Alþýðublaðið - 08.04.1964, Page 6

Alþýðublaðið - 08.04.1964, Page 6
MYRTI ÞÆR SEM HÖFNUÐU HÖNUM ■■■ ■■■■■ KLEOPÖTRUGLERAUGU ■ X Hvernig lízt mcnnuni á það nýjasta úr gleraugnatízkunni? I»essi Kleópötrugleraugu voru sýnd á heilmiklu þingi gleraugna sa-ia í Southport í Englandi. Stúlkan heitir Helen Burnes og eir sennilega ein um hrifningu yfir þessu uppátæki. A SUNNUDAGINN framdi 37 ára gamall maður, Sören Juul Christ- ensen, morð, hið annað í röðinni. Morðið framdi hann með hagla- byssu, sem hann hafði sagað fram an af hlaup.nu á. Fyrsta morð sitt framdi Christensen, sem er upp- runninn í Vorup hjá Randers árið 1956 á námunda við Brevik. Það framdi hann með sama hætti og í báðum tilvikum voru fórnarlömb in konur, sem höfðu hryggbrotið hann. * Morðið á sunnudaginn framdi Christeansen á aðalgötu bæjarins Hadsund, og voru að minnsta kosti 10 manns bein vitni að því. Hin 38 ára gamla hótelþjónustu stúlka, frú Missy Christensen, var á gangi með systur sinni og mági ásamt 14 ára dóitur þeirra, þegar Christensen dró skyndilega fram byssuna og hleypti af í höfuð henni. Hann var afvopnaður þeg- ar í stað af enn einum ættingja konunnar. Frú Christensen hafði fyrir nokkru slitið trúlofun sinni og Christensens, meðal annars vegna forúðar hans. Árið 1957 var. Juul Christensen dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir morð.ð hjá Brevik. 15. apríl 1960 tókst honum að strjúka úr fang- elsinu og f ýði þá til Danmerkur. Þar komst lögreglan á slóð hans. Hann var tekinn höndum og send- ur afiur til Noregs, en í ágúst 1962 var hann látinn laus af norsk- um yfirvöldum og um leið vísað úr landi. Árið 1956 myrti Juul Christen- sen 16 ára gamla stúlku. Christen sen vann á stað, sem heitir Pors- grunn og er stutt frá Gjerpen, þar sem stúlkan átti heima. Hann komst í góðan kunningsskap við hóp 16 ára unglinga í Gjerpen, þrátt fyrir mikinn aldursmun, og hann varð mjög vinsæll í þessum hópi, ekki sízt vegna færni sinn- ar í spilamennsku. Christensen varð mjög hrifinn af stúlkunni, sem hann síðar myrti, og vildi liafa fasta fylgd hennar. Stúlkan var annars sinn- is, en hann lét sig ekki og svo fór, að hún fann sig tilneydda að taka sér vinnu í Brevik til þess að fá frið, og kom aðeins heim um heígar. Snemma mánudagsmorgun einn, þegar hún var á leið til vinnu sinnar í Brevik, ók Christensen hana uppi á mótorhjóli sínu. Eftir að hafa fengið eina neitun enn, skaut hann hana í höfuðið með haglabyssu, sem sagað hafði verið framan af hlaupinu á. Hún iézt þegar. í réttarhöldunum kom fram, að í rauninni hefði Christensen ekki haft í hyggju að drepa stúlkuna, heldur hefði ha^n aðeins viijað hræða hana. - Seinna morðið, sem varð nú á sunnudaginn, eins og áður segir, franidi hann einnig eftir nýfengið afsvar. Hann kom til hennar um morguninn og bauð henni í bíl- túr. Hún sagði honum, að hún væri að fara í fjölskylduheimsókn til Hadsund. Frú Christensen tók lest til Had sund ásamt systur sinni, mági og 14 ára dóttur þeirra. Juul Christ- ensen ók hins vegar í bifreið sinni á undan og tók á rnóti þeim á brautarstöðinni í Hadsund. Ekki varð vart neinnar gremju vegna þess, að hann skyldi taka upp á þessu og þau gengu öll fimm um götur bæjarins. Þau voru því nær komin á áfangastað, þegar hann dró upp byssuna og skaut. Hann var afvopnaður þegar í stað, en í ringulreiðinni, sem á eftir fylgdi, tókst honum að iaka fram g'as af taugatöflum og gleypa töflurnar. Ilann var umsvifalaust færður á næsta sjúkrahús, þar sem dælt var upp úr honum. Ilann bíður nú þess, að mál hans komi fyrir dóm. Vonandi sjá norsk yfirvöld til þess að hann verði ekiú laus á nýjan leik alveg strax. □ Um þessar mundir er mikil lægð í vasaþjófnuðum í heims borginni New York. Lögreglan þar í borg hefur gert sér ákveðnar hugmyndír um hvað þeim ósköpum valdi. Hún telur, að vasaþjófarnir séu svo hræddir um að vera nappaðir einhvern næstu daga, sem myndi hafa í för með sér, að þeir yrðu að sitja inni meðan heimssýningin stendur yfir, að þeir ha'di að sér höndum að mestu leyti þar til hún hefst. En þá verða væntanlega heldur betur látnar hendur standa fram úr erm um. leiða f jarræsa, þannig að þeir, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, geta ræst ökutæki sín í fjarska og setzt síðan upp í, ef bíllinn er enn ferðafær. Hér er greinilega um að ræða stórt skref fram á við, en full- snemmt að spá því, að þetta þarfa þing muni verða til þess, að morð- um fækki að marki í guðs eigin landi. ☆ □ A1 Capone hefur nú legið í ,gröf sinni i allmörg ár, en þeir drepa hverir aðra af‘ fullum krafti í Chicago enn þann dag í dag. Ein af þægilegri aðferðunum, sem notaðar hafa verið til þess að senda menn á milli heima, hef- ur verið bílsprengjuaðferðin, þegar menn ræstu bifreið sína, hleyptu þeir samtímis straum á sprengju, sem að því búnu sprakk og varð þeim gjarna að aldurti’a. Nú eru menn teknir að fram- □ Hún horfði djúpt í augu hans og mælti: — Þú getur varla trúað hvað pabbi varð feginn, þegar ég sagði honufn, að þú værir jóðskáld. — Mér þykir sannarlega gaman að heyi’a, að hann skuli kunna að meta Ijóðlist. — Það er nú ekki beint það, lieldur hitt, að síðasti kærastinn minn var boxari. Krónprinsessa í Kuala Lumpur Margrét krói^irinsessa Dana hefur veriff á ferffalagi í Austurlöndum, meffan syst ir hennar virffist ætla aff verffa drottning á undan ‘ henni (í Grikklandi). Hér sést Margrét í Kuala Lump- ur, höfuffborg Malasíu, og fær hún ekki óglæsilega mót töku. II g 8- apríl 1964. — ALÞÝÐUBLAÐIO l

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.