Alþýðublaðið - 30.04.1964, Blaðsíða 3
mHMWW|»WWWMwtMWWWWWMWMWI*WMMMM*MMMWMWWWMMiWMW%WtHM
Erena gráti næst
við brúðkaup sitt
RÓM, 29. april. (NTB-Raut-
er). — írena Hollandsprins-
essa barðist við grrátinn þegar
hún og Hugro prins af Bourbon
Parma voru gefin saman í Róm
í dag af harmi vegna þess, að
foreldrar hennar voru ekki við
staddir hjónavísluna. Prinsinn
er konungsefni spönsku Carl-
istalireyfingarinnar. Að vígsl-
unni lokinni veitt Páll páfi
brúðhjónunum áheyrn í Páfa
garði.
Prinsessan, sem er 24 ára að
aldri, og prinsinn, sem er tíu
árum eldri, voru gefin saman í
hliðarkapellu Santa Maria
Maggiorebasilíkkunnar í Róm.
Vígslan stóð í hálfa aðra
klukkustund og gaf Paologi-
obbe kardináli, sem er 84 ára,
þau saman. Skömmu áður en
athöfnin hófst ræddi írene
prinsessa stuttlega við for-
eldri sína í síma.
í Haag kom fram fyrsta op
inbera viðurkenningin um, að
írena prinsessa hefði fjarlægzt
foreldra sína, í ræðu sem Mari
jnen forsætisráðherra hélt á
þingi. En hann kvaðst vona,
að sættir mundu takast. Hann
sagði, að konungshjónin hefðu
verið mótfallin því, að írena
prinsessa giftist í Hollandi.
Samkvæmt góðum heimildum
mun Júliönu drottningu hafa
gramizt, að írena prinsessa kom
ekki í veg fyrir, að faðir Hugo
prins skýrði konungsfjöldskyld
unni frá brúðkaupinu. Drottn-
ingin telur það móðgun við
sig, að hafa verið látin vita um
brúðkaupið eins og af tilvilj
un og að ekkert hafi verið ráð
færzt við konungsfjölskylduna
eða hollenzku stjómina.
Eftir áheyrnina hjá páfa,
sem gaf brúðjónunum dýrmæt
an kross var haldin mikil
veizla á Grand Hotel, sem um
800 manns sátu. Foreldrar brúð
gumans og ættingjar voru við
staddir. í hvert skipti sem fað
ir brúðgumans, Xavier prins,
fór úr einu herbergi í annað,
hrópuðu Carlistar: „Konungur
inn kemur!“ „Lengi lifi konung
urinn“ og önnur vígorð.
MHMUtmMMHHMHWHHWUMHMMMHViMHMUMMMMMUMHMHWMMHMHIIHHW
Afglöp ráðherra í
máli Wennerström
i -
- hershöfðingi í
STOKKHÓLMI,
29, apríl (NTB)
Nýju ljósi hefur verið varpað á
njósnastarfsemi sænska ofurstans
Stig Wennerströms með birtingu
skýrslu þingnefndar, sem rann-
sakað hefur njósnamálið, í dag.
Rauða hernum
Þar kemur m.a. í ljós að Wenner-
ström hafði hershöfðingjatign í
sovéka hernum og gat fengið eins
mikið fé og hann óskaði í sovézk-
um sendiráðum hvarvetna í heim
inum.
Samkvæmt skýrslunni leysti
Skothríð hætt á
Hilarion-kastala
NIKOSÍU, 29. apríl (NTB-Raut
er). — Kýpurstjórn skipaði í
kvöld hersveitum Kýpur-Grikkja
að hætta skothríð á St. Hilarion-
kastala á Norður-Kýpur, þar sem
barizt hefur verið síðan í lok síð
ustu viku. Kýpur-Tyrkir verja
kastalann.
I dag var nokkrum sprengju-
skotum skotjjð á kastalann. Einnig
var skipzt á nokkrum skolum ann
ars stað'ar á eyjunni. En að öðru
leyti var allt með kyri*um kjöruin
á Kýpur í dag, að sögn formæl-
anda SÞ.
í París skýrði aðalframkvæmda
stjóri SÞ, U Thant, frá því að
gríska stjórnin hefði fallizt á til
lögu hans um, að gríska setuliðið
á Kýpur verði sett undir stjórn
SÞ. Hann kvaðst eiga í samning-
um við tyrknesku stjórnina um
samskonar fyrirkomulag varð-
andi tyrkneska setuliðið.
U Thant kvaðst hafa rætt tví-
vegis í París við sáttasemjara SÞ,
Sakari Tuomioja. Þótt of snemmt
væri að segja nokkuð ákveðið
taldi hann, að Tuomioja vildi fara
þess á leit, að Öryggisráðið lengdi
starfstíma hans á Kýpur, sem upp
haflega var ákveðinn þrír mánuð
ir.
Hann hvatti foringja deiluaðila
á Kýpur til að hafa vit fyrir mönn
um sínum. Ef loiðtogarnar hlýddu
ekki slíkri grundvallarskyldu væri
lítið sem SÞ gæti gert til að stuðla
að lausn.
Talið var í dag að spennan á
Kýpur hefði rénað. Kýpur-Tyrkir
(Framhald á 4. síðu).
I Wennerström af hendi mörg verk
efni fyrir bandarísku leyniþjónust
una, ekki einungis 1946, heldur
[ cinnig þegar hann var flugmála
! fulltrúi í sænska sendiráðinu í
Moskvu 1949-52 og þegar hann
gegndi sömu stöðu í Washington
1952-57.
í skýrslunni, sem er 82 síður,
en tvær til þrjár þeirra eru leyni
legar) eru nokkur atriði, sem geta
gefið tilefni til gagnrýni á stjórn
ina. M.a. er bent á, að Sven And-
erson landvarnaráðherra hafi ekk
ert aðhafst til að takmarka að-
gang Wennerströms að leyniskjöl
um er ofurstinn gegndi hinu mik-
ilvæga embætti yfirmanns flug-
deildar herráðs landvarnaráðuneyt
isins 1957-61.
Þegar haustið 1959 skýrði lög-
reglan honum frá gruni, sem lægi
á Wennerström. Þegar nýr maður
tók við embætti yfirmanns öryggis
mála í landvarnaráðuneytinu haust
ið 1960 var honum ekki tjáð, að
Wennerström væri Iiættulegur
öryggi fyrir en um einu ári síðar.
í nefndinni, sem samdi skýrsl
una eru sex þingmenn úr öllum
lýðræðisflokknum.
Sú athyglisverða vitneskja
kemur fram, að fyrrverandi utan
ríkisráðherra Svía Östen Undén,
vissi ekki að utanríkisráðuneytið
hafði öryggismálafulltrúa og að
hann fylgdist ekkert með því sem
Wennerström tók sér fyrir hendur
þegar hann var skipaður ráðu-
nautur um afvopnunarmál í ráðu
neytinu 1961. því starfi gegndi
hann unz hann var handtekinn í
fyrra.
„Kínverjar lokkaðir
til Sovétríkjanna"
PEKING, 29. ápril (NTB-Reuter)
Aðalmálgagn kínverska kommún-
istaflokksítas, „Aljiýðudagblaðið“,
cndurtók í dag ásakanir þær, að
sovézk yfirvöld hafi lokkað ,/ugi
þúsunda“ Kínrverja yfir landa-
mærin til Sovétríkjanna frá Sink
iang-héraðL Blaðið bætti því við,
að Moskvu-stjórnln notaði blöð og
útvarp til að lokka Kínverja yfir
landamærin.
Jafnframt þessum ásökunum,
sem eru liður í endurteknum árás- ■
um Kínverja á sovézka leiðtoga
síðustu daga, hafa blöð í Sovét-
ríkjunum greint frá því, að ein
milljón Kínverja hafi flúið til
Hongkong Sovézka stjórnarmál-
gagnið „Izvestia“ segir í grein í
dag, að kínversku flóttamennirnir
í brezku nýlendunni hafi sagt, að
þeir hafi ákveðið að flýja vegna |
versnandi efnahagsástands í Kína |
og síaukinnar fátæktar.
,,Alþýðudagblaðið“ svaraði
þessu með því að saka sovézk yf- '
irvöld um undirróðursstarfsemi í
Sinkiang-héraði. Sinkiang er stórt
hérað, sem nýtur sjálfsstjórnar, í
vesturhluta Kína.
Kínverzka flokksmálgagnið
skýrði frá fundi alþýðuþingsins í
Urumchi, höfuðstað Sinkiangs ný-
lega. Þar voru sovézk yfirvöld
sökuð um að freista og lokka tugi
þúsunda Kínverja til Sovétríkja-
anna. Blöð og útvarp á þessum
slóðum hafa enn fremur dreift
lygum og rógi um einingu kín-
versku þjóðarinnar, segir í „Al-
þýðudagblaðinu".
Mörg þjóðarbrot búa í Sinkiang,
aðallega Múhameðstrúarmenn,
þar búa einnig margir Kínverjar,
aðallega hermenn, sem gegna ekki
lengur herskyldu.
Kínverjar hafa algerlega þagað
um erfiðleika og ólgu 1 Sinkiang
síðustu sex mánuði og heldur ekki
svarað árásum Rússa frá í fyrra
um sífelldan yfirgang Kínverja á
landamærunum.
Uppljóstranir „Izvestia‘‘ um kín
versku flóttamennina í Hongkong
eru nýtt stig í hinni beisku hug-
myndadeilu kommúnista í Moskvu
og Peking. Fréttaritarar blaðsins
segja m.a. í grein sinni, að erfitt
sé að sætta sig við þá staðreynd,
að flóttamennirnir komi frá kín-
verska alþýðulýðveldinu. Þegar
menn virði fyrir sér þetta ör-
magna fólk, sem aðeins fái tekj-
ur öðru hverju, verði mönnum
hugsað til þess, að það vilji ekki
snúa aftur til ættjarðarinnar.
Cabot Lodge
sigrar enn i
prófkosningu
WASHINGTON,
Kjóscndur í tveim ríkjum Banda
ríkjanna veittu í dag Henry Cabot
Lodge, sendiherra í Suður-Vitet
nam, og William Scranton, rikis-
stjóra í Pennsylvaníu, ótvíræðán
stuðning til að vera tilnefndir for
setaefni repúblikana. Hvorugrur
hefur tjáð sig fúsan til að taka
við tilnefningu.
Lodge sendiherra vann hreinan
sigur í svokölluðum undankosn-
ingum í Massaehusetts, en Scran
ton ríkisstjóri tryggði sér traust
fylgi í Pennsylvaníu. Hvorugur
bauð sig fram, en .kjósendur skrif
uðu nafn þeirra á atkvæðaseðl-
ana.
Borgarastyrjöld i
Laos yfirvofandi
29. apríl (NTB-Reuter)
í dag lék hætta á að ný borgara-
styrjöld dyndi yfir í Laos og her
menn hlutleysissinna voru í flý'.i
fluttir burtu frá Vientiane ásamt
fjölskyldum sínum.
Hlutleysissinnar, sem voru 1000
talsins, voru flutdr frá Vientiane
sem er aðsetur stjórnarinnar, til
Krukkusléttu, þar sem yfirmaður
hermanna, Kong Le hershöfðingi,
ræður ríkjum .
í gær sló aftur í bardaga á
Krukkusléttu, Pathet Lao-hersveit
ir kommúnista gerðu árásir á stöðv
ar hlutlausra og hægrisinna með
slórskotaliði og sprengjuvörpum.
Stjórn hægrisinnaðra herforingja,
sem tók völdin í síðustu viku, skip
aði hlutleysissinnum að hörfa frá
Vientiane. Jafnframt héldu bar-
dagarnir á sléttunni áfram.
Hermennirnir tóku vopnin ekki
með sér og hermenn liægrisinna
gæta aðalstöðva þeirra.
Hinn hluilausi forsætisráðherra
Souvanna Phouma fursti, beið í
dag eftir svari frá leiðtoga Pathert
Lao, Souphanouvóng fursta, við
tillögu forsætisráðherrans um
fund æðstu manna á Krukkusléttu
Fulltrúar aíþjóðlegu eftirlits-
nefndarinnar í Laos flugu í dag
til aðalstöðva Souphanouvongs í
Khangkhay ásamt fulltrúum Bret
lands og Sovétríkjanna, en full-
trúar þessara landa yoru formenn
Genfar-ráðstefnunnar um hlut-
leysi Laos 1962. Souphanouvong
bauð fulltrúunum á sinn fund að
ræða stjórnmálaástandið í landinu
eftir byltinguna í síðustu viku.
Ný kreppa er yfirvofandi í Laos
þar eð allri vestrænni aðstoð við
landið var hætt til bráðabirgða
eftir byltinguna. Bandaríkin, Bret
land og Frakkland, sem hafa stuðl
að mest að jafnvægi í. efnahags-
málum Laos, hafa tekið afstöðu
gegn byltingunni.
Bankar í Laos liafa verið lok-
aðir í viku og ný innflutningsleiyi
hafa ekki verið veitt. Haft er eftir
góðum heimildum í Vientiane, að
vesturveldin hafi í rauninni „fryst
alla aðstoð við Laos. |
- ALÞÝÐUBLAÐlt) — 30. apríl 1964 3