Alþýðublaðið - 19.01.1964, Síða 13
ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA
Seljiim næstu daga
karlmannaföt og staka jakka
í Sýnlngarskálanum Kirkiustræti 10.
ÓTRÚLEGA LÁGT VERÐ
GEFJUN - IÐUNN
IÞROTTIR
Framhaid af 11. síðu.
* SKÓLINN OG
IiNATTSPYRNAN
Á meðan ég er í verzlunarskól-
anum, er það mitt að ákveða, livort.
ég hef ráð á að taka mér frí til
leikja erlendis. Skólastjórinn, K.
Jensen, sem er mjög vinsamlegur
í minn garð, þegar ég bið um frí
í einn eða fleiri daga, hefur þó
greinilega tekið fram, að mér
verði ekki hlíft við'prófin. Það ætti
heldur ekki að vera nauðsynlegt,
en ég reikna með, að ég stæði mig
betur, ef ég léki ekki knattspyrnu.
í hinar lengri ferðir hef ég náms-
bækurnar ætíð meðferðis. Það,
sem ég, fer á mis við í skólanum,
er ríkulega bætt upp með þeirri
reynslu, sem mér hlotnast erlend-
is.
— Hvað ætlar þú að gera að
loknu námt?
— Fyrst verð ég að fara í her-
inn. í það fara 18 mánuðir. Ég
rciknaði. með að fara í herinn 1.
júlí. En þegar ég sótti um inn-
göngu taldi ég, að landsliðið hefði
enga möguleika að komast á Ol-
ympíuleikana í Tokío, en eftir sig
urinn yfir Rúmeníu, hafa mögu-
leikarnir skyndilega aukizt. Ef
landsliðið kemst til Tokio, býst ég
við að fá frest á lierskyldunni til
1. nóvember. (Danir fara ekki til
Tokyo — ath. Íþróttasíðunnar).
★ LANDSLEÐH) Á AÐ VERA
VEL SAMÆFT.
— Hvar liggur skýringin á því,
að við höfum aftur eignast lands-
lið, sem getur staðið knattspyrnu-
flokkum stórþjóða á sporði?
— Það gefur greinilega til
kynna að liðið er vel samæft. Liðiö
INDLAND
Framhald af bls. 4
a.m.k- vilja þeir fá. að greiða sér
og liafi þeir verið að rífast við
kerlingu sína slétta þeir ur gremju
hrukkunum á ásjónunni.
Sams konar sparifata-liár-
greiðslu-gervibrosa fígúruverk
vilja þeir að blöðin séu, og ef
blaðamaðurinn nefnir andskotann
fullu nafni, þá segja þeir, að
hann eiga bara eftir að venja sig
af að blóta.
En blaðamennska byggist á virð-
ingu fyrir sannleikanum og rétti
almennings til að íá að heyra sann
leikann.
Japanskar
kvenblússur
við Miklatorg
var varla samæft þegar við byrjun
ársins, töpuðum fyrir Ungverjum
með 6—0. En þegar við sigruðum
Rúmena, var landsliðið aftur á
móti orðið samæft eins og félags-
lið.
Ég gleymi seint leiknum í Ung-
verjalandi, og minningin um þá
sneypuför er eins og martröð. Það
var cins og að standa fastur í for-
arleðju upp í háls meðan Ungverj
arnir skeiðuðu um völlinn án nokk
urrar fvrirhafnar. Það var hræði-
legt.
Ég skil lieldur ekki hvernig Es-
bjerg gat tapað fyrir Einlhc ven í
Hollandi með 7—1. Ég er sann-
færður um, að við myndum ná
okkur rækilega niðri á þeim, ef
við mættum þeim núna.
Árangurinn á árinu sýnir greini
lega, að jafnvel sterkt áhuga-
mannalið eða félagslið, sýnir ekki
stöðuga getu yfir árið, af þeirri
einföldu ástæðu, að leikmenn í
slíku liði geta ekki eingöngu hugs-
að um knattspyrnu, andstætt at-
vinnumönnum og ríkisstyrktum á-
hugamönnum.
En það kemur fyrir, að við af-
rckum mikið gegn hinum sterk-
ustu knattspyrnuþjóðum af því, að
gleði okkar yfir því að leika með
landsliði er meiri, en þeirra
manna, sem hafa knaítspyrnu að
atvinnu.
★ i,KR 1.200.000,00 duga“
— Gætir þú hugsað þér að ger-
ast atvinnumaður?
— Já, og ég vona, að ég fái ein-
hvern tíma gott tilboð. Ég legg
ekki út á atvinnumannabrautina,
nema ég fái 1.200.000 kr. fyrir
tveggja ára samning.
Úr þvi, að ég er einu sinni hyrj-
aður að leika knattspyrnu, er bezt
að reyna að ná eins langt og hægfc
er. Ég held, að það sé mikill kost-
ur, að ég hef leikið 10 landsleiki í
röð, þó að ég sé aðeins 21. árs.
Ég vil verða miklu betri, og ég veit
að það heppnast. Að vísu háir það
mér dálítið að ég skuli vera varn-
arleikmaður, af því ég lief áhuga
á að komast til Ítalíu, þar sem
markheppnir sóknarleikmenn eru
í hæstu verði. Ég trúi því þó enn-
þá, að heppnin verði mér hlið-
holl, ekki sízt eftir að dæmigerð-
ir framverðir eins og Ivan Jensen,
Axel Pilmark.og Fleming.Nielsen,
hafa átt þar miklu láni að fagna.
— Hvaða álit hefur unnusta þín
á framtíðaráætlunum þínum?
— Hún er þeirrar skoðunar,
eins og ég, að maður eigi að fá
eins mikið og mögulegt er út úr
lífinu. Henni finnst, að ég eigi að
leika knattspyrnu eins og mig
lystir, og afstaða hennar mun ekki
breytast, þegar við giftum okkur,
en við munum gifta okkur strax
og við fáum íbúð. Hún veit, að ég.
lít á hvern einasta leik, hvort sem
hann er þýðingarmikill eða ekki,
sem mikið tilhlökkunarefni,. og
knattspyrnugleðina mun hún aldr-
ei eyðileggja fyrir mér.
(Þýtt úr dönsku).
★ Hinn 16 ára gamli skólapilíur,
lan O’Brian synti 200 m. bringu-
sund á 1.07.6 mín. í Sydney, sem
er aðeins 1/10 úr sek. lakari túni
en heimsmet Bandaríkjamannsins,
Jastremski. Millitimi O’Brian á
50 m. var 32.3 sek.
greSSir Suæstu vexti af
sparifé ySar
ÚTIBÚ:
HAFNARFtRÐI
Strandgötu 28, sími 51260.
A&RANESI
Suðurgötu 36, sími 231
Samvinnubðnki íslands H.F.
REYKJAVÍK,
Baiikastræti 7. sími 20700
HAFNARFIRÐI,
Strandgötu 28, sími 51260
AKRANESI,
Suðurgötu 36, sími 231
Eiríks Einarssonar,
fyrrverandi verkstjóra, Háteigsveg 15,
fer fram frá Fríkirkjunni þriðjudaginn 21. þ. m. kl. 10,30 f. h. At-
höfninni verður útvarpað.
Þeini, sem vildu minnast hins látna er vinsamlegast bent á
að láta líknarstofnanir njóta þess.
Sigríður Ólafsdóttir.
ALÞÝ9UBLAÐIÐ — 19: janúar 1964 J,3