafnframt blaða-
mennskunni?
— Það er nefnilega það. Nátt-
úrlega er það gjörsamlega óhugs-
andi, að maður skrifi meira við
svona aðstöðu, en það gerir ekk-
ert til, því að það eru margir,
sem skrifa og skrifa betur en ég'
— En getur ekki komið sér vel
fyrir rithöfund að hafa kynnzt
þessu starfi. Finnst þér það hafa
verið þér góður skóli eða vond-
ur?
— Hvert starf, sem maður
vinnur, getur verið góður skóli
fyrir hann og þetta er vitanlega
ekki verra en annað, því að það
grípur yfir svo marga þætti í
þjóðlífinu. Annars kemur ekki
vitneskja gegnum störf þessu við
að öðru leyti en því, að geta far-
ið rétt með ýmis grundvallarat-
riði í bókum.
— Finnst þér þú vera búinn
að skrifa þig frá þessu tímabili,
sem 79 af stöðinni og Land og
synir spanna?
— Eg lief að minnsta kosti eng-
ar óhyggjur af því, að ég sé að
hlaupa yfir eitthvað. Þetta er
Framh. á 13. síðu
♦--------------------------------
„ . . Stundum komu þeir í
sólskini á morgnana og höfðu rek-
ið hrossin alla nóttina, stundum
komu þeir blautir og hraktir í
rigningu undir kvöld.”
★ Félagsprentsmiðjan er =
| nýlega flutt úr Ingólfsstræti =
| í hús, sém fyrirtækið hefur |
§ fest kaup á við Spítalastíg. |
I Nú hefur verið sótt um leyfi i
i til að gera útlitsbreytingar á |
i húsi fyrirtækisins við Ingólfs- |
| stræti. Þar munu í framtíð- |
i inni verða skrifstofur, að |
| minnsta kosti á efri hæðunum. §
£ §
i ★ Hraðfrystistöðin hf. við i
| Mýrargötu hefur sótt um leyfi i
i borgarráðs til að stækka verk i
i smiðjuhús sitt á lóðinni nr. 1 |
| við Seljaveg. Fyrirhuguð [
| stækkun er 423,8 fermetrar. [
| ★ Gissur Símonarson, hef- i
= ur sótt um leyfi borgarráðs |
| til að byggja tvílyft iðnaðar- |
| hús úr steini að Síðumúla 12.
| Stærð fyrirhugaðs húss er i
i 117 fermetrar, 5654 rúmmetr- i
= ar. i
E |
★ Kexverksmiðjan Frón i
| við Skúlagötu hefur sótt um i
| leyfi til borðarráðs um að i
| mega stækka verksmiðjuhús =
f sitt um 174 fermetra.
★ Skólanefnd Verzlunar- \
f skóla íslands hefur farið fram =
i á hækkaðan styrk til skólans f
f frá borgaryfirvöldunum.
★ Höskuldur Goði Karls- \
= son hefur verið fastráðinn |
i forstöðumaður Sundlaugar =
i Vesturbæjar. Ragnar Stein- =
i grímsson hefur verið fastráð- jj
| inn forstöðumaður Sundlaug- |
i anna. =
f ★ Fræðsluráð hefur sam- !
1 þykkt að mæla með skipun f
f Hjörleifs Sigurðssonar til að f
f annast listkynningar í gagn- f
f fræðaskólum borgarinnar.
i ★ Gils Sigurðsson, sem f
i rekur söluturn á Miklatorgi, f
i hefur sótt um leyfi heilbrigð- i
= isnefndar til að mega selja f
i þar drykki og súpur úr þar i
i til gerðu hraðsuðutæki.
f ★ Á Akureyri hefur verið f
f gerð tilraun með olíumöl. — I f
f Lögð var olíumöl á stuttan j f
f vegarkafla neðan við sam- |I f
f komuhús bæjarins. II f
f ★ Búizt er við miklum^J f
f rjúpnaveiðum í ár. Náttúru-g f
f gripasafnið vinnur nú að f
f rannsóknum á lifnaðarhátt- i
i um rjúpunnar, og hefur leitað i
i til rjúpnaveiðimanna um út- i
i fyllingu á eyðublöðum, sem i
i liðs í þeim rannsóknum. Von- i
i andi bregðast veiðimenn vel i
1 við þeim tilmælum safnsins. \
c r
f ★ Alþýðumaðurinn á Akur- f
f eyri skýrir svo frá um á- J
f fengisútsöluna að þar hafi í f
f sumar verið drukkið út and f
f virði 12 vandaðra íbúða eða i
I hálfs nýtízku síldveiðiskips f
| með Öllum útbúnaði.
Orðsending iil síldar-
útvegsmanna
Lækkað verð á kraftblakkar
varahlufum
Önnumst allar viðgerðir ásamt varahluta
þjónustu fyrir kraftblökkina.
Varahlutir beint frá framleiðendum. —
Lækkað verð. — Hafið samband við oss eða
umboðsmenn vora úti á Iandi.
Vélaverkstæði
SEg. Sveinbjörnsson hf.
Reykjavík.
^Hii^iiiiimiitimiiiiiiiiiiiiiuimiiiiiiimiiiiiiiiit**- <\
r
Dress-On frakkarnir
eru komnir, á drengi og fullorðna. —
Vandað efni — fallegt snið — fallegir litir.
Gjörið svo vel og skoðið í gluggana.
GEYSIR H/F.
FATADEILDIN.
ALÞYÐUBLAÐIÐ — 20. okt. 1963 $