Alþýðublaðið - 29.10.1963, Qupperneq 16

Alþýðublaðið - 29.10.1963, Qupperneq 16
 mWVWVWWWVMWVWWWVWWVWWmWVWWWWWMMWWWWWWHWM ÞAÐ lá brezkt veðurskip við Ingólfsgarð rétt eftir há- degið í gær. Þegar blaðamaun og Ijósmyndara Alþýðublaðsins bar þar að átti að fara að leysa, en sagt er, að Bretar séu þolin- móðir og flasi ekki að neinu, og það sannaðist enn einu sinni í gær, og þess vegná náðum við í stutt viðtal við skipstjór- ; ann, J.W. Clark. Hann sagði okkur, að skip- ið héti Weather Reporter. Veð- urathuganir á liafinu eru tald ar til alþjóðaþjónustu, og eiga Bretar 4 veðurskip sem öli stunda veðurathuganir á At- lantshafsstöðvum. Öll þessi skip bera nöfn, sem hefjast á „veður.“ — Þegar þið heyrið sagt i veðurlýsingum, að veðurskipið Alfa eða veðurskipið Bravó sé statt á tiltekinnj breiddar- og lengdargráðu, þá er ekki átt við nafn veðurskipsins, heldur svæðið sem það stundar athug- anirnar á. Hafinu er skipt í svæði, sem afmörkuð er með breiddar- og lengdargráðum og er vanalega eitt skip á hverju svæði í einu. Við köllum svæð, in yfirleitt stöðvar og ein stöð in er merkt A (Alfa), önnur B (Bravó) o.s.frv. Núna komum við t.d. til Reykjavíkur frá Alfa sem er svæðið miðja vegu milli íslands og suðurodda Græn- lands. — Atlantshafi er skipt í austur- og vestursvæði. Á austursvæðinu eru evrópsk skip við ve.ðuratliuganir, en Bandaríkjamenn sjá um vest- ursvæðið. — Hverra þjóða eru-Evrópu- skipin? — Tvö eru! hbllenzk, tvö frönsk og tvö norsk. — Eru þau ekki fleiri? — Ekki sem ég veit um. — Hvar eiga brezku veðurat hugunarskipin heimahöfn? — Þau eru öll frá Greenoek í Skotlandi. Við erum all;r Skotar hér um borð, segir Clark brosandi. — Hve margir eru á skip- inu? — 57 og á hinum skipinu eru álíka margir. Áhöfnin sjálf er 40 menn, en auk þess höfum við um borð 7 veðurfræðinga og 10 loftskeytamenn. — Hve lengi ert þú búinn að vera á veðurskipum, Clark? — Það er rétt um 9 ár, en þar af hef ég ekki verið skip stjóri nema ár. — Er þetta ekki leiðigjarnt 6tarf? J.W. Clark (Myndir; J.V.) — Jú, það getur stundum ver ið þreytandi. Maður verður að skemmta sér við eitthvert tóm stundagaman. Þetta er mitt, segir hann brosandi og bendir um leið á málverk, sem hangir á veggnum í íbúð hans. Ég fæst við aS mála, bætir hann við. — Og við hvað skemmta hin ir sér? — Þegar þeir eiga frí frá stritinu, spila þeir mikið og liafa uppi alls konar grín. Einu sinni í viku er sýnd kvikmynd um borð. Og svo lesum við mikið. — Hafið þið gott bókasafn? — Já, ágætt safn. Brezka sjó mannasambandið sér okkur alltaf fyrir bókum. Við skilum því sem við erum búnir að lesa þegar við komum í land og fá um þá nýjar bækur í staðinn. — Hve löng er útivistin hjá ykkur? — Það er alveg fastákveðið. Við erum 24 daga á hverri stöð cn þar við bætist siglingin hciman og heim. Það er svolít ið misjafnt, hve langan tíma hún tekur, vanalega svona fjóra eða fimm daga. — Hve lengi eruð þið svo heima á milli? — Það er ekki hægt að segja til um það upp á dag, en að meðaltali liggjum við venju- lega liálfan mánuð í höfn. Sjald an eða aldrei skemur en tólf daga. — Þeir, sem ekki eiga lieima á sama stað og skipið, geta þá farið heim í frí milli ferða. — Já, en þeir eru fáir. Eins og ég sagði áðan eiga öll brezku veðurskipin heimahöfn í Green ock, og langflestir af áhöfn og starfsliði eiga þar heima. Þetta er þeirra atvinna og þess vegna langeðlilegast að svo sé. — Komið þið ekki stundum til annarra hafna? — Það er ekki oft en þó kemur það fyrir, ef sérstaklega stendur á. Þá leitum við til þeirra hafna, sem næstar eru svæðinu, sem skipið fæst við athuganir á hverju sinni. — Hvers vegna komuð þið hingað til Reykjavíkur núna? — Okkur vantaði olíu. Það var of langt fyrir okkur að fara heim og sækja hana, en tíminn okkar á Alfa var ekki útrunninn. Vanalega fyllum við alla tanka af olíu heima, en nú stóð þannig á, að norskur togari sem var á svæðinu milli íslanjds og Græmlands, bað okkur um aðstoð, af því Framh. á 11. síðu yHMWMWWWWWHWWWVWWWWIMWWWWHIWMWWWWWWWWHWtWWWMWWMHWMW HÁSKÓLAHAPPDRÆTTIÐ HEFUR GREITT 200 MILLJÓNIR: IVÖFALDAR NÚ VINNINGAFJÖLDA Reykjavík, 28. okt. — KG UM næstu áramót hefur Happ- drætti háskólans starfað í 30 ár. Á þessu tímabili befur happdrætt- ið greitt um 200 milljónir króna í vinninga þar af á þessu ári um 30 milljónir. Tekjur af happdrætt- inu á þessu tímabili eru um 40 milljónir. Um næstu áramót verða gerðar nokkrar breytingar á starf- semi happdrættisins og var frétta- mönnum skýrt frá þeim í dag. Helzta breytingin er sú, að nú verður gefinn út aúkaflokkur með sömu númerum og fyrir eru frá 1 og upp í 60.000. t framkvæmd verkar þessi viðbót þannig að ' annað hvort verða tveir lieilmiðar á hverju númeri eða fjórir hálf- miðar. Allir fjórðungsmiðar verða I lagðir niður og í stað þeirra gefn- . ir út hálfmiðar. ^ Jafnframt útgáfu aukaflokksins tvöfaldast upphæð vinninga og verður fjöldi þeiiTa nú 30.000 í stað 15.000 áður. Útkoman verður sú að eigi einhver tvo heilmiða Alvarlegt slys á Akureyri Akurcyri, 28. okt. GS - ÁG HÉR var'ð alvarlegt umferöaslys klukkan 14.08 á sunnudag. Fimm ára gamall drengur, Haukur Ste- fánsson, Hafnarstræti 20, varð fyrir fólksbifreið við húsið Hafnar stræti 25. Haukur mun hafa slas- ast mjög mikið, og var hann fluttur á sjúkrahús. Hann mun liafa veriff meðvitundarlaus effa meffvitundar- lítill í dag. Stephan Thomas talar í dag Kl. 5.30 í dag flytur Stephan Thomas framkvæmdastjóri V.- þýzka Sooial-Demokrataflokksins og einn af affalráögjöfum Bonn- stjórnarinnar í málefnum austan járntjaldslandanna, erindi í húsa- kynnum Háskóla íslands ura. „Ger many between east and west“. Er- indiff verður flutt á ensku og er öl'lum heimill aðgangur. | með sama númeri, liefar hann möguleika á að vinna 2 miUjónir á það númer. Framhald á 5. síffn. IMWWWWWMWWWMWW Rúml'ega tvítugur maður fannst látinn í gær við Bæj arsjúkrahúsið í FossvogL Var þetta skömmu eftir há dcgi, og lá hann á skyggni, sem er yfir einum dyrum sjúkraliússins. Er betur var að gáð kom í Ijós, aff hann hafði falliff ofan af efstu hæff hússins, þ.e. af 14. hæð. Þar Iiafði hann skilið eftir yfirhöfn sína, gleraugu og fleira. Menn, sem voru að starfa við húsið fundu mann inn, nokkru eftir að þeir komu úr mat. Ekki höfðu þeir orðiff varir við hann fyrir hádegi, þannig að ætla má, að atburffurinn hafi átt sét* staff í matarúímanum. Maður þessi hefur ekki geng iff heill til skógar aff und- anförnu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.