Alþýðublaðið - 07.01.1964, Side 4
www*ww*wwwwwwwvmvmwwntw**M»*w*«wwwwww*M*w*WMMMW
i
j:;
< >
FYRIR fimm árum, var Far-
sta, rétt utan við • Stokkliólm,
> lítill og friðsamlegur sta'ður,
þar sem vindur þaut í vold-
ugum furutrjám og öldur
gjálfruðu við ströndina. Nú er
. Farsta orðinn hánýtízkulegur
bær með 30 000 íbúum, skýja-
kljúfum, verzlunarhverfúm,
stórum kvikmyndahúsum og
síðast en ekki sízt fyrstu
kjarnorkustöð heims, sem
■beitt er til hversdagslegra
>nota.
Þegar sú ákvörðun var tek-
in að reisa borg á þessum stað,
voru menn sammála um að
reisa hana á eins nýtízkuleg-
an hátt og frekast var unnt, og
hafa þar öll þau þægindi, sem
nútíminn hefur upp á að
bjóða. Og sú nýjung, sem um-
talsverðust þótti, var, að allur
straumur átti að koma frá þar
til gerðri kjarnorkustöð. Vitað
var, að byggingin mundi mik-
inn kostnað hafa í för með
sér, en ákveðið var, að gera
þessa tilraun með hliðsjón af
því, -að síðar yrðu reistar á-
móta borgir víða í Svíþjóð, svo
að útgjöldin yrðu öllu land-
inu til góðs, þegar allt kæmi
til alls.
Og nú er byggingu Farsta
lokið. I>ar liafa risið af grunni
villur í hundraða tali, raðhús
og 18 liæða liáhýsi, og allt er
þetta útbúið þeim nýtfzkuleg-
ustu þægindum, sem völ er á,
svo sem heitum og köldum
loftstraumi, lieitu vatni og
straumi frá kjarnorkustöð bæj-
arins. Enda þótt kjarnorku-
stöðin sé stór í sniðum og
viðamikil, þarf aðeins fimm
menn til þess að stjórna henni.
Af öryggisástæðum var hún
:grafin 20 metra f jörð niður
og allt gert til þess að úti-
• loka hættu á geislun.
•En það er sitthvað fleira
en kjarnorkustöðin, sem telj-
ast verður til nýmæla í Far-
sta, öll uppbygging staðarins
er samkvæmt nýjustu tízku.
íbúðarhúsin eru byggð saman
umhverfis verzlúnarmiðstöð,
þannig að húsmæðrúnum veit-
ist sem auðveldast að afla
nauðsynja til heimilisins. í
þessum innri hluta borgarinn-
ar er allur akstur bifreiða
bannaður. Flutningabifreiðir
sem aka vörum til verzlananna,
aka eftfr sérstökum jarðgöng-
um. Það er með öðrum orð-
um einkar friðsælt og hættu-
lítið að búa í Farsta.
Aliar íbúðir í borginni eru
fyrir löngu leigðar út og 50 000
manns eru á biðlista.
I@|a, félag verksmiSjisfélkss
Framboðsfrestur
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu
um kjör stjómar, varastjórnar, trúnaöarmannaráðs og vara
manna í trúnaðarmannaráð, endurskoðenda og varaendur
skoðenda félagsins fyrir árið 1964.
Framboðsfrestur er til kl. 12 á hádegi fimmtudaginn 9.
jan. 1964 og skal tillögum (uppástungum) skilað í skrif-
stofu félagsins fyrir þann tíma.
Hverri tillögu skulu fylgja skrifleg meðmæli 100 fullgildra
félagsmanna.
Reykjavík, 7. janúar 1964.
Stjörn Iðju, félags verksmiðjufólks,
Augiýsing frá Bæjarsíma
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar
Verkamenn vantar nú þegar við jarðsímagröft. Ákvæðis-
vinna.
Ennfremur láðstoðarmenn við línutengingar.
Upplýsingar gefa verkstjórar bæjarsímans Sölvhólsgötu 11,
símar 22017 og 11000.
OKKUR VANTAR STÚLKUR
til starfa vil? frystihúsið.
Ákvæðisvinnaivið pökkun og snyrtingu.
Ennfremur vantar okkur karlmenn í fiskað-
gerð.
Fæði og húsnæði á staðnum. Upplýsingar í
símum 1104 og 2095.
JAPANIR ERU KUNNIR að því
að vera allra þjóða kurteisastir.
Nú er svo komið að þeim finnst
sjálfum kurteisin vera farin að
hevra úr hófi fram svo að henni
þurfi áð sctja ákveðin mörk.
í áraraðir hefur það verið svo í
Japan, að misyndismenn hafa get-
að stundaö iðju sína á götu úti og
•opinbérum stöðum nær óhindrað-
Vegfarendur, sem liafa orðið vitni
að því, að saklausum meðborgara
væri misþyrmt, hafa aðeins snúið
-bak við atburðinum eða gengið
framhjá eins ög ekkert hefði í-
skorizt. Menn hafa hugsað sem
svo, að ekki væri ráðlegt að
blanda sér í það sem þeim komi
-ekki beinlínis við. Af því geti þeir
aðeins hlotið óþægindi og tíma-
töf. þess eru dæmi, að menn hafa
verið myrtir í Japan um hábjart-
-ap dag á fjölfarinni götu, án þess
að nokluir vegfarendi hreyfði lillá
fingur til þe;s að klófesta morð-
iUfjann.
Nú hefur skyndilega gerzt rót-
tæk breyting í þessum efnum; Hún
tiófst þannig, að maður nokkur
skrifaði dagblaði bréf og kvart-
aði' sáran yfir því að ráðizt iiaíði
verið á hann úti a götu, og honum-
■•niíþyrmt iliilega, án þess nokkur
rétti honum hjálparhönd. Fjöldi
fólks varð vitni að líkamsárásinni,
j en enginn hafði kjark í sér til þess
Japanskt götulíf.
að skerast í leikinn. í kjölfar þessa
litla bréfs sigldi fjöldinn allur af
bréfum frá fólki, sem hafði orðið
fyrir sömu reynslu. Þegar bréfun-
um tók að fjölga, skrifaði blaðið
liarðorðan leiðara- Þar stóð meðal
annars þetta: „Hvers konar gung-
ur erum við eiginlega? Þorum við
ekki að skerast í leik og rétta þeim
samborgara okkar hjálparhönd,
er beitlur er órétti og líkamsmcið
ingu í augsýn okkar? Er ekki timi
til kominn að við herðum upp hug-
ann og látum til okkar taka, jafn-
vel þótt ekki sé um okkar eigið
dýrmæta líf að ræða?“
Önnur blöð tóku í sama streng
og lögreglan hvatti fólk til að
hjálpa þeim samborgurum sínum,
sem yrðu fyrir árás á götum úti.
Nú er svo komið, að sá sem gerist
sekur um smávægilegustu pústra,
til dæmis í biðröð, er þegar í stað
húðskammaður af öllum þeim sem
stóðu hann að verki. Dómstólarn-
ir gerðu einnig sitt til þess að
i leggja þessu máli lið með því að
dæma harðar en áður líkamsárásir
! og r5n á götum úti.
Árangurinn af þéssari herferð ]
heftfr þegar komið í ljós. Afbrotum í
I á almamiafæri fer stöðugt fækk- j
andi í Japan. i
HraSfrysfihús Keflavíkur h.f.
Alþýöublaðið
vantar unglinga til að bera blaðið til áskrif-
enda í þessum hverfum:
Hverfisgötu
Lindargötu
Rauðarárholti
Laugateig
Laufásveg
Ásgarði
Kleppsholt
Melunum
Tjarnargöíu
Rauðalæk
Afgreiðsla Alþýðublaðsins
Sími 14 mo
Áuglýsið i Albýðuhlabirw
Augiýsingasiminn er 149 06
4 7. jan. 1964 — ALÞÝÐUBLA9IÐ