Alþýðublaðið - 19.01.1964, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 19.01.1964, Blaðsíða 5
Persónuleg vandamál eftir séra Jakoh Jónsson: UNGUR maSur ritar mér hrein- skilið bréf varðandi fcrmingu og fermingaraldur. Hann spyr, hvort ég myndi hafa ó móti því, að ferm- lngaraldurinn yrði fluttur til 21 ' árs aldurs? Honum finnst 13 ára bam varla vera þess um komið að lýsa því yfir, að það vilji hafa Jes- ; um Krist að „leiðtoga lífs síns”. 1 Á hinn bóginn sé nærri því ógern- ingur fyrir barn á þeim aldri að skera sig úr, þegar fjöldi annarra barna fermist, og komi þar einnig til greina bæði löngun í ferming- . argjafir, veizlur, og annað af því tagi. Þannig sé kirkjan sek um það að lokka börn til að gefa lof- orð, sem þau síðar kunni að iðrast eftir að hafa gefið. Fermingin verður mjög sncmma til sem kirkjuleg siðvenja, enda sálfræðilega séð í samræmi við , venjur og hefð fjölda annarra trú- 1 arbragða, þar sem með einhverju j móti eru afmörkuö skilin milli i bernsku og æsku. Hver sé heppileg asti fermingaraldurinn, er umdeilt efni, og fer nokkuð eftir því, hvernig Iitið er á gildi fermingar. Innan Lúthersku kirkjunnar hefur mátt greina tvær stefnur, sem kenndar hafa verið við rétttrúnað- arstefnuna og píetismann. Á rétt- -trúnaðartímabilinu er fermingin fyrst og fremst einskonar loka- próf í kristnum fræðum og kristi- Iegu siðferði, sem þá er miðað við ytri framkvæmd siðaboðanWa. — Fermingarbörnum, sem eru illa að sér, er þá vísað frá fermingu, þangað til þau hafa annað hvort náð tilteknu þekkingarstigi eða þá, að slakað er á kröfunum við þau sökum skorts á námshæfileikum (Smbr. að fermast upp á stóra stíl- inn, fermast upp á faðirvorið o. s. frv.) Píetisminn leggur meira upp fir trúartilfinningunni, og ferrn- ingarundirbúningurinn, ásamt fernjingunni sjálfri er þá skoðað- ur sem tækifæri kirkjunnar til trú- arlegs uppeldis, án þess að úrslita ; dómur sé lagður á hvern einstak- ling. Tilgangur fermingarinnar er sá að stuðla að því, að ungmennið taki sína ákvörðun og játist undir kristna trú sem lífsStefnu. — Eins og fermingin er framkvæmd nú hér á landi, er reynt rð sameina bæði þessi sjónarmið. Trúarbragða fræðsla fer fram, þangað til vissu lágmarki er náð, en jafi'framt er prestunum ætlað að hafa guðrækn is- og bænarstundir með börnun- um. Við ferminguna er borin fram persónuleg játning á þann hátt, að barnið svarar játandi þessari spurningu: Viltu leitast Við af fremsta megni að hafa frelsara vorn Jesúm Krist að leiðtoga lífs- ins? Spurningu unga mannsins um fermingaraldurinn myndi ég vilja svara á þann veg, að það xnyndi vera ógerningur í íslenzku þjóð- félagi og víðar að koma því við, að fólk um tvítugt „gengi almennt til spurninga”, vegna atvinrulífs- ins, þótt ekki væri annað. í öðru lagi er óeðlilegt að gera róð fyrir því, að kr s'nir ^oreldrar láti drag ast að koma börnum sínum undir trúarleg áhrif, fremur en að tryggja þeim fræðslu um önnur nauðsynleg efni. Og það liggur í augum uppi, að foreldrarnir og kirkjan liljóta að taka á sig þá á- byrgð að lóta sér annt um þennan þátt í uppeldi barnanna, eins og aðra, svo sem líkamsrækt og al- menna fræðslu. En þá er eftir að athuga, hvort krefjast má eða fara fram á nokkura trúarjátningu af hálfu ungmenna á venjulegum fermingaraldri. Ég minnist þess, að þegar ég var unglingur, lagði ég þá spurningu fyrir mann nokk- urn í þorpinu mínu heima, hvort honum fyndist ekki of mikils krafizt af fermingarbörnum, er þau inntu af hendi sitt fermingar- heit. Hann svaraði: Eg veit bara um sjálfan mig, góði minn, að mér þykir ekki eins vænt um neitt eins og það, að hafa undir eins á barns- aldri fengið tækifæri til að játa frelsara mínum trú og hollustu”. Þannig leit ’hann ó málið, lífs- reyndur, íslenzkur alþýðumaður. - En á hinn bóginn megum við ekki láta okkur sjást yfir það, að til eru ungir menn, sem hugsa líkt og bréfritarinn: Hef ég ekki lofað cin- hverju, sem ég get alls ekki við? — Nú segi ég fyrir mitt leyti, að út frá kynnum mínum af börn- um og unglingum vil ég alls ekki ganga inn á, að fermingarbörn yfir leitt finni ekkert í fermingu eða fermingarundirbúningi, annað en ógirnd í gjafir og annað þess hátt- ar. Það vináttusamband, sem svo oft myndast milli prests og ferm- ingarbarns, bendir hvað dýrmætara hafi verið um ræða en prjál eitt og lái heldur engu fermingarbarni, þótt því þyki vænt um fermingargjafir. — mitt átti ég fram á fullorðins ár, og hugsa til þess með sórsauka, að það skuli hafa týnzt austur á Hell- isheiði eða inni í Þjórsárdal. Þessi gjöf liafði á sínum tíma verið mér dýrmætur vottur um elsku foreldra minna ó merkri stund í lífi mínu. Hitt veit ég og skil, út frá eigin reynslu og margra annarra, að ung ir menn ganga oft í gegnum annað hvort efasemdatímabil, allskonar andleg umbrot, eða finna trúartil- finningu sína dofna um skeið. En — sú barátta, sem þessu fylgir, er að mínu áliti vottur þess, að „Guð togar í manninn”, og sleppir hon- um ekki. Unga manninum og öðr- um, sem liorfast í augu við þetta, myndi ég ráða til þess að gera tvennt: í fyrsta lagi að leggja sig enn betur eftir því að skilja Krist sjálfan, persónu hans og kenningu, meðal annars með þvi að leita meiri fræðslu á vegum kirkjunn- ar, taka þátt í guðsþjónustum og vera með í æskulýðsstarfi, þar sem hann kynnist ungu fólki á þeim vettvangi. — Og í öðru lagi, vil ég ráðleggja það, sem mörgum kann að virðast fjarstæða, — en það er að spyrja sjálfan sig þessarar spurningar: Get ég, þrátt fyrir „trúleysi” mitt, efagirni og umrót, að einhverju leyti haft Jes- um Krist að leiðtoga lífs míns? Sem betur fer eru þcir margir til, sem varðveita lotningu sína fyrrr persónu Krists, þótt þeir hafi margt að athuga við kenningar kirkjunnar, kristna menn, og ef til vill ekki sízt prestana. Spurn- ingin við ferminguna er sem ré ekki spurning um algera eða full- | komna trú, heldur viðléitrii mannH | með manhlegum takmörkunum tilt I að fylgja þeirri lífsstefnu, sem Jes - I ús markar. Æðsta boðorð hennar er að elska Guð og náungann. —. Þetta gerir enginn fullkomlega, — og lengi mætti fermingarundir- búningurinn halda áfram, ef vév ættum að híða með að játa sam-" stöðu með Jesú frá Nazaret, þang að til engin vafaspurning væri lengur til i huga vorum. Jakob Jónsson. > ’ aiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiii,i,i„ii,i,iii|l||„l||ll||ll|lll|||||llll|,l|||l|,ll|l|lllll|ll||l|lllll|l|ll|llllllll|llll|l|„ll iiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiMimiiMiiiiiiiii* •■mll••mml•■l■lMlmlllmlllmmmlllllll•l• mmimiimmimmmiiiiii 1111% trJ í r = u S / NYTT HEFTI AF AFANGA Teikning eftir Hiein Friðfinnsson viff smásögu eftir Djilas. Fyrir skömmu kom út 3. hefti af ÁFANGA, 1963. Blað ið er óvenju fjölbreytt að efni og sriyrtilegt að öllum frá- gangi, skreytt fjölda mynda. Ritstjóri Afanga er Sigurð- ur Guðmundsson, og í inn- gangjsgrein fremst í blaðinu segir hann meðal annars, ,,að nú verði gerð gangskör að því að fjölga áskrifendum verulega jafnframt því sem efnisskip- an verði breytt ínjög á þann vcg, að þar verður fyrst og fremst vandað efni um jafn- aðarstefnuna og Alþýðufiokk- inn, bæði eftir innlenda og er- lenda jafnaðarmenn, greinar um alþjóða stjórnmál og vefka lýðslireyfinguna, þjóðmál kom andi ára og liðinna, umsagnir um stjórnmálarit o.s>.frv.“ Af greinum í þessu hefti af Áfanga má nefna: Jafnaðar- stefnan >nú á tímum, greinin er samtal milli Ernst Wigforss og Viggo Kampmann, Stöðnuð verkalýðssamtök, eftir Sigurð Guðmundsson, þá er grein um launamál á Vesturlöndum, Björgvin Guðmundsson skrif- ar um bókina Iceland, Reluc- tant Ally, smásagan, Styrjöld, eftir Milocan Djilas, Vanda- mál vesturlanda eftir Paul Henri Spaak, og birt er í rit- inu sameiginleg stefnuskrá jafnaðarmannaflokka í löndum EBE, fleira efni er i þessu 3. hefti Áfanga. . ^fllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllM >*ltllllllllllllllllllll||||llllllllllllllllillllllllllllllllllillllMMMIIIIIIl •IMMI IIIMIIIIIHIIÍÍlHIIMIIIIIIMIMtlMllimilHIIHIIIIIIIHIIMIIIIHIIIIIIIIHIIMIHIIIIIIIHUMIIIItlM*H|IIMIHMIIItMIMMMIMMIIHtlllMIHMIIIIMIIIMIIIMIIIII®l ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 19. janúar 1964 5 BER AÐ HÆKKA FERMINGARALDURINN?

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.