Alþýðublaðið - 03.03.1964, Page 16
*
170 tonna
í smíðum
Heykjavík, 2. marz - GO
STÁLVÍK HF í Arnarvogi vinn-
ur nú að smíði 170 tonna fiski-
l)áts úr stáli. Báturinn er smíðað-
ur fyrir Hraðfrystihúsið Jökul í
Keflavík og verður afhentur fyr-
ir næstu sílclarvertíð. Byrjað var á
hátnum í janúar inni í húsinu. Þar
voru settir saman ýmsir hlutar
hans, en fyrir tæpum hálfum
mánuði var smiðin flutt út undir
jbert loft við hlið smiðjunnar og
nú er að mestu lokið við skrokk-
Jnn.
Þessi bátur er þriðja verkefni
Stálvíkur. Áður hafa verið smíð-
ITveír Vestmanna-i;
eyjabátar teknirj!
í landhelgi
Reykjavík, 2. marz. — KG. ! >
TVEIR Vestmannaey.jabátar, j|
Björg VE 5 og Farsæll VE j!
12, voru íeknir í gærkvöldi !!
grunaðir um ólöglegar veið- !;
ar. Það var varðskipiö Óðinn j J
sem tók bátana út af Vík j|
Iog voru þeir færðir til Vest- J!
mannaeyja.
Mál skipstjóranna var tek- J!
ið fyrir í dag, en dóms ekki Jí
að vænta fyrr en á morgun. !!
Ekki munu bátarnir hafa !;
vei t neina mótspyrnu þcgar j;
þeir voru teknir, heldur J|
fylgdu þeir varðskipinu þeg j!
ar til liafnar. !!
mumumwmvMVMMMMM
aðir þar tveir olíubátar, Skeljung-
ur 1. og Lágafoll. Verð hans er
áætlað um 8V2 milljón króna,
sem er samkeppnisfært við það
sem best er boðið erlendis.
Enn hefur ekki verið byggt að
fullu yfir Stálvík, en þegar full-
byggt cr hefur skapast þar vinnu-
aðstaða fyrir 100 manns, en í
dag vinna þar 30 manns. Fullbúin
á stöðin að geta smíðað 250—300
tonna fiskiskip og jafnvel allt að
500 tonna flutningaskip.
Nú þegar er stöðin tilbúin til
að semja um smíði á næsta skipi,
allt að 200 tonna stóru og jafnvel
að afhenda það fyrir næstu vetrar-
vertíð ef samið er fljótlega. Þess
má geta í þessu sambandi, að
Fiskveiðasjóður lánar 7.5%
meira í þeim skipum, sem smíð-
uð eru innanlands, heldur en hin-
um, sem sótt eru til útlanda.
Fullbúin skipasmíðastöð, eins
og sú, sem Stálvik mun koma sér
upp, á að geta annað smíði 4ra
250 tonna skipa á ári, en innkaups
verð þeirra er um 46 milljónir
, króna. Ef smíðin fer fram hér
i heima, mun sparast um 50%
gjaldeyri og liggur það í vinnu-
iaunum, kostnaði af landi og
sjálfri skipasmíðastöðinni, raf-
magni, sköttum og eðlilegum hagn
aði. Þetta táknar, að skipasmíða-
stöð eins og Stálvík sparar land-
inu stofnverð sitt í gjaldeyri einu
sinni á hverjum 6 mánuðum.
Yfirverkstjórar í Stálvik eru 3,
Elliði Guðjónsson, Óskar Valdi-
marsson og Hans Lindberg. Þeir
sjá hver um sinn hluta verksins. |
Framkvæmdastjójri er Jón Sveins-
son. Ágúst G. Sigurðsson tækni- \
fræðingur í Hafnarfirði teiknaði
bátinn, sem nú er verið að smíða.
Stálu bifreið og
óku tvisvar iltaf
Keykjavík, 2. marz. — ÁG.
LÖGREGLAN tók á laugardags-
kvöldið tvo unga ölvaða og öku-
réttindalausa pilta á bifreið, sem
þeir höfðu tekið í leyfÍEÍ'eysi, og
voru búnir að aka '.vívegis útaf.
Höfðu þeir verið á leið á dansleik,
sem var lialdinn í samkomuhúsinu
að Hlöðum, en snéru við, er þeir
höfðu ekið bílnum útaf í annað
skiptið.
Annar piltanna er 16 ára, hinn
ji Árshátíð Alþýðu-jj
I; fiokksfélagsins j!
3! ÁRSIIÁTÍÐ Alþýðuflokks- jj
3; féiags Reykjavíkur verður !j
’; lialdin næstkomandi laugar- !>
]! dagskvöld í Iðnó. íslenzkur ; •
j! matur verður á boöstólum.. j!
!! Aðgöngumiða má panta í !!
!; skrifstofu Aiþýöufiokksins, !!
j; sími 16724.
IWWWiWWMWiMtUMMMHW
18. Hafði annar þeirra ekki ekia
lengi, er bifreiðin lenti útaf. Komu
þeir honum aftur upp á veginn
og tók nú hinn við akstrinum. Ekki
gekk betur hjá honum, því nú
lenti bíllinn aftur útaf og fór þá
á hliðina. Þegar hér var komið
hafði lögreglunni verið gert að-
vart. Er hún var á leiðinni upp í
Hvalfjörð, mætti hún piltunum,
scm voru nú á leið í bæinn. Hafði
einhver orðið til að draga bíl
þeirra upp á veginn. Voru þeir
félagarnir teknir og þeim ekið í
bæinn.
Dalvík, 2. marz. — KJ, GO.
UM KL. 8 í morgun kom upp eld-
ur í húsinu nr. 8 við Grundar-
götu, sem er tvílyft timburhús,
múrhúðað. Húsmóðirin var ein
heima ineð tveim börnum sínum
og er hún varð eldsins vör hljóp
; hún í næsta hús til að fá lijálp.
! Kaílað var á slökkviliöið og börn-
unum bjargað ú'. Greiðlega gekk
að ráða niðurlögum eldsins, en
skemmdir urðu mjög miklar af
vatni og reyk. Innbú var sæmilega
tryggt.
s
hann er manna fróðastur um
þennan útflutning, og hvernig
hann hófst eftir stríð.
Sagði Gunnar, að undirstað-
an fyrir þessari m,klu eftir-
spurn væri m. a. sú, að hann
hefði sannað það á ýmsan háit,
að ísienzki hesturinn væri upp
haflega germanski hesturinn.
Hefði hann rakið sögu hestsins,
m. a. gegnum bemafundi, rögu
og fleira. Þetta hefði fallið í
góðan jarðveg, og Þjóðverjar
fengið áhuga fyrir að eignast
hest forfeðra sinna.
Þeir hefðu ekkert þekkt til
séreinkenna hans eins og til
dæmis töltsins. Gunnar kvaðst
hafa kynnt þeim þessa hluti úti
í Þýzkalandi með fundarhöld-
um, og rabbi við ýmsa menn.
Þegar svo Búnaðarfélagið hefði
árið 1954 heimilað honum að
fara út með 8 hesta, og þá til
Bretlands og Þýzkalands, hefði
hann sýnt þeim töltið í raun.
Áður hefðu þeir tæpast trúað
sér. Samtímis hefði hann upp-
götvað tölt hjá hestum Ger-
mana. Hefði hann kannað það
ýmsum heimildum, listaverku
um, gömlum málverkum
og höggmyndum. — Mætti
sjá á ýmsum höggmyndum,
að grískir menn hefðu set-
75-80 HESTAR FARA MEÐ CANADAIR
VÉL TIL SVISS Á FÖSTUDAGINN NK.
Reykjavík, 2. marz. — AG.
FLUGVÉLaf Canadair-gerð
kemur til Keflavíkurflugvallar
á föstudaginn, og tekur þar 75
!jl 80 liross, sem flytja á til
Zurich í Svisg. Hafa hestar
þessir verið keyptir víða að úr
Árnessýslu, og eru útflytjend-
urnir Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga og Sigurður Ilann-
esson og Co. (
Hrossaútflutningur frá ís-
landi hefur aukizt mikið á síð-
ustu árum. í fyrra voru fluttir
út 240 hestar, en flestir hafa
þeir verið 600 á einu ári. Eftir
spurn er þó miklu meiri en
hægt er að anna, og á þessu ári
hefur verið beðið um hátt á
annað þúsund hesta. Hcfur ver
ið reynt að vanda val þeirra,
en kom.ð hefur fyrir að galla-
gripir hafa skemmt mjög'fyrir
sölumöguleikunum.
Blaðið ræddi í dag við Gunn-
ar Bjarnason á Hvanneyri, en
ið hesta sína eins og ís-
lenzkir gera í dag Hefðu
listamenn þeirra haft svo magn
að auga, að þeir hefðu getað
fest hreyfingar þeirra í myndir.
Gunnar sagði, að þessi ferð
hefði verið áhrifarík. Nú væru
ýmsir þýzkir menn orðnir sér-
fræðingar í gangi íslenzka hests
ins og áhuginn orðið það mik-
ill, að 1958 hefðu þeir í sam-
ráði við sig stofnað tímarit um
Framh. á 4. siðu
MWWWWWWWWWWWWWWWWWWWVWWVt wwwwwwwwwwwvwwwwwtvwwwwwwv
„Ekki brjóta, heldur breyta"
FJÖLMENNUR FUNDUR UM HALLGRÍMSKIRKJU
Reykjavík, 2. marz - EG
ALMENNUR fundur var haldinn í
Sjálfstæðishúsinu í gær um bygg-
ingu Hallgrímskirkju á Skóla-
vörðuholti. Mannmergð sótti fund
inn og var fordyri þússins lengst
af þéttskipað áheyrendum, en
salir allir setnir sem mest mátti.
Til fundarins hafði verið boðið
biskupi íslands og byggingarnefnd
kirkjunnar, en þeir aðilar sögðu
í yfirlýsingu, að þeir sæju ekki á-
stæðu til að sækja fundinn, sem
eingöngu væri haldinn til að á-
rétta einhliða sjónarmið fundar-
boðenda.
Þeir, sem til fundarins boðuðu
voru m. a. Pétur Benediktsson,
bankastjóri, Lúðvík Guðmundsson,
fyrrv. skólastjóri, Gunnar Gunn-
arsson rithöfundur og Sigurður
Líndal fulltrúi borgardómara.
Fundinum lauk _ekki fyrr en
klukkan hálf sjö og hafði hann þá
staðið þrjár og hálfa klukkustund.
Þá voru enn allmargir á mælenda-
skrá, en fundarboðendur höfðu þá
ekki lengur ,afnot af húsnæðinu.
Fundarstjóri var Hákon Guðmunds
son, hæslaréttarritari.
Á fundinum var dreift tillögu,
sem fundarboðendur fluttu, þess
efnis, að núverandi ráðagerðir um
Hallgrímskirkju verði gaumgæfi-
lega endurskoðaður, og efnt verði
til samkeppni arkitekta til að
finna lausn á málinu, sem hlotið
geti almennan stuðning.
Lúðvík Guðmundsson talaði
fyrstur frummælenda og rakti m.
a. ýmis skrif um byggingu kirkj-
unnar og forsögu málsins. Gagn-
rýndi hann stíl kirkjunnar harð-
lega, sem væri blanda ólíkra bygg-
ingarstíla frá mismunandi tímum.
Pétur Benediktsson bar fram til
lögu þá sem að framan getur.
Sagði liann, að nú mundu komn-
ar sex milljónir í kirkjusmíðina.
en kostnaður hefði fyrir tíu ár-
um verið áætlaður 40 milljónir,
en nú mætti áreiðanlega þre- eða
fjórfalda þá tölu. Benti hann á,
Framh. á 4. síðu