Alþýðublaðið - 06.03.1964, Page 6
Þessar breytingar, sem gerðar |
hafa verið, eru mjög róttækar, j
þegar í hlut á iand eins og Sviss. |
Menn mega vera þess fullvissir,
að stjórnin í Bern liefur ekki tek-
ið til þessara ráða til þess að
gera öllum auðmönnum, sem þar
hafa leitað skjóls fyrir fé sitt
óleik. Mikilvægar ástæður hljóta
að liggja að baki. Þessar ástæð-
ur er að finna í fjárliag Sviss.
saf:
sviss
Sviss hefur um margra ára
bil verið öruggur geymslustað-
ur fyrir erlenda peninga. Ef
athafnamönnum í ýmsum lönd-
um þötti vera farið að þrengj-
ast um heima, var ætið unnt
að koma því undan, sem aflað
hafði verið, i svissneska banka.
En nú er þessi draumur bú-
inn. Frá 1. janúar í ár er sviss-
neskum bönkum bannað að taka
við riýjum innlánum erlendis
frá. Þeir fá ekki heldur lengur
að lána þessa peninga út aftur,
hvorki gegn veði í svissneskum
fasteignum né festa þá í sviss-
neskum verðbréfum. En bank-
arnir mega hins vegar, ef þeir
óska, taka við fé til „frysting-
ar.”
Þessar ákvarðanir gilda fyrst
um sinn um tveggja ára skeið.
En eftir þann tíma verður samt
sem áður hreyfingu erlends fjár
magns í Sviss mjög þröngur
stakkur skorinn. Ný lög munu
koma á eftirliti með erlendum
bankareikningum — leynireikn-
ingarnir munu því innan tíðar
heyra einungis liðnum tíma til.
Ráðstafanirnar cru liður í að-
gerðum til þess að draga úr fram-
kvæmdum, sem eru svo miklar,
að hætta er talin á verðbólgu.
En það fer ekki lijá því, að þetta
valdi erfiðleikum þeim einræðis-
herrum, sem hér eftir vilja ,safna
til elliáranna’ á einhverjum
tryggum stað.
Pola
leikur
Pola Negri hin fræga dís kvik-
myndanna frá árunum 1920-1930
og frægasta ástmær Rudolphs
Valentino, er nú aftur farin að
leika í kvikmynd eins og við
gátum um fyrir allöngu síðan.
Hún vinnur nú að mynd, sem á
að heita „The Moon Pioneers” —
fyrir Walt Disney í Pinewood í
Englandi. Rita Hayworth hef-
ur ekki komið fram í kvik-
mynd siðan 1949. Hún á að leika
móður Claudiu Cardinale og
Negri
aftur
John Wayne á að leika eiginmann
hennar. Paulette Goddard, fyrrum
frú Chaplin og núverandi frá Er-
ich Maria Remarque er 51 árs að
aldri, og er nú að leika í mynd
á Ítalíu. Marlene Dietrich hefur
verið fengin til þess að leika
sjálfa sig í mynd, sem Ralph Nel-
son ætlar að gera. Glenn Ford
leikur á móti henni. Veronica
Lake, sem fyrir löngu hætti að
leika í kvikmyndum, er nú aftur
farin að leika í amerískum smá-
myndum.
Það gerast margir undar-
□ legir hlutir við móttökur
í forsetabústöðum hinna
nýju lýðvelda Afriku. — Um dag-
inn var einn prúðbúinn þjónn á
gangi í einni slíkri móttöku með
kökufat og bauð gestum. Ein'n af
„hvítu” gestunum hreifst mjög
af girnilegri súkkulaðiköku, sem
hann sá á fatinu og ætlaði að
grípa hana.
— Ekki þessa, herra minn, —
hvislaði þjónninn — þetta er þum-
alfingurinn á mér.
☆
Áköfustu sjónvarpsáhorf- ;
□ endur í Bandaríkjunum
þessa dagana eru sérstaklega
valdir menn frá skattheimtunni.
Þeir eiga að fylgjast með fram-
haldsþætti, sem eitt stærsta sjón-
varpsfyrirtækið hefur hleypt af
PRESLEY ER ENN OFAN Á
LESLIE CARON er í New York um þessar mundir að vinna 11
fyrir sjónvarp þar. Myndin var tekin af henni á Lundúnaflug-
velli fyrir nokkru þegar hún var að leggja af stað vestur. Það U
var varla að hún væri þekkjánleg, vafin í loðskinn og með sól-
gleraugn fyrir mestöllu andlitinu.
stokkunum. í þessum þætti munu
1100 milljónamæringar tala um
efnið: „Hvernig ég skapaði auð
minn.”
Nú eiga þessir vesalings millj-
ónamæringar á hættu, að verða
krafðir sagna af skattheimtunni.
— Þið hafið aflað þessara
milljóna — en hvað hafið þið
greitt í skatt af þeim?
Hér er innlegg í kynþátta-
□ vandamálið, úr óvenjulegri
átt að vísu. Hvítar þjón-
ustustúlkur í kaffistofum bygg-
ingar Sameinuðu þjóðanna í Nevv
i York, hafa lagt inn kvörtun vegna
þess, að þær telja sig verða fyrir
skipulegu kynþáttamisrétti. Þær
fá alltaf minna þjórfé en „litað-
ar” samstarfsstúlkur þeirra.
Þénustan, sem Bítfarnir
I brezku hafa haft upp á síð-
1 kastiö, er ekki nema vasapen-
= ingar hjá þeim tekjum, sem
| Elvis Presley hefur. Þessi 28
l ára gamli fyrrverandi vöru-
| bílstjórf hefur á síðustu ár-
§ um haft inn sem svarar 600
| milljónum króna. — Menn
| eins og Lyndon B. Johnson
| liggia langt að baki Elvis á
i tekiulistanum.
Síðastliðin 8 ár hafa selzt
i 5 milljónir platna með söng
jj Elvisar og hann hefur gert
§ samning við hliómplötufyrir-
1 tæki til ársins 1971. Sá samn-
I ingur tryggir honum 90 millj.
| króna á ári.
Hann hefur leikið í 15 kvik
I myndum og þær hafa skilað
§ Jausiega áætlað rúmum 2000
1 milljónum. Góður hluti af
= þ-'ssari upphæð hefur runnið
i í hans vasa.
Ekki alls fyrir löngu var
honum boðið að koma fram í
sjónvarpi fyrir sem svarar 4.5
milljónum ísl. króna. Hann
neitaði. Þrjú ár eru liðin síð-
an hann lét síðast sjá sig í
sjónvarpi og þá fékk hann ekki
svo mikið fyrir.
Ekki er nóg með, að Elvis
geti komizt yfir peninga, hann
kann einnig að gæta þeirra.
Mestum hluta auðæfa sinna
hefur hann komið fyrir í olíu-
hlutabréfum. útvarpsstöðvum,
skinaverksmiðjum og nætur-
klúbbum. En hann hefur einn-
ig fengið sér 10 Cadillacbíla
og sex þeirra eru útbúnir með
sjónvarnstæki og bar, þrátt
fyrir, að Elvis sjálfur taki mjólk
fram yfir sterka drykki. Þess
utan eyðir hann miklum fjár
munum í villur sínar Hin
glæsilegasta þeirra er Los An-
geles bústaður hans. Hjá henni
er ein ib”rðarmesta sundlaug
í Bandaríkiunum og geta menn
ímyndað sér, að þá sé ekki
svo iítið sagt.
ii 11111 Miiiiiii 111111111 iiiiiiiiiii '•'•'"•""""••'•'•••'■••'••'•iiimiiiiiiimiiiiiiniiiiimiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiuiiiniiiiiiniiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiMiiimiiiimiimiiiiimiiiiiiiiiimii
VIÐ voruin rétt byrjaðir að mála lijá yður, frú, þegar við uppgötvuð-
um, að þér eigíið ekkert sjónvarp.
@ 6. marz 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ