Alþýðublaðið - 19.01.1964, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 19.01.1964, Blaðsíða 8
SÚ var tíðin, að loðdýrarækt var töluvert stunduð hér á landi og var talin allarðbær atvinnugrein. Nú er af sem áður var, og minka rækt bönnuð með lögum og síðustu silfurrefirnir drepnir fyrir um það bil tveim árum. Þessu er öðru visi farið hjá frændum vorum og nágrönnum á Norðurlöndum. Þar er minka- ræktin arðbær atvinnugrein, sem gefur af sér tugi milljóna í bein- hörðum gjaldeyri á ári hverju. Um þessar mundir standa ein- mitt yfir uppboð á skinnum í Nor . egi, Danmörku og Svíþjóð. Fyrsta .uppboðið hófst í Noregi skömmu fyrir miðjan mánuðinn, það •stærsta verður í Danmörku 17. janúar og ao þvi ioknu, verður upp boð í Stokkhólmi. Danska blaðið Aktuelt birti fyr ir nokkru athyglisverða grein um minkaræktina í Danmörku og fer meginefni greinarinnar hér á eft- ir, en áður en við athugum hvað Danir hafa að segja, væri ekki úr vegi að fá álit Sveins Einarsson- ar, veiðistjóra, á þessum málum. SKEKKJA AÐ HÆTTA. — Hvað er langt síðan minka rækt var bönnuð hér á landi? —Hún var víst bönnuð 1952. Þá voru þau dýr, sem eftir voru, annað hvort drepin eða seld úr landi. Sum þeirra voru mjög verð mæt. — iivao um að hefja hér minka rækt að nýju? — Mér finnst ekkert á móti því. Það yrði að vísu geysilega kostnaðarsamt, því samkeppnin er hörð á þessum vettvangi. Nú eru Japanir, Indverjar og Kínverjar famir að framleiða minkaskinn í milljóna tali árlega, og getum við meira að segjá fengið þessi skinn keypt í verzlunum hér á ís- landi. — Ég held að það hafi verið skekkja að hætta þessu, fyrst mink urinn var orðinn landlægur á ann að borð. Það' er yfirleitt alltaf hægt að handsama þá aftur þót/ þeir sleppi úr búrum, því vana lega Ieggja þeir leið sína þang- Danskur minkabúseignandi með tvö minfeabúr. aö fljótiega eftir ao ai sieppa í leit að æti, og þá er hægt að veiða þá í venjulegar minkagildr ur. — Mér fannst það líka skekkja þegar síðustu silfurrefirnir voru drepnir hér fyrir svo sem tveim árum. Það hefði átt að halda þessu kyni við. í Ðanmörku er mönnum til dæmis hjálpað til að koma í veg fyrir að stofninn deyji út. Tízkan getur alltaf breytzt og það er ekki að vita hvenær refaskinn in geta stórhækkað ,í verði á ný. — Er ekki auðvelt að koma í veg fyrir að dýrin sleppi úr búr- um? — Það er að sjálfsögðu tiltölu lega auðvelt, en hins vegar geta slys alltaf átt sér stað og sömu- leiðis er það stundum hreinum skemmdarverkum að kenna að dýr in sleppa út. — Eru skinnin af íslenzka villi minknum verðlaus? — Það eru þau engan veginn. Annars voru skinnin af þeirri teg und, sem mest slapp út af, ekki ýkja verðmikil. En skinnin eru alls ekki verðlaus, einkum eru það hvolpaskinnin sem bezt eru talin, en pelsatíminn (þ. e. a. s. þegar skinnin eru bezt) er á haustin og fram á vetur. — Við flytjum út minkafóður, og er þá ekki góð aðstaða hér til minkaræktar? — Jú, tvímælalaust mjög góð, þar sem við höfum þessi ósköp af fiskúrgangi, sem er ákjósanlegt fóður. — Að lokum, fer minknum fjölg andi hér? — Nei, honum hefur fækkað stórlega undanfarin ár og er al- veg haidið niðri. Nú eru allar aðstæður miklu betri til að ráða við hann, en var þegar lögin um bann við minkaeldi voru sett fyr ir 12 árum. EINN OG HÁLFUR MILLJARÐ- UR. í Glostrup í Danmörku er sögð vera glæsilegasta uppboðshöll loð dýraskinna í víðri veröld. Þar er veltan á ári, einn og hálfur mill jarður ’slenzkra króna, og þar eru seldar 2,5 milljónir minka- skinna. í meðalstóran pels þarf 60—80 skinn og pels úr svörtum minkaskinnum kostar milli 120 og 180 þúsund íslenzkrar krónur, þótt hægt sé að sjálfsögðu að fá enn dýrari flíkur úr verðmætari skinnum. Uppboðin þarna sækja tugir manna og koma víða að. Á upp boðinu núna eru menn frá, Kan ada, Bandaríkjunum, Englandi, þýzkalandi, Sviss, • Frakklandi, Ítalíu, Beigíu, Spáni, Suður-Af- ríku, Austur-Þýzkalandi og Ástra líu. Danir velta því nú fyrir sér hvort þetta verði ekki eitt stærsta loðskinnauppboð, sem , nokkru sinni hefur verið haldið. Þar verða í ár seld 500 þúsund dönsk skinn og síðan 250 þúsund skinn frá Finnlandi. Fullyrt er að þetta sé stærsta uppboð, sem nokkru sinni hefur verið haldið í Ev- rópu. Ef reiknað er með, að hvert skinn kosti 620 íslenzkar krónur verða keypt þarna skinn fyrir 465 milljónir íslenzkra króna. Það eru engar smáræðistölur, sem hér koma við sögu, og má 8 19- janúar 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.