Alþýðublaðið - 07.01.1964, Blaðsíða 16
VALT Á ÞING-
VALLAVEGINUM
Reykjavík, 6. jan., - GG
JEPPI fór út af vegrinum i'ið Mið-
fell í Þingvallasveit sl. laugardags
kvöld, og lenti á hvolfi með þeim
MMWtMMHWWMVmHMMW
Skeyti frá
ij Páli páfa
FORSETA íslands barst i
gær símskeyti frá Páli páfa
VI., sem hljóðar svo í ís-
lenzkri þyðingu:
Frá hinni helgu borg Je-
rúsaiem viljum vér fullvissa
yður um, að vér höfum beð-
ið heitt til guðs nm vel-
gengnl og frið meðal allra-
þjóða i réttlæti og bróður-
kærleika.
afleiðingum, að kona, sem í bílnum
var, meiddist á höfði og var flutt
á Slysavarðstofuna í Reykjavík.
Orsök slyssins var mikii hálka á
veginum og afspyrnurok og rign-
ing. Konan mun ekki hafa verið al-
varlega meidd og Iíða eftir at-
viku'm vel.
Beðið var um sjúkrabíl frá
Reykjavík, en er hann kom að
Svanastöðum kom bíll á móti að
austan og var hann með konuna.
Gekk því tiltölulega fljótt að
koma konunni á Slysavarðstofuna.
En hálkan og rokið á Mosfellsheið
inni var slíkt, að það tók lögregl-
una tvo tíma að komast austur, og
neyddust lögreglumennirnir til að
setja á keðjur uppi á heiðinni, því
að engin leið var að hemja bílinn
án þeirra á veginum vegna hálku
og roks. Kvaðst Jóhannes Björg-
vinsson, varðstjóri í vegalögregl-
unni, aldrei hafa lent í annarri
eins hálku á Mosfellsheiði.
'Á
Nýársfagnaður Alþýðu-
flokksfélags Reykjavíkur
Nýársfagnaður Alþýðu
flokksfélags Reykjavíkur
verður haldinn í LeikhúskjaH-
aranum föstudaginn 10. janúar
næstk. og. hefst kl. 8.30 e- h.
Meðal skcmmtiatriða er söng
ur Savannah-trlósins, leikþátt-
ur, ávarp og söngur ítalska Sal-
vadore-trlósins, en hljómsveít
Sigúrðar Þ. Guðmundssonar.
leikur fyrir dansi til kl. 1 e. m.,j
söngkona verður Ellý Vil4
hjálms. Verð hvers miða er SOf
kr- pg við pöntunum er tekiði
á skrifstofum Alþýðuflokksinsv’
símar 15020, 16724. Kvöldverðj
er liægt aS panta í Leikhús-
kjallaranum, sími 19636, {
„ÞETTA ERU RÚS
ORRÆNUM UPPRUNA
NORSKI fornleifafræðing-
urinn Helge Ingstad, sem kunn
ur er hér á landi og víðar fyr-
ir rannsóknir sínar á fornum
húsarústum, er liann hefur
fundið á Nýfundnalandi, stað-
festi þegar hann snéri aftur til
Oslóar um áramótin frá Banda
ríkjunum, þar sem hann hefur
iráðfærzt við bandaríska vís-
indamenn, að vísindamenn
væru nú alveg sannfærðir um,
að rústirnar væru af norræn-
um uppruna og frá því um ár-
ið 1000.
Á blaðamannafundi, sem Ing
stad hélt í Washington í nóv-
ember, lýstu tveir kunnir banda
rískir sérfræðingar, dr, Julius
Bird frá American Museum
of Natural History í New York
og dr. Henry B- Bollins frá
Smithsonian Institute, sig al-
gerlega sammála niðurstöðu
Ingstads:
íslendingasögur fara rétt
með, norrænir sæfarar fundu
Vínland um árið 1000.
Þetta hefur vakið mikla at-
hygli í Bandaríkiunum og ver-
ið efni í forsíðufréttir, sagði
Ingstád í blaðaviðtali við helm
komuna. Norskt blað sagði í
fyrirsögn- „Colombus steypt
af stóli, norrænir menn fundu
Vínland.“
Helge Ingstad tók skýrt fram
að starfinu væri hvergi nærri
lokið. Vinna yrði úr mörgum
gögnunr og síðan yrði að
semja bók uin rannsóknirnar
Hins vegar bætti hann við,
að fleiri uppgreftrir yrðu ekki
gerðir, þeim hluta starfsins
væri lokið.
Fjögurra ára starf Ingstads
og samstarfsmanna lians liefur
vakið mikla aðdáun: Fyrst
voru gerðar nákvæmar athug-
anir úr flugvélum og skipum á
stórum strandlengjum . sam-
kvæmt túlkun hans á íslend-
ingasögum. En árangur varð í
fyrstu neikvæður txnz fiskrmað-
ur nokkur benti á hvar riistirn-
ar voru-
Því næst yar hafinn uppgröft
ur, mælingar gerðar og; ljós-
myndir teknar unz allir, eins
og norskt blað kemst að- orði,
urðu að beygja sig fyrir sönn-
ununum: Norrænir menn fundu
Ameríku, 500 áruin á undan
Coiombusi.
Ingstad segir í blaðaviðtal-
inu, að alls hafi verið gerðar
13 mælingar á geislavirkni kol
efnis með svokallaðrj C-14 að-
ferð og í ljós komið, a» allir
hlutirnir, sem fundust séu frá
því um árið 1000.
— Við getum ekki sagt neitt
ákveðið um það. livort rústirn-
ar, sem við höfum þar með
fundið, péu einmiilt hinir
gömlu bústaðir Leifs Eiríks-
sonar. Sennllega hafa verið
farnar nokkrar ferðir eftir að
Leifur fann Vínland unz þær
hættu með öllu.
— Það er undarlegt að hugsa
til þess, að meim hafi getað
komizNi yfir hafið á þtessuiri
tíma. En þegar þeir voru komn
ir svp Iangt, að beir ráknst á
Baffinsland og fy’gdu ^trönd-
inni suður á bóginn varð norð
uroddi Nýfundnalands einmitt
á vegi þeirra. í dag er þorp
þarna í grenndinni, Lance aux
Meadows.
— ;Rústirnar eru óskemmdar
en ajðeins eitt hús frá sfðari ;
tímixip hefði eyðilagt þær. Alls
hafa verið grafriar unp rústir
Framh. á 11. síða
•)
IMMMMMMMMMMMM»MMMMMWMMMMWMMMMMMMMMMM>MMWMMMMMMMMM
MIKIL AÐSTOÐ VIÐ FLÓA-
KÍKISSJÓÐUR mun veita á þessu
íri 24.5 milljónir króna til að
f tanúa undir lialla á Skipaútgerð
ríkisíns, styrkja flóabáta og aðra
vörufluíninga og til byggingar
flóabáta. Er halli Skipaútgerðar-
iinnai áætiaður 18 milljónir á fjár-
lögum, en tii flóabátanna er veitt
6 inilljómuin.
Þessir styrkir eru nú hærri en
nokkru sinni vegna aukins til-
kostnaðar óg sums staðar aukinnar
jþjónustu. Vestmannaeyingar hafa
fyrir nokkru fengíð sitt skip, Herj-
<51£ og Norðlendingar nýjan flóa-
bát, Drang. Þá er nýkominn til
landsins nýr Djúpbátur, Fagranes-
ið, og samið hefur verið um smíði
á nýjum Breiðafjarðarbát í stað
Baldurs.
Fyrir utan Skipaútgerð ríkisins
etyrkír ríkið 20 flóabáta eða vöru-
flutninga, þar sem sérstaklega
stendur á. Þar af eru fjögur all-
myndarleg skip, sem sigla fjölfarn
BÁTA OG STRANDFERDIR
45. árg. — ÞriSjudagur 7. janúar 1964 — 4. tbT.
astar leiðir
stoð.
Þessi skip eru:
en fá líka mesta að-
Styrkur
1.250.000
1.250.000
975.000
900.000
Fagranes
Akraborg
Baldur
Drangur
Flestir hinna bátanna eru litl-
ir fiskibátar, sem stunda farþega-
flutninga að auki. Þar er Stranda-
bátur (160.000), Hríseyjarbátur
(35.000), Flateyjarbátur á Skjálf-
anda (65.000), Loðmundarfjarðar-
bátur (50.000), Mjóafjarðarbátur
(200.000), Herjólfur vegna mjólk-
urílutninga til Eyja (200.000),
Flateyjarbátur á Breiðafirði, Kon-
ráð (310.000), Langeyjarnesbátur
(60.000) og aðrir minni.
Einnig eru sums staðar studdir
snjóbílar og flugferðir, þar sem
sérstaklega stendur á (Grímsey,
Örævi) og jafnvel bílaflutningar
Framh. á 11. síðu
mWmWWtWMWMMMWWWWWMWMM. WWWWWWVWmttWWaiVWWIÁMMW
«