Alþýðublaðið - 07.01.1964, Page 1
ÞESSI mynd er af hinum
nýja „Trabant 600”, sem kost
ar aðeins 60-65 þúsund krón-
ur. Vagninn lítur vel út og
er stcrklegur. Að framan
minnir hann nokkuð á Volks-
wagen, en er öllu kubbs-
legri. Bíllinn er rúmgóður
og þægilegur í akstri þrátt
fyrir framhjóladrifið.
vel.
„Trabant 600” er rúmgóður og
þægilegur og vélin kraftmikil.
Verður gaman að fylgjast með því
hvernig liann reynist, því að þetta
er skilyrðislaust lang ódýrasta
4ra manna bifreið, sem hér er á
markaðnum.
ÓSPEKTIR
í GÆRKVÖLDI urðu mikl-
ar óspektir meðal unglinga í
Hafnarfirði. ðlyndin hér að
neðan er af einum ungling-
anna, sem klifraði upp eftir
símstöðinni. Sjá frásögn og
myndir á þriðju síðu.
(Mynd J.V.)
Keykjavík 6. jan- — ÁG
Hingað til lands hefpr nú verið
flutt ný tegund af smábílum, sem
kosta aðeins 60-65 þús. kr. Er það
verðiff, sem kaupandinn greiffir
fyrir þá, þ.e. eftir að allir tollar
og skattar hafa verið greiddir.
Vagnar þessir eru framleiddir í
A.-Þýzkalandi og oft nefndir
„Volkswagen A.-Þjóðverja-“ Þeir
heita „Trabant 600.“
Skömmu fyrir jól voru þrír slík
ir bílar fluttir hingað. Tveir
BANASLYS
AKUREYRI
þeirra eru sendiferðabílar, en sá
þriðji er 4ra manna fólksbíll.
Þess má geta, að sendiferðabíl-
arnir eru 5-10 þús. kr. ódýrari en
fólksbíllinn. Innflytjandinn gerði
þetta aðeins til reynslu, og mun
tæplega flytja þá inn að gagni fyrr
en þeim hefur verið ekið á hol-
óttu vegunum okkar í nokkurn
tíma.
„Trabant 600“ er með stálgrind
og stálbotni- Yfirbyggingin er úr
sérstöku þlastefni, og eiga við-
gerðir að vera auðveldar ef eitt
hvað kemur fyrir. Vélin er tví-
gengisvél tveggja strokka, 23 hest
öfl. Fólksbíllinn vegur ekki nema
um 600 kg. Vélin er að framan,
loftkæld. Brennir liún blöndu af
olíu og benzíni eins og hinir
sænsku SAAB-bílar. Þá er „Tra
bant 600“ með framhjóladrifi.
Vagninn eyðir um fimm lítrum ef
miðað er við 40 km. meðalhraða.
Þessi bíll er ekki nýr á markaðn
um í A-Þýzkalándi, og að sögn
framleiðenda hefur hann reynst
SILDIN VID INGOLFSHOFDA
UM I0RFUM
Reykjavík 6. jan. — GO
— Það verður erfitt að sækja
alla þessa leið í misjöfnu tíðar-
fari, sagði Jakob Jakobsson fiski-
fræðingur, þegar við spurðum
liann álits á síldargöngunni við
Ingólfshöfða, en þar fengu yfir
MMUWtMMMMMMmtMMW
Goðafoss-máiiö
tekið fyrir 10.
febrúar
MÁL mannanna þriggja af
Goðafossi ,sem ákærðir voru
fyrir tilraun til þess að srnygla
írskum happdrættismiðum í
!>New York, verður væntanlega
tckið fyrir rétt þar í borg 10.
febrúar n. k.
MMHMMUHUMUmWMMW
20 skip ágæta veiði á laugardag- j
inn.
— Þetta er orðið svo langt frá
öllum síldarhöfnum, t d. er upp-
undir sólarhringssigling á Faxa-
flóahafnir. Vestmannaeyjar einar
geta ekki tekið nema takmarkað
magn í bræðslu, ef mokveiði verð
ur.
Síldin hefur að vísu látið sjá
sig þarna undanfarin ár, en lítið
verið nytjuð vegna þess að um
leið hafa önnur mið verið nærtæk-
ari.
Nú hefur hins vegar brugðið svo
við, að síldin, sem var í Kollu-
álnum í haust og frameftir vetri
hefur alveg horfið af miðunum.
Hún átti að vera komin hingað
suðureftir um þetta leyti. Þar
að auki hefur gangan, sem átti
að vera komin upp á Skerjadýpið,
ekki látlð sjá sig. Þorsteinn
þorskabítur hefur leitað allar
götur vestan af Eldey og austur
undir Eyjar en ekkert fundið.
Síldin, sem nú veiðist austur
'við Ingólfshöfða og í Meðallands-
bugt, er í stórum og góðum torf-
um og gæf. Við skoðuðum sýnis-
horn af henni í dag og mældist
hún frá 24 cm- upp í 34 cm. að
lengd. Meðallengd 29 cm. Minnsta
síldin er ókynþroska, en sú
stærri líklega sumargotssíld. Við
erum ekki búnir að fitumæla hana
sv ég get ekkert sagt um það at-
riði. Framh. á 11. síffu
Akureyri 6. jan. — GS ÁG
Banaslys varð hér í kvöld um
kl. 18. Kona, 71 árs gömul varð
fyrir bifreið á mótum Geislagötu
og Ráðliústorgs. Hún slasaðist
mikið og var þegar flutt á sjúkra-
hús þar sem hún lézt skömmu
síðar- Málið er í rannsókn.
Reykjavík, 6. jan - AG
SLYS varð á Snorrabraut um
klukkan 17.52 í gærdag. Þar varð
66 ára gömul kona fyrir bifreiff og
slasaffist alvarlega. Slysiff varff
rétt fyrir sunnan gatnamót Snorra-
brautar og Njálsgötu. Lenti konan
framan á bifreiðinni og kastaffist
í götuna. H«h var flutt á slysavarff-
stofuua en síffan á sjúkrahús. Hún
mun m. a. hafa handleggs- og fót-
brotnað. Ef einhver vitni liafa orð-
iff aff þessu slysi, eru þau beðin að
gcfa sig fram viff lögregluna.
HVERFUR
SURTSEY?
ALÞÝÐUBLAÐIÐ hafffi samband
viff Þorleif Einarsson jarfffræffing
í dag og spurffi hann álits um fram
tíff Surtseyjar. llann kvaffst ekki
vera bjartsýnn á haria, ef svo béldi
Slagsmálaleikir
á Hálogalandi
Sjá nánar á ÍÞRÓTTASÍÐU á bls. 10.
fram sem horfir. Ef gosiff tekur
sig ekki upp aftur af krafti ætti
eyjan aff hverfa í vetur. Hún er
mjög laust uppbyggff og veik fyrir
briminu.
Þorleifur sagðist síðast hafa
verið á ferð við Surtsey daginn
fyrir gamlársdag og þá hafi allt
verið í bezta gengi á staðnum,
mikið gos.
Þorleifur vildi ekkert segja um
áframhald á þessu gosi, hann hafði
því miður ekki tækifri til að fylgj-
ast með síðasta neðansjávargosi
sem varð hér við land árið 1783.
Þar að auki eru til mjög takmark-
aðar heimildir um það gos, enda
var þaS langt úti í hafi og fjarri
siglingaleið.
[MMD
45. árg. — Þrlðjudagur 7. janúar 1964 — 4. tbl.