Alþýðublaðið - 06.03.1964, Blaðsíða 16
ÁrshátíS Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur verður í Iðnó naest-
komandi laugardagskvöld og hefst með borðhaldi kl. 7,30 e. h.
Á borðum verður þorramatur að venju.
Mjög er vandað til skemmtiatriða, nú sem fyrr. Fram fer
danssýning á vegum Dansskóla Hermanns Ragnars (Barnaflokk
ur sýnir barnadansa og einnig verða sýndir suöur-anierískir
dansar). Jón Gimnlaugsson mun flytja skemmtiþátt, Fyrir
dansinum Ieikur hin vinsæla hljómsveit Stefáns Þorleifssonar,
söngvari Þór Nielsen. Dánsað verður til kl. 2 e. m.
Panta má miða í síma l5020, 16724 og 19570 í dag og er viss
ast að draga það ekki. Borðpantanir eru gerðar í síma 12350.
Alþýðuflokksfólk er hvatt til þess að fjölmenna og taka með
sér gesti á vinsælustu og ódýrustu árshátíðina sem völ er á.
NEFNDIN
Ætlunin er að byrjað verði á
verkinu strax og samningar hafa
tekizt við fyrirtækið. Því á að
verða lokið í september í haust,
en lögnin verður að því leyti frá-
brugðin öðrum, að aðeins verður
lagt einfalt kerfi, þannig að vatn-
ið rennúr beint í gegn og út í
skólp. Með tvöfalda kerfinu er
vatnið notað aftur til að blanda
því við yfirhitað vatn, 130 stiga
heitt. Einfalda kerfið er ódýrara í
lagningu en það tvöfalda, sem nú
er álitið óþarft. vegna þess hve
mikið er til af heitu vatni.
Framkvæmdastjóri Verks hf. er
Birgir Frímannsson.
nujajuviu, o. xaurz.
I NÓTT var bortizt inníben
zínafgreiðsfu SHELL við
Reykjanesbraut. Var farlð
inn á bakhlið hússins. Þegar
inn kom réðist þjófurinn á
stóran og sterkan peninga-
skáp, sem var múraður fasí-
ur í gólfið. Er óhætt að segja
að skápurinn hafi hreinlega
verið tættur í sundur. Hefur
líklega verið notað stórt
járn, eða kúbein. í peninga
skápnum voru 2100 krónur,
og var þeim stolið ásamt
töluverðu af sígarettum.
Myndin er af peninga-
skápnum á benzínafgreiðsl-
unni.
^MmWIMMWWIWIIMWWMWMMIWiWWaWtMWWtWWWWWMWWWWWWMW
Gjafahlutabréf í Hall-
grímskírkju gefin út
Reykjavík, 5. marz - KG
í TILEFNI þess, að í ár eru
liðin 350 ár frá fæðingu Hall-
gríms Péturssonar, hefur hisk-
up valið 5. sunnudag í föstu,
sem er 15 marz, til þess að
vera almennur minningardagur
Hallgríms Péturssonar. Þá hef-
ur byggingarnefnd Hallgríms-
kirkju í Reykjavík einnig á-
kveðið að gefa út svokölluð
gjafahlutahréf, sem skulu vera
kvittanir fyrir frjálsum fram-
lögum manna til minningar-
kirkju Hallgríms - Hallgríms-
kirkju.
í tilefni af útgáfu bréfa þess-
ara áttu fréttamenn í dag tal-
við biskup, nokkra úr bygginga
nefnd kirkjunnar og fleiri for-
ráðamenn.
Sagði biskup, að útgáfa bréfa
þessara væri ekki í neinu sam-
bandi við þær deilur, sem nú
eiga sér stað um kirkjubygg-
inguna, heldur hefði þetta mál
verið í athugun í langan tíma.
Eins og áður segir skulu
gjafahlutabréf þessi vera kvitt
anir fyrir frjálsum framlogum
til kirkjunnar og eru þau prent-
uð í mismunandi litum eftir
upphæðum þeirra, sem eru 100,
300, 500, 1000 og 5000 krónur.
Á forsíðu bréfanna er mynd
af Hallgrímskirkju eins og hún
verður byggð, tilfærð er upp-
liæð og kvittun byggingarnefnd
ar fyrir gjafahlutnum.
Á annarri síðu er prentuð
mynd af listaverkinu Hallgrím-
ur Pétursson eftir Einar Jóns-
son, myndhöggvara með áletr-
uðu versinu: „Gef þú að móður
málið mitt”.
Á þriðju síðu er svo ávarp
biskups, en þar segir m. a.:
Kirkja er. í smíðum í höfuð-
borg íslands. Sérstaða hennar
er sú, að hún á að bera nafn
Hallgríms, Hallgrímskirkja.
Hún verður ekki tiltakanlega
mikið mannvirki á mælikvarða
nútímans, stærðin mundi varla
mjög gagnrýnd, ef í lilut ætti
leikliús, danssalur eða kvik-
myndaliús Hún verður sóknar
Framhald á bls. 13.
ROBERT McNamara landvarna-
málaráðherra Bandarikjanna
sag-ði í kvöld, að meðan nauðsyn-
bæri til vegna baráttunnar gegn
uppreisnarmönnum kommúnista
mundu Bandaríkjamenn útvega
herafla S-Vietn. hergögn og vistir.
©
■»
Lóðir fyrir
900 íbúðir
Úthlutað á þrem svæðum borgárinnar
Hitaveita í Skjólin
fyrir fimm milljónir
Reykjavík, 5. marz - GO I lagningu hitaveitu í Skjólin. Verk
Á SÍÐASTA borgarráðsfundi var hf. hefur nú á hcndi hitaveitu-
eamþykkt að hefja samninga við lagningu í Hagahverfi og á því
verkfræðifirmað Verk hf. um' verki að vera lokið í haust.
Hitaveitan í Skjólin var boðin
út og bárust 3 tilboð. Verk hf. var
með lægsta tilboðið, 5.071.820.00.
Hin voru hvort um sig nær einni
milljón króna hærri.
Keykjavík, 5.' marz. — AG.
LÓÐUM á þrem svæðum í borg-
inni vcrður ú hlutað í maí. Er
þarna um að ræða lóðjr við Elliða
árvog, norðan Njörvasunds, á
Árbæjarbfettum og í Kleppsholti
norðan Austurbrúnar. Á þessum
svæðum verða lóðir undir yfir
900 íbúðir.
í Árbæjarhverfi verður úthlut-
að lóðum undir einbýlis- og fjöl-
býlishús, og er reiknað með, að á
því svæði muni búa 4—6 þúsund
manns. Einbýlisliúsin, sem eru
133 að tölu, verða að flatarmáli
allt að 150 fermetrar, og er þá
bifreiðageymsla ekki með talin.
FjölbýláBhúsin verða 3ja hæða,
með minnst 570 íbúum.
í Elliðaárvogi verður úthlutað
lóðum undir 4 fjölbýlishús, 3ja
hæða og 2 fjölbýlishús 7—8 hæða,
með minnst 116 íbúðum, 41 rað-
húsi á einni hæð. Þau mega vera
að flatarmáli allt að 169 fermetr-
ar og að rúmmáli allt að 700 fer-
metrar og er bifreiðageymsla inn
byggð í húsin, 15 tvíbýlishús á
tveim hæðum með 1—2 íbúðum á
hæð og mega húsin vera að flat-
armáli aht að 170 fermetrar og
að rúmmáli allt að 1450 rúmmetr-
ar og er þá bifreiðageymsla inn-
byggð, 12 -einbýlishús, einnar hæð
ar og mega þau vera allt að 170
fermetrar að flatarmáli og 800 rúm
metrar að rúmmáli með inn-
byggðri bifreiðageymslu.
í Kleppsholti verður úthlutað
lóðum undir 10 raðhús með 20
íbúðum og verða hús þessi á tveim
hæðum, allt að 130 fermetrar-að
flatarmáli hver íbúð og að rúm-
F’-amhald á bls. 13.
Skellinöðru stoliö
í FYRRAKVÖLD var stolið skclli
nöðru frá Háskólabíói. Er þetta
grænt hjól af gerðinni Victoria.
Hjólið fannst aftur lijá kvikmynda
húsinu í morgun, en var þá tölu-
vert skemnit. Hjólið er númer
R-44. Eru allir þeir, sem ein-
hverjar upplýsingar gætu gefið
um þjófnað þennan, beðnir að láta
rannsóknarlögregluna vita.