Alþýðublaðið - 19.01.1964, Blaðsíða 7
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur
íiefur samþykkt að hefja byggingu
ráðhúss í norðurenda tjarnar-
fnnar. Skipulagsnefnd hefur ver-
ið í ráðum um staðsetningu húss
jns og bregður varla fæti fyrir
það héðanaf. Er þá aðeins einn
aðili, sem hugsanlega gæti spillt
þ«(ssum myndarlegu fyrirætlun-
um: Alþingi
Um langt árabil hefur öðru
hverju verið talað um byggingu
þingmannabústaðar eða nýs þing-
Mss, en aldrei tekið á þeim mál-
um af festu.
Á síðasta þingi var skipuð nefnd
<og voru í henni þingforsetar og
fulltrúar flokkanna. Þessi nefnd
kom nokkrum sinnum saman, en
mikill ágreiningur reyndist milli
þingmanna, og varð ekkert úr
frekari aðgerðum. Á meðan gerðu
ráðamenn höfuðborgárinnar upp
hug sinn um ráðhús og staðsetn-
ingu þess, og luku undirbúningi.
Meðal þingmanna komu fram
tvær höfuðstefnur. Önnur var sú,
að Alþingi yrði í framtíðinni á
sama stað í miðbænum og það
hefur verið síðan 1881. Hin að þing
jð ætti að leita að öðrum stað og
Þessi deila hefur lamað bygg-
ingamál þingsins, en nú verður að
hrökkva eða stökkva. Ef Alþingi
vill reisa framtíðarbyggingu við
norðurenda tjarnarinnar -og
hrekja ráðhúsið á brott, verður
sú ákvörðun að takast fljótlega,
eigi bæði málin ekki að liggja
kyrr um langa framtíð.
Alþingi hefur áður kannað
þann kost, að byggja við gamla
hú ið til suðurs, út að Vonar-
stræti. Árið 1917 gerði Guðjón
Samúelsson teikningu að stór-
hýsi á þessum stað, sem átti raun
ar að hýsa Háskólann. Síðar voru
gerðar teikningar að húsí' fyrir
þingið sjálft, en flestir þingmenn
munu telja þetta vafasama lausn.
Er hætta á, að gamla húsið cyði-
leggðist, ef byggt væri við þáð.
Nýtt þinghús yrði að koma sunn-
an Vonarstrætis, þar sem ráðiiús-
inu er ætlað að standa.
í þingnefndinni kom fram þriðja
hugmyndin, sem tilraun til að
leysa þessa deiiu. Hún var sú, að
taka lóðirnar vestan við Alþingis-
húsið, fyrst vestur að Tjarnar-
göcu, og reisa þar nýtt þinghús,
sem sneri fram að breikkuðu
AUSTÚR-
VÖLIUR
IN60LFS*
LUHÖUR
ÞiNúiTAM
TJOKNIH
Benedikt Gröndal
skrifar um helgina
Þetta lauslega riss sýnir sunnanverðan miðbæi nn, eftir að ráðhúsið hefur verið reist, íðnó og Bún->
aðarfélagshúsið rifin. Svörtu húsin eru þær varanlegu byg’gring-ar, sem eru tunhvérfis' hugsanlegan þlng '
stað. (1) er gamla þinghúsið og sunnan við það garðurinn. Sumir \iija byggja- við húsið beint til súoúrs,
í áttina að ráðhúsinu. (2) er Oddfeílowhúsið. (3) er Herkastalinn og sumtan hans Síeindórsprent, en
þessi hús mætti fjarlægja síðar og stækka þingstaðinn. (4) er Landssímabyggingin, setn ntæHi fá hlið 'áW
breikkuðu Kirkjustræti. Gert er ráð fyrir breilckun Kirkjustrætis og nær það beánt út í LæUjargötn.
Alþingi virðist eiga um þrennt að velja: Að hrekia ráðhúsið burt og reisa þar þínghús, bygg ja á þíagn
staðnum á kortinu að ofan — effa fara úr miffbænuni og byggja á nýjum staff.
FSTií'i'
tfinponj
hyggja þar til frambúðar.
Höfuðrök með þessum tveim
stefnum voru sem hér segir:
1. Alþingi var staðsett í hjarta
höfuðborgarinnar og þar á það að
vera. Enda þótt gamla þinghúsið
sé aðeins áttrætt, hefur það milda
sögulega hefð, en þjóðin á ekki
margar byggingar, sem það verð
ur sagt um. Seinni hluti sjálf-
stæðisbaráttunnar var háður í
þinghúsinu við Austurvöll. Þar
fengum við heimastjórn, fullveldi
1918, og þar var ákveðin stofnun
iýðveldisins. Þetta hús er við hlið
Þingvalla mesti sögustaður lands-
ins.
2. Alþingishúsið er nýleg bygg-
ing, sem danskir embættismenn
létu reisa og skáru við nögl. Al-
þingi var lengur á Þingvöllum og
Jón Sigurð.SiOn starfaði í Mennta
skólahúsinu, þegar þingið var þar.
Hið nýja ísland á að reisa nýtt
þinghús á nýjum stað. Gamla hús-
ið getur notazt sem dómhús Hæst-
aréttar eða eitthvað því um líkt.
Kirkjustræti (sjá kort). Þessi hug-
mynd hefur eftirfárandi kostú
1. Nýtt þinhús mundi ekki verða
viðbygging við gamla húsið, en
væri þó svo nálægt, að Alþingi
gæti notað það áfram og verið á
sama stað.
2. Landrými er þarna mun meira
en virðist við fyrstu sýn, og ein-
göngu gömul timburhús, sem
hvort eð er verða að hverfa eft-
ir fá ár.
3. Samkvæmt skipulagningu
danska sérfræðingsins Peter Bred
sdorff á Kirkjustræti og breikka
og ná út í Lækjargötu að austan
en upp í Garðarstræti að vestan.
Handan götunnar eru Austur-
völlur og Ingólfslundur, sem
tengja má saman, þegar gamla
apótekið (nú Rauði krossinn) hverf
ur.
4. Staður þessi er rétt við bæjar
stæði Ingólfs.
5) Þinghúsbygging og ráðhús
mundu hvorug skyggja á hina eða
lýta á nokkurn hátt, en miUi
Kirkjustrætis og Tjarnarinnar yrði
háborg þings og höfuðstaðar, glæsi
legar byggingar með torgum og
görðum á milli.
6) Eftir 40-50 ár verður timá
bært að rífa Herkastalann og
stækka þingstaðinn í vestur út að
Suðurgötu með fögrum garði.
Gegn þessum stað eru vafalaust
mörg rök. Sumir nefna umferðar
vandamálið, en það væri ekki
minna, ef reist væri stórt verzlun
arhús á lóðinni, eins og gert er
ráð fyrir. Með þessu móti yrðu
meiri auð svæði en á þeim teikn-
ingum, sem til eru af þessu hverfi.
Ef þetta reynist ekki leið til
lausnar, verður Alþingi annað
hvort að víkja — eða reka ráðhús
ið burt.
Vílti þingið, vérður varla um
annan stað að ræða en ísbjarnar
lóðina sunnan við Tjörnina. Það
er ein fegursta byggingalóð bæj
arins — en ekki í hjarta borgar
innar. Þar munu skapast mikil um
ferðarvandamál, því þröngar og
byggðar íhúðagötur liggja að
þeim stað.
Þrengsli í alþingishúsinu eru
fyrir löngu orðin svo mikil, að
engin stofnun önnur mundi una
við. Hvergi er friðland, þar sem
þingmenn geta talað við kjósend
ur sína. Lestrarsalur þingsins er
almenningur, anddyri hússins er
kaffistofa og óbreyttir landsmenn
verða að ganga inn um bakdyr.
Ríkisstjórnin hefur ekkert afdrep
í húsinu.
• Hugsanlegt væri til bráðabirgða,
að þingið tæki við Tjarnarkaffi,
þégar Lóftleiðir flytja í nýja hiis
ið á flugvellinum. Mætti hafa
flokksherbergi þar og rýma í þing
húsinu. Síðan mætti gera heildar
skipulag fýrir nýjan þingstað og
byrja að reisa nýtt þinghús eftir
4-5 ár, þegar ráðhúsið verður
komið vel á veg, svo að ekki verði
Áriff 1917 gerði Guffjón Samúelsson teikningar aff viffbyggingu viff alþingishúsiff, nokkurn vegitm i sanía stíl. "Átfi - þetta hús aff
vera fyrir Háskóiann. Sumir vilja enn reisa viðbyggingar, sunnan viff alþingishúsiff til aff ieýsa húsnséðistnál þlngsins, en flestír munu
telja þaff ói’áunhæfa lausn.
ttnnið að tveim slikurn stórbygg-
ingum samtímis.
Ef þessir draumar rætast, gæit
þjóðin vígt nýtt þinghús á taæj-
arstæði Ingólfs Arnarsonar á 11(K>
ára afmæli íslandsbyggðar, 1974.
- Félagslíf -
KörfuknattleiksdeiM KR.
Drengir. — Takið eftir.
Æfing hjá 4. fl. er í KR. ’hús-*
inu kl. 6.00 á sunnudögum.
Fjölmennið á næstu sunmi-
dagsæfingu tíg takið nýja félaga
með.
Nýr erleridur þjálfari mætir.
Æfing hjá 2. fl. er í KR.-htjs
inu á súnötidögúm kl. 7,30 og
miðvikúdöguin ki. 8,10.
Þjálfari: Einar Bollason.
Piltar takiff eftir.
Æfirig hjá 2. fl. er PKR.húsi
inu á SimöúÖögiim kí. 7,30 ög ái
miðvikúdöguöt: kl. 8,10.
Þjálfári: Jón Otti Ólafsson.
Æfing hjá ‘I. og Meistacafíj
karla er í KR.-húsinu á sunpú->
dögum kl. 8.45 Og á miovíkudöij
um kl. 9.05. •;
Þjálfárar: Þórir Arinbjáfriar-
son'og' Ölafúr ‘Thorlacius. : 5
Pélagár mæíið Vél óg ' sttfed-j
víslega !á æfingárnar.
Ógreidd félagsgjöld "greýíj|t ái
næstu æfingu. Vj i
Munið éftir æfingágjölduújim.:
Nýir félagár vélkomriir. •.»
Mtinið eítir ffæðslúfúndiriúfni
í KR. heimiimu i næstu viffti.
ALÞÝÐUBLAÐIO — Í9. janúar 1964