Alþýðublaðið - 30.04.1964, Síða 7
Tanganyika og Zanzibar hafa
* sameinast í eitt lýS-
veldi. I>ótt mikil leynd hafi
hvílt yfir viðræðunum, sem leiddu
til stofnunar sambandslýðveldis-
ins, og þótt fréttir af þessum at-
burði séu af skornum skammti
virðist Nyerere, forseti Tangany-
ika, hafa unnið hér mikinn sigur.
Hið nýja sambandslýðveldi
verður stjórnað samkvæmt lögum
Tanganyika unz nýjar þingkosn-
íngar hafa farið fram. Nyerere er
þjóðhöfðingi, Karume, fyrrver-
andi forseti Zanzibar, er fyrsti
varaforseti og hinn ungi stjóm-
málamaður, Kawawa frá Tangany-
ika, ex annar varaforseti.
Þessi óvænta stofnun hins nýja
ríkis hefur gerzt án þess að
nokkru skoti hafi verið hleypt af,
og greinilega með lagalegum
hætti. Byltingarráðið á Zanzibar
hefur einróma viðurkennt hið
nýja lýðveldi og þingið í Tangany
ika, en þar eiga aðeins fulltrúar
úr fiokki Nyereres sæti, stendur
sjálfsagt einhuga á bak við for-
seta sinn.
Á eyjunum Zanzibar og Pemba
er allt með kyrrum kjörum ,og
er það ekki hvað sízt að þakka
300 lögreglumönnum frá Tangany-
ika. Lögreglumönnum þessum hef
ur verið fjölgáð síðustu daga svo
að lítið hefur borið á. Upphaflega
fóru foringjar byltingaTinnar á
Zanzibar í januar þess á leit, að
lögreglumennimir frá Tangany-
ika yrðu sendir til eyjunnai’. Nú
em þessar lögréglusveitir orðn-
ar trygging fyrir hinu nýja sam-
bandsiýðveldi.
'
Weð þessari rólegu byltingu
^"hefnr Zanzibar fengið fjórða
stjórnarkerfi sitt á hálfu ári.
Bretar voru á kryddeyjunum þar
til í desember í fyrra. Nokkrum
dögum eftir að Kenya öðlaðist
sjálfstæði létu Bretar stjórnina í
hendur so’dáninum og Aröbum,
sem unnið höfð)c meirihluta í
kosningunum fyrr á árinu þótt
þeir væm í minnihluta. Úrslit
kosninganna stöfuðu af því hvern
ig kjördæmaskiptingunni var hátt
að og hvernig íbúarnir skiptust
á tveim stærstu eyjunum.
Soldáninn hafði ekki ríkt sem
þjóðhöfðingi í meira en einn mán
uð þegar mikill uggur gerði vart
við sig í Austur-Afríku ög heim-
inum yfirleitt vegna uppreisnar
nokkur hundruð manna undir for
ystu metnaðargjarns og málgefíns
foringja, John Okello ,marskálks‘.
Okello er elginlega frá Uganda,
en hann hafði verið' búsettur á
Zanzibar síðan 1957. Árið 1961
var hann sendur til Kúbu, og
þar hlaut hann menntun til að
gegna mikilvægu embætti í lög-
reglunni á Zanzibar. Hann notaði
tímann vel og þakkaði „námsstyrk
inn“ með því að steypa soldánin-
um af stóli, handtaka Arabana,
reka burtu bandaríska og brezka
diplómata og undirbúa jarðveginn
fyrir stjórnmálamenn, sem hlynnt
ir voru málstað kommúnistafor-
ingja í Peking og Moskvu. Nú er
Okello kominn aftúr til Uganda.
„Hinn sterki maður“ byltingar-
innar var Sheik Abdul Rahman
Babu. Hann varð utanríkisráð-
herra byltirigarstjórnarinnar, sem
lýsti þegar yfir stofnun alþýðu-
lýðveldis á Zanzibar. Kínverjar,
sem áður höfðu rekið mikinn á-
róður á eyjunum, komu þegar á
vettvang og ekki leið á löngu þar
til þeir höfðu komið á fót sendi-
ráði með 30 manna starfsliði í
litla eyríkinu, sem byggt er rúm-
lega 300 þúsund manna.
Rús'sar hreiðruðu éinnig um
sig, og Austur-Þjóðverjar hófu
byggingu ú varpsstöðvar, sem átti
að reka áróður um alla Austur-Af
ríku. Yfirleitt stefndu kommúnist
ar að því að búa rammlega um
sig á Zanzibar og gera hana að
„Kúbu Afríku“. Athyglisvert er,
að sama kvöldið og kuhngert var
að Zanzibar- og Tanganyíka ættu
að sameinast var útvarpsstöðin á
Zanzibar „upptekin", þar eð kín-
verski sendiherrann var að halda
langa ræðu.
Uvað býr að baki byltingu Ny-
’* ereres? Enn sem komið er
verður að byggja á líkum,
en þó virðíst málið liggja ljóst
fyrir. Vert er að minna á, að
Tanganyika viðurkenndi bylting
arstjórnina á Zanzibar eftir bylt-
inguna í janúar síðast hinna
þriggja ríkja Ausiur-Afríku. Senni
lega var ástæðan sú, að útlend-
ingur, Okello frá Uganda, hafði
völdin á eyjunum í sínum höndum.
Uppreisnir hermannanna í
Tanganyika voru gerðar nokkrum
dögum eftir byltinguna á Zanzi-
bar. Þótt ekkert pólitískt sam-
band virðist vera á milli þessara
tveggja a.burða, er samt um sam-
band að ræða. Soldáninn, sem varð
1 að flýja frá Zanzibar, fékk ekki
að stíga á land í Kenya, en Nyer-
ere leyfði honum að koma við í
Tanganyika.
Nyerere hlýtur að hafa orðið
áhyggjufullur þegar smám sam-
an fór að koma í Ijós, að stjórn
byltingarmanna á Zanzibar gerð-
ist æ handgengari kommúnistum.
Zanzibar gat orðið „brúarsporð-
ur“ kommúnista, og þaðan yrði
fyrst veitzt gegn Tanganyika. Zan
zibar-eyjarnar eru rétt undan
strönd Tanganyika og eru tilval-
inn stökkpallur til hvers konar
starfsemi á meginlandinu.
Til þess að bjarga eigin stjóm
og af öryggisástæðum var Nyer-
ere nauðsynlegt að gera Zanzibar
áhrifalaust eins fljótt og unnt var.
Hann lét til skarar skríða þegar
Babu dva'dist erlendis. Hins veg-
ar getur byltingaiTáðið ekki hafa
verið ófúst, þar eð ekki var hleypt
af einu skoti.
Kannski höfðu meðlimir þess
fengið nóg af Kínvcrjunum. Rúss-
unum og Austur-Þjóðverjunum.
Með hinu nýja sambandslýðveldi
komast þeir aftur inn í afrískt
samfélag, þar sem. það kjörorð er
haft að leiðarijósi að vera óháður
valda blijkkum.
Kótt þessi rólega bylting hafi
komið á óvart vissu aðrir afr
ískir stjórnmálamenn senni-
Abdul Rahman.
lega um hana fyrirfram. Níu
manna ráð Einingarsamtaka Afr-
íkjuríkjanna hefur aðalbækistöðv-
ar sínar í höfuðborg Tanganyika,
Dar-es-Salaam. Það er enn í minn
um liaft hve Nyerere var fljótur
að kalla ráðherra annarra Afríkju
ríkja til fundar þegar hann hafði
neyðizt til að biðja um aðstoð
brezkra hersveita gegn eigin her-
mönnum, sem gerðu uppreisn í
janúar-febrúar sl.
Mikið má vera ef stofnun hins
nýja sambandsríkis var ekki rædd
í níu manna ráðinu, eða að því
hafi borizt fregnir af hehni. Það
verður áreiðanlega engum vand-
kvæðum bundið að afla stuðnings
við hið nýja sambandsríki. Afríku
ríkin eru áreiðanlega sammála um,
að umfram allt beri að fylgja
hlutleysisstefnu og útiloka „ný-
lendustefnu í nýrri mynd“. (Ar-
beiderbladet).
AFENGISSALAN
JÓKST UM 19%
Reykjavlk, 25. apríl — HP.
FYRSTU þrjá mánuði þessa
árs hefur áfcngissalan hér á landít
verið um 19% meiri en hún var
á sama ársfjórðungi 1963, þrátfi
fyrir talsverðar verðhækkanir,
sem urðu á áfengi um mitt sum-
ar í fyrra. Heildarsalan fytKtu
þrjá mánuði ársins 1964 er n»
10.401.146.00 kr. meiri en á sama
tíma í fyrra, og er þá miðað viði
söiu ÁTVR í Reykjavík, á Akur--
eyri, ísafirði, Siglufirði og' Seyff-
isfirði. í fyrra nam heildarsalan
á þessum stöffum öllum. fyrstu
þrjá mánuffi ársins kr. 54.191.427..
00 kr., en í ár var hún 64.592.
573.00 kr.
Heildarsalan 1. janúar til 31.
marz 1964 hefur verið sem hér*
segir (samsvarandi tala frá því í
fyrra í sviga). Selt í og frá Reykja
vík fyrir kr. 54.826.081.00 (45.317.
619.00), Akureyri 5.512.681.00 (5.
018.672.00), ísafirði 1.878.524.00
(1.719.239.00), Siglufiröi 951.741.
00 (1.015.702.00), Seyðisfirði 1.419.
546.00 (1.080.195.00).
Upplýsingar þessar eru teknai'
úr fréttatilkynningu frá Áfengis-
varnaráði.
★ STOKKHÓLMI: Hinn 38 ára
gamli alþjóðlegi ævintýramaður
(af þýzkum uppruna) er lýst var
eftlr síðastliðinn föstudag vegna
mikils bankaráns þar í borg þá
var í dag handtekinn á landamær-
um Vestur-Þýzkalands og Austur-
ríkis af bæernsku lögreglunni. —
Stal hann í einu útibúi í Gauta-
borg 125 þús sænskum krónum.
STÚDENTABLAÐIÐ
ER KOMIÐ ÚT
Reykjavík, 27. apríl - KG
ÚT er komiff annað tölublaöT
Stúdentablaffsins á þessu ári eu
þaff er Stúdcntaráð Háskóla ís-
lands, sem gefur blaffið út. Rit~
stjóri og ábyrgðarmaffur blaðsina
er Björn Teitsson, stud. mag. Af
efni blaðsins má nefna vifftal viff
dr. Leif Ásgeirsson, prófessor uni
háskólanám. Fagraskógarskáldiff
grein um Davíð Stefánsson eftir
Steingrím J. Þorsteinsson prófess-
or, greinar um málefni deildarfé-
laganna og fréttir af félagsstarf*
stúdenta.
/ .SIMIIIIIIII'Mlllllllllllllim
miiiiiiaiiiiiiii
iiiiiiiiiiiiiiiiiiti»u<iiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii||||l|n||M|l|l|ll|l|l|ll|ll||ll|||lll|||lll||||im|||||||||lllllllf|l
ll■■lllllll■tllllll■llIll■llllll■llll•llll•l■<||||■«|||||*■•lll>■ll■■l■l*&llll■**||*|*■*|*■**■■ll*lr.
E ICE
Hssi ÍS^ÍIé^ Hsgi
Hafnarfjarðarbíó:
WEEKEND.
DÖnsk kvikmynd undir
stjórn Palle Kierulf
Smidt.
ÍSLENDINGAR sem vanastir
eru við skopmyndir Dirch Pass-
ers og mættu telja þær hina
einu sönnu dönsku kvikmynda-
framleiðslu, hafa nú ástæðu til
að fara í Hafnarfjarðarbíó og
sannfærast um það, að Danir
eru færir um að sýna listrænni
vinnubrögð en höfð eru við
Passer að jafnaði.
„Örlagarík helgi“, sú er sýnd
er í Hafnarfjarðarbíói, minnir
um margt á aðra danska mynd,
sem Hafnarfjarðarbíó sýndi. í
fyrra, „Einvígið". Mig minnh’,
að ég hafi þá talið hana athygl-
isverðustu dönsku myndina,
sem hér hefur komið.
Ekki man ég, hvort-Kierulf
Smidt var stjórnandi • þeirrar
myndar, en óneitanlega bendir
II
1
margt .til þess, og er -þá víst
óhætt að telja hann einn hinn
efnilegasta danskra leikstjóra.
Reyndar er stúlka ein að skjót-
ast upp á þann himin í Dan-
mörku og á vafalaust eftir að
gera lcarlkyninu „lífið brogað“.
Hún heitir Annelise Hovmand.
Hún hefur nýlega stjórnað
myndinni „Seksteti“, dem
vakið hefur gífurlegt umtal —
og þar að auki hlotið lof kriti-
kera.
„Örlagarík helgi" fjallar um
nokkur hjónakorn og einn utan
veltubesefa, sem hittast sumar
helgi og „skemmta sér“. —
Skemmtanin endar með ósköp-
um. enda Sláandi dæmi um
samskonar skemmtanir, sem sí-
fellt eru að enda með ósköp-
um um heim allan.
Myndin er um móral fólks
eða móralleysi, en þó ef til vill
fyrst og fremst um dýrið i
manninum, og það hvernig við
glötum taumhaldi á því, án þess
að skilja það sjálf.
(Framhald á 10, slðu).
ðinfHi»tilliit(iiiiiiiiiiiKi|i»liliiJM(|lilllMlllllll’lllli|iiiliiliiiiillliiii|i|llliililiiiiivliliMtli 111111111111111111111111111111111111(11111111111 tiiltt(lil<Ul>iii<M>lMil,M.Mltiili.iifMii^|ii|iiiii|iilliiiiUiHiuitiiiiiliiili|iiii.iii ii iiiMtitiiiiiiti*iiilHiiiiimiiiiiiiMliiiimilM>miiiiii|i-iiiimii‘iiii'iiiiiiiiiiiiiiiii/ii>>
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 30. apríl 1964 7
^MMIMIIIIIMHIIHÍIIIMMIHlMIHMIHinilllMMÍiMMIIIIIMMM'iHMil.HlMMllllMIIMlHMM'IMrtMMMiMIÍiWllMJÍIMIH'MHMrtf'