Alþýðublaðið - 03.03.1964, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 03.03.1964, Blaðsíða 1
hafi þessi hlunnindi, eða'núsmun- ur verið metin á 11%. Eicki sé fuilnægjandi að bera saman laun- in ein, heldur verði að taka tillit til iífeyrisréttinda, aldurshækk- ana, meira atvinnuöryggis og í ýmsum tilfellum styttri vinnu- tíma. Varnaraðili, þ. e. ríkið hcfur þá kröfu uppi til vara, ef einhverjar launahækkanir yrðu dæmdar nú, að eftir- og næturvinnukaup lijá ríkisstarfsmönnum verði lækkað til samræmis við það, sem gildir á almennum vinnumarkaði. Enn- frcmur um lækkun vaktaálags og styttingu þess tíma, sem vaktaálag Framhald á 3. síðu. 45. árg. — ÞriSjudagur 3. marz 1984 — 52. tbl- Moskvu, 2. marz - NTB-Reuter) KOMIÐ verður á fót stofnun, sem fjallar um vísindalegt trúleysi í Sovétríkjunum. Tilgangurinn verður sá að vinna að því að trú- arfordómum verði með öllu út- rýmt, að því er segir í sovézka stjórnarmálgagninu „Pravda” í dag. Bla/iið hvetur til hugmyndaher- ferðar í því skyni, að frelsa sam- vizku trúaðs fólks frá andlegri vesæld, eins og það er orðað. Reykjavík, 2. marz. - ÁG RÍKISSJÓÐUR skilaði í dag vörn fyrir kjaradómi í málinu um kröfu kjararáðs BSRB um 15% kauphækkun til ríkisstarfsmanna frá 1. janúar að telja, en kjararáö lagði kröfuna fram fyrir hálfum mánuði. Aðalkrafa ríkissjóðs er sú, að kjaradómur frá því í sumar standi áfram, og jafnframt eru til vara gerðar aðrar kröfur. NÝR 170 TONNA BÁTUR í j> SMÍÐUM í STÁLVÍK. | Sjá frétt á baksíðu. J í (Mynd: J. V.). | MWwwwMwwvmwmwww í vörn ríkissjóðs eru tilgreind- ar margar málsástæður. Undir- stöðuatriðið er, að kauphækkun sú, sem launastéttirnar fengu í desember hafi verið frá þeirra hálfu til að ná samræmi við kjör ríkisstarfsmanna frá því að kjara- dómur féll í sumar. Þess vegna sé ekki ástæða til að veita opinber- um starfsmönnum kauphækkun enn á ný, þó aðrar stéttir reyndu að brúa bilið þar eð þær töldu sig vera komnar á eftir. Þá er einnig bent á hvað ríkis- starfsmenn hafa margvísleg hlunnindi fram yfir launþega á almennum vinnumarkaði, og að t. d. i kjaradómi verkfræðinga LONDON, 2. marz (NTB). S K I P A N fiskveiðilögsögumái'a í Evrópu er tæplega komin í endan legt horft, þrátt fj'rir samninginn um 6 + 6 sjómílna fiskveiðiland- helgi, sem samkcmulag náðist um m- á lokafundi fiskimálaráðstefnunn- ar í Lancas er House í dag. Full- trúar 13 þeirra ríkja, sem þátt tóku í ráðstefnunni — öll þátt öku ríki nema ísland, Noregur og Sviss samþykktu samninginn. farast í slysum Tahoc Vallcy, 2. marz (NTB-Reuter). ÞYRLUR fundu í dag flak f jögurra lireyfla Constella ion-flugvélar, sem hvarf í gær á flugi yfir Sierra Nevada-fjöllum til skemmtistað- arins Tahoe Vaíiey í Navda. Flak- ið fannst í fjallslilíð í 2.740 metra hæð. Læknir, sem fluttur var á slysstaðinn í þyrlu, s’aðfesti að enginn þeirra .85 manna, sem í vél inni voru, hefði komizt lífs af. Flugvélin hvarf í snjóstormi í gærmorgun og strax er veður leyfði hófu 50 flugvélar og þyrlur leit að henni Það seinasta, sem heyrðist frá vélinni, var það, að flugstjórinn tilkynnti að vélin væ:ri að búast til lendingar. Skammt frá Innsbruck, þar sem vetrarolympíuleikarnir fóru fram í ár, fórust 83 manns þegar brezk flugvél af Britania-gerð rakst á fjallvegg í 2.700 metra hæð. Átta lík hafa fundizt og tvö þeirra hafa verið flutt tii Innsbruck í þyrlum. Að minnsta kosti verða harðar umræður um 6 + 6 mílna mörkin, sérákvæði, sem heimiluð eru sam- kvæmt samningnum, varanleg sér réttindi á ytra sex mílna beltinu og undanþágur á vissum svæðum, m. a. við Færeyjar og Grænland. Hvað Norðurlönd snertir að öðru leyti gildir samningurinn aðeins fyrir vesturströnd Svíþjóðar og sirönd Danmerkur að Norðursjó. Samningurinn verður sendur þátttökuríkjunum 13 til undir- skriftar á tímabilinu frá 9. marz til 10. apríl. Þegar á morgun mun formaður ráðstefnunnar og brezku sendinefndarinnar, Peter Thomas, gera Neðri málsiofunni grein fyrir störfum ráðstefnunnar og efni lög sögusamningsins, sem því næst verður birtur í einstökum atriðum. Vitað er, að brezkir togaraeig- endur, sem einnig ráða mestu í fiskiðnaði Breta, svo og fiskinn- flytjendur, eru gramir vegna þess, að Dönum tókst að fá fram sér- staka skipan fyrir Færeyjar og Grænland. Þar með munu lög þeirra um tólf mílna landhelgi taka þegar gildi 12. marz. Bretar vildu einnig fá Norðmenn til að fallast á 6 + 6 mílna samninginn, en við þá giidir samningur um undanþágur ailt til 1970. Að því er fréttamaður NTB hef- ur fregnað í London eru Danir lialdnir nokkrum ugg um, að brezki fiskiðnaðurinn setji höml- l ur á innflutning fisks frá Færeyj- ' um. Þetta gæti haft hörmulegar af I leiðingar í Færeyjum, en íbúarn- ir, sem eru aðeins 35 þúsund tals- Framhald á síðu 3. DAVlÐ STEFÁNS SONERLÁI Reykjavík, 2. marz - HP DAVÍÐ Stefánsson skáld frá Fagraskógi lézt í Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri í gærmorgun 69 ára að aldri. Hafði hann kennt vanheilsu af og til hiu síðari ár. Með lionum er hnigið eitt merkasta og ást- sælasta ljóðskáld þjóðarinnar á þessari öld. Davíð Stefánsson fæddist í Fagraskógi við Eyjafjörð 21. janúar 1895. Foreldrar hans voru Stefán Stefánsson, bóndi og alþingismaður þar og kona hans Ragnheiður Davíðsdóttir, systir hins alkunna þjóðsagna- safnara og fræðimanns Ólafs föðurhúsum að mestu, en kenndi oft nokkurrar vanheilsu á æskuárum. Hann varð stúöent frá Menntaskólanum í Reykja- vík 1919 og cand. phii ári síðar. Hafði hann þá fyrir skömmu dvalizt um skeið í Noregi sér til lieilsubótar. Sama árið og Davíð lauk stúdentsprófi kom út fyrsta ljóðabók hans, Svart- ar fjaðrir. Þeirri bók var strax tekið með fádæma vinsældum, og má raunar segja, að höfund- urinn yrði þjóðskáld daginn, sem hún kom út. Mun ekki of- mælt, að ekkert"skáld þjóðar- innar á þessari öld hafi átt jafn almennum vinsældum að fagna Framh « <

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.