Alþýðublaðið - 08.04.1964, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 08.04.1964, Blaðsíða 3
Vinnufriður næstu — Ilvað eru eiginlcga Marx og Lenin og allt Rússa stóðið í samanburði við mig? Sovézka stjórnarmálgagnið Izvestija segir í dag, 7. apríl, að kínversku kommúnistaforingjarnir vilji nú setja maoistiska bugmyndafræði í stað hugmyndaíræði Marx-Leninismans. Segir blaðið, að Kínverjar krefjist þess hrokafullir, að allir aðrir kommúnistafiokkar tileinki sér hina kínversku útleggingu kom- múnismans. „Þeirra pólitík er blanda af smáborgaralegri ævintýramennsku og stórveldisþjóðemisgor- geir,” skrifar blaðið. Myndin liér að ofan útskýrir þetta vel. tvö ár í Svíþjóð Stokkhólmi, 7. apríl. NTB. Bæði ríkisstjórnin og aöilar vinnumarkaðsins lý-stu í dag yf- ir gleði sinni á því, að vinnufrið- urinn í Svíþjóð liefur verið tryggður næstu árin. Voru samn- ingarnir nú þeir erfiðustu um margra ára skeið og náðust ekki samningar fyrr en eftir fjögurra og hálfs mánaöar samningaum- leitanir aðilanna. Var tveggja ára samningur undirritaður í dag. Samningurinn nær til 800 þús. | verkamanna I 16.500 fyrirtækj- ■ um og fá þcir 1.3% kauphækkun í ár og 3.4% kauphækkun á næsta ári. Auk þess kemur til , sögunnar meira öryggi í vinn- unni með orlofslaunum, gagn- kvæmum uppsagnartíma er nem- ur tveim vikum hjá þeim er liafa unnið á sama stað í níu mánuði o.fl. Við finnum áreiðanléga öll til mikillar ánægju yfir því að vinnu friðurinn hefur verið tryggður, Hóta íiú afnámi neyðarþjónustu sagði Erlander forsætisráðherra í dag í tilefni samkomulagsins. Eg er sannfærður um að samningur- inn mun leggja góðan grundvöll að áframhaldandi efnahagslegum framförum við jafnvægi í þjóð- arbúskapnum, sagði liann. Launin munu samtals hækka um nálega fimm prósent næstu tvö árin. Með hinum nýju samn- ingum kemur einnig til sögunnar fjögurra vikna sumarleyfi með því að nú bætast við þrír dagar. Auk þess fá verkamenn ýmis fé- lagsleg hlunnindi og er útkoman sú, að launakostnaður fyrirtækj- anna eykst samtals um amk. sjö prósent á þessu ári og allt að níu prósent á næsta ári. — Samningar þessir munu hafa veruleg áhrif á sænska vinnu- markaðinum. Brussel 7. apríl (NTB-Reuter). Verkfallslæknarnir í Bel'gíu liót uðu því í kvöld að þeir myndu lóta neyðarþjóni^itu sínia niður falla ef hinum tveim handteknu læknum verður ekki strax sleppt úr haldi. Voru þeir handteknir fyr ir að hafa ekki veitt læknishjálp barni er var í lífshættu og síðar lézt, vegna vanrækslu að talið er. í yfirlýsingu sinni er Iæknafélagið mjög ákveðið og aðvarar jafnframt við ný jum „er ingum" við læknana er haft geti alvariegar afleiðingar, eins og þar segir. Biskuparnir í Belgíu gripu í dag inn í belgisku læknadeiluna. — Reyna þeir að fá endi bundinn á hið vikulanga læknaverkfall. í dag voru einnig tveir læknar á- kærðir fyrir að hafa ekki sinnt barni, er var í lífsliættu. Biskup- arnir skoruðu á Lefevre forsætis- ráðherra og dr. Thone að taka hið Skjótasta upp samninga um liina limdeildu heilbrigðislöggjöf. Eru þau ástæðan fyrir verkfalli lækn- anna. Áskorun biskupanna var send áðurgetnum ráðamönnum í símskeyti er undirritað var af Otto-Joseph Suenes, kardínála, yfirmanni belgisku kirkjunnar. Undirborgarstj’órar 19 borgar- hverfa Stór-Briissel kröfðust þess og í dag að samningaumr. yrðu steknar upp að nýju. Samningavið ræðurnar féllu niður í síðustu viku og fóru þá 12 þúsund lækn- ar í verkfall. Var fundur borgar- stjóranna kvaddur saman í miklum flýti. Um sama leyti og áskorun borgarstjóranna var send út, tók að bera á staðhæfingum þess efn- is, að hin sérstaka neyðarþjónusta er sett var upp til þess að sinna dauðveikum og slösuðum, væri ekki starfi sínu vaxin vegna þess að starfslið það, sem störf- um þessum sinnti væri orðið ör- magna af þreytu. llandtökuskipunin á liendur (Framhald á i. síðu). Alþýðusambandið sænska lagði nú mesta áherzluna á að fá meira atvinhuöryggi fyrir félags menn sína. Fékk liún sumum kröf um sínum í því efni komið fram og öðrum ekki eins og gengur. Þýðingarmikið ár Osló, 7. apríl. Margt er það, sem bendir til þess að 1965 verði þýðingarmikið ár fyrir þróunina í Evrópu, sagði Pflimlin fyrrum forsætisráðherra Frakka hér í dag, en hann er nú staddur liér í opinberri heimsókn ríkisstjórnarinnar. Þá verður ; kunnugt um úrslit kosninganna í I Bretlandi^ forsetakjörsins í Banda I ríkjunum og um það leyti verður I einnig forsetakjör í Frakklandi. j Þá verður unnt að ræða þau ! vandamál er Evrópa stendur and- 'spænis, sagði hann. Makarios forseti hótar Tyrkjum Nicosia og Ankara 7. april, Ntb-Rt. Makarios, forse i Kýpur, sagði í kvöld, að ef tyrkneska stjórnin drægi ekki hefan hersveitir sínar á Kýpur, myndi ríkiss'jóm Kýpur leggja málið fyrir Öryggisráð Sam einuðu þjóðanna. Forsetinn skýrði frá þessu í samtali við kýprisku fréttastofuna, er fram fór vegna ákvörðunar Kýpurstjórnar um að segja upp bandalagssamningi sín- um við Grikkland og Tyrkland. Mun stjórnin í framhaldi af því ekki lengur veita hinum tyrknesku hersveiium á Kýpur, er telja 650 manns, þau réttindi, er þær hafa haft til þessa í krafti samntngs- ins. Rétt áður en forsetinn kom með þessa yfirlýsingu sína varð kunn- ugt í Ankara, að sendiherra Tyrk- lands í Aþenu hafði í nótt farið á fund utanrikisráðherra Grikkja og afhent honum þá aðvörun stjórnar sinnar, að árás á Kýpurtyrki yrði framvegis skoðuð sem árás á Tyrkland. í bréfi til forseta Kýpur á þriðjud. segir tyrkneska stjórn- in, að hún mótmæli mjög kröitug- lega ákvörðun forsetans um að segja upp samningnum milli Kýp- ur, Grikklands og Tyrklands. Seg ir stjómin, að með uppsögninni brjótí forsetinn stjórnarskrána og sé ákvörðunin algjörlega óskilj- anleg. Krústjov leiöréttir hláleg ósannindi Budapest, 7. apríl (NTB-RT. Krústjov, forsætisráðherra Sov é'ríkjanna, leiðrétti í dag ung- verska sérfræðinga við landbún- aðarstofnunina í Martonvasar, er hann heimsótti í dag. Kvaðst hann efast um, að réttar væru þær upp lýtdingafr er forstjóri stofnujiar- innar lagði fram um framleiðslu maiskorns og hveids í Bandaríkj- unum. „Ég veit miklu betur“, sagði hann. „Það er ekki rétt, að hveitifram- leiðslan sé miklu meiri í Ungverja landi en í Bandaríkjunum. Þér megið ekki skrökva", sagði hann við glymjandi hlátrasköll áheyr- anda sinna. „Bandaríkjamenn nota meira maiskorn og þeim gengur vel að framleiða það“, sagði hann. Leiðrétti hann síðan ræðu for- stjórans um þetta efni og kvaðst gera það í góðu skyni, þar sem hann væri gestur. Hann kvað korn framleiðsluna í Sovétríkjunum vera heldur illa stadda. Væri nú unnið að því að bæta maisfram- leiðsluna, svo að mais yrði nýtileg- ur sem mannafæða og ekki ein- göngu sem skepnufóður. Hann kvað einnig haldið áfram með ráða gerðir um uppbyggingu landbún- aðarins í Sovétríkjunum. Munu ráðagerðir þessar leggja áherzlu á aukna sérhæfingu í landbúnaðin- um, skipulagningu, vélvæðingu og miklar fjárfestingaráætlanir. Ekki sagði hann, hvenær allt þetta myndi liggja fyrir. Hollywood, 7. apr. ntb-r. Brezki gamanleikarinn Petér Sellers' liggur hér á sjúkrahúsi og er talið mjög tvísýnt um líf hans. Hefur hann orðið fyrir alvarlegu hjartaáfalli. Sellers er ný- kvæntur sænsku leikkonunni Britt Eklund og situr hún nú við sjúkrabeð manns síns í Hollywood. Hvarf hún frá kvikmyndatöku í Lunclúnulnj til að geta verið við sjúkra- heðinn og á nú yfir höfði sér stórkostlega skaðabótakröfu frá Twentieth Century Fox kvikmyndafélaginu. Myndin sýnir þau hjónin. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 8. apríl 1964. 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.