Alþýðublaðið - 29.10.1963, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 29.10.1963, Qupperneq 3
1« unz Kína fær kjarnorkuvopn TOKIO 28.10 (NTB-Reuter). VaraforsætisTáðherra og utanrík- isráðherra Kína, Chen Yi marskálk Þrír lokððir inni í námu LENGEDE 28.10 (NTB-Reuter). Nýsteiktum kjúklingr, úrslitum knattspyrnuleikjanna í gær og spilum var komið í gegnum námu- opin til þriggja námuverkamanna sem enn sitja innilokaðir í járn- námu 90 metra undir yfirborði áarðar í Lengede í V.-Þýzkalandi. Þeir voru ekki látnir vita um afdrif um það bil 40 félaga þeirra sem eru taldir af. Talið er að þeim verði bjargað eftir 2 daga. Þrímenningarnir hafa skýrt frá því í síma, að þeir hafi verið ró- legir allan tímann meðan þeir hafa beðið eftir hjálp. Þeir höfðu verið 30 tíma í námunni þegar tókst að ná sambandi við þá um op á sunnudaginn. Læknir, sem hefur talað við þre menningana í símann taldi að þeir væru við tiltölulega góða heilsu Læknar telja, að ef þeir fá nægi lega mikinn mat og drykk muni þeir komast af þar til frekarí hjálp berist til þeirra . ur, sagði í dag að Kína stæði öðr um iðnvæddum ríkjum langt að baki og þess vegna kynnu mörg ár að l'íða áður en Kínverjar gætu reynt fyrstu kjarnorkusprengjuna. — Enn munu líða mörg ár þar til hefja má fjöldaframleiðslu á slíkum sprengjum, en Kínverjar munu reyna kjarnorkuvopn hvað I sem það kostar, sagði hann. Chen Yi köm fram með þessi ummæli á fundi með japönskum blaðamönnum, sem eru í heim- só.kn í Peking. Chen Yi marskálkur kvað tákn fyrsta fl. stórveldis kjarnorkuvopn og eldflaugar. Vegna álits Kína sem stórveldis í fremstu röð væri nauðsynlegt að gera kjarn- orkutilraunir, auk þess sem Kín verjar þyrftu kjarnorkuvopn til landvarna. Eign kjarnorkuvopna mundi ekki hafa áhrif á utanríkis stefnu Kínverja, en án þeirra yrðu Kínverjar að lúta í lægra haldi fyrir Bandarikjamönnum. Washington og Bonn, 28. okt. (NTB - Reuter) Þýzka konan ElVen Rometsch, sem að sögn baudarísks blaðs í dag er viðriðin mjög umfangsmikið kyn- ferðishneyksli og njósnamál, hef- ur ekkert samband haft við aust- antjaldsríkin, sagði formælandi vestur-þýzka Iandvarnaráðuneyt- isins í dag. Herinn í Dahom- ey tekur völdin Cotonou, Dahomey 28. okt. (NTB - Reuter) YFIRMAÐUR heraflans í Daho- mey, Christopher Soglo ofursti, til- kynnti í dag, að Hnbert Maga for- seti hefði sagt af sér, að hann sjálfur hefði tekið völdin í land- inu í sínar hendur. Bráðabirgða- stjórnin, sem mynduð var í gær og þjóöþingið hafa verið leyst upp, en önnur veröur skipuð í staðinn. Ofurstinn hvatti almenning til að vera á verði gegn ofbeldisverk- um og skrílslátum. Hver sá sem verður staðinn að því að standa að slíkum verknaði verður skotinn án dóms og laga. Hann hvatti þjóð- ina til að gæta stillingar meðan hin þjóðlega endumýjun ætti sér stað. í dag fóru mörg þúsund manns í mótmælagöngu til forsetahallar- innar og kröfðust þess, að Maga forseti segði af sér. Undanfarið hefur verið mikil ólga í Dahomey og í gær tilkynnti Soglo ofursti, að þing og stjórn Iiefðu verið leyst upp. Þetta átti að auðvelda lausn á- standsins. Síðan var mynduð stjórn þriggja manna í gær undir for- sæti Maga. Hún lýsti yfir stuðn- ingi við yfirlýsingu Soglos frá því fyrr um daginn, en ofurstinn sagði, að gerðar yrðu nauðsynlegar ráð- stafanir til þess að lialda uppi lögum og reglu. Reykjavík, 28. okt. R. L. SKIPSBROTSMENNIRNIR af brezka togaranum Northern Spray, sem strandaði undir Grænuhlíð, í óveðrinu 23. októ- ber sl., komu til Reyk:avíkur sl. laugardag, eftir að hafa verið veðurtepptir á ísafirði þrjá daga. ítrckaðar tilraunir varð- skipsins Óðins til að draga tog- arann á flot, báru ekki tilætlað- an árangur og munu fleiri björgunartilraunir ekki reynd- ar, þar sem vonlaust er taliff með öllu að björgun megi tak- ast. Eins og fyrr segir strandaði togarinn þann 23. október sl. og skeði óhappið kl. 22, í roki og stórsjó, Skipið steytti á skeri þrem sjómílum innan við Rit. Varðskipið Óðinn var þá statt á Aðalvík og hélt þegar á strandstað, er því hafi verið tilkynnt óhappið. Það kom á staðinn kl. 22.35 og lagðist við akkeri skammt frá hinu strand aða skipi. Þá voru einnig komn Ir á strandstaðinn nokkrir brezkir togarar og reyndi einn þeirra, James Barrie að skjóta línu yfir í Northem Spray, en það mistókst. Hins vegar tókst að skjóta línu frá Northern Spray í James Barrie, en ekki mun sú skotfimi hafa komið að gagni. Aftur á móti settu þeir varðskipsmenn út bát og sigldu upp að hliðinni á tog- aranum og tók skipshöfnina, 20 manns um borð í varðskipið og flutti þá til ísafjarðar. Við fréttum af komu skip- brotsmannanna til borgarinnar og fórum í gærkvöldi niður í Hafnarbúðir þar sem þeir héldu til. Þar hittum við skipstjórann P. S. Finty að máli stutta stund, en þeir skipsbrotsmenn vom á hraðri ferð, þar eð sjó- mannadagsráð hafði boðið þeim í bíó. Við báðum hann segja okkur hvemig þetta vildi til. Hann. svaraði stutt og laggott: — Það var slæmt veður, myrkur og mikill sjógangur. Meira get ég ekki sagt, þetta er allt og sumt. — Hvaðan er skipshöfnin? — Við erum allir frá Grims- by. — Hvað eruð þér gamall? — Ég er 29 ára. — Hafið þér verið skipstjöri lengi? — Frá því ég var 21 árs. — Og alltaf með þennan tog- ara? — Nei, ég hef verið með marga togara. — Og hvenær ráðgerið þið að fara? — Við fljúgum lieim í fyrra- málið kl. 6, og nú er ég farinn á bíó. Haraldur Hjálmarsson, for- stjóri Hafnarbúða tók það fram, að Bretarnir hefðu komið sér- staklega vel fram, eða í einu orði sagt, eins og sannir „séntil- menn”, og bæri þó skipstjórinn af þeim öllum. Þeir gistu flestir í Hafnai'búðum, eða 17, en þremur varð að koma fyrir á City Hótel. Sjómannadagsráð þeirra hér í Reykjavík. Myndin er af nokkrum skipbrotsmanna. (Mynd: JV) 13 BJÖRGUÐUST UR NAMU BJARTSÝNI fyrir FUND UM sahara Jóhannesarborg, 28. okt. BJÖRGUNARMENN komust í samband við 13 menn, sem voru innilokaðir í námulyftu, sem í dag féll 1463 metra niður í náiuuopi í einni ríkustu gullnámu heims, um 80 km. vestur af Jóhannesarborg. Björgunarmennirnir létu sig fyrst síga niður í lyftu og komust að raun um, að þeir gátu ekki náð sambandi við verkamennina. Þeir sneru því aftur upp á yfirborðið, náðu í planka og annan útbúnað og lögðu bráðabirgðabrú, sem verka- mennirnir klifruðu um og upp í lyftuna. Því næst voru þeir hífð- ir upp á yfirborðið. í annarri lyftukörfunni voru 55 verkamenn, í hinni 20. Seinna kom í ljós, að það voru aðeins 13 í ann- arri. Allir verkamennirnir í fyrr- nefndu körfunni sluppu ómeiddir eftir að karfan var stöðvuð með varaliemli á 304 metra dýpi. Karf- an með verkamennina 13 hélt á- fram allt niður í 1463 metra dýpi. MARRAKESH, Marokkó 28.10 (NTB-Reuter). Nýir bardagar brut ust út á landamærum Afsír og Marokku í dag. Jafnframt bjó Hassan Marokkókonungur sig und ir förina til Bamako í Mali þar sem liann mun hitta Ben Bella forseta Alsír að máli í þvl skyni að reyna að finna l'ausn á deilu rikj anna. í Algeirsborg sagði Ben Bella í útvarpsræðu í kvöld, að hann væri viss um, að ráðstefnan í Bamako mundi leiða til friðar. — Við förum bjartsýnir til Bamako. Árás Marokkómanna hef ur styrkt þjóðlega einingu okkar, sagði hann. Ben Bella sagði einnig, að deil an við uppreisnramennina í Kabý- líu, Mohand ou el Hadj ofursta og Hocine Ait Ahmed væri leyst. í útvarpsræðu í Rabat lét Hass an konungur að sögn AFP í Ijós hóflega bjartsýni með tillit.i til möguleikanna á samkomulagi. — Við vonum að viðræðurnar í Bamako hafi jákvæðan árangur í för með sér, vegna framvindunn ar, sem ástandið hefur tekið, tök- um við á herðar mikla sögulega á byrgð, sem mikla þýðingu mun hafa fyrir ókomnar kynslóðir. — Nauðsynlegt er, hversu svo sem vandamálin og erfiðleikarnir eru miklir, að þjóð vor gangi stað föst og samhent á veginum, sem Framh. á 5. síðu ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 29. okt. 1963 3

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.