Alþýðublaðið - 30.04.1964, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 30.04.1964, Blaðsíða 16
HWWWWWWVWWWWMWWWWWWWWWMWMWWWWWWWMWWWWWWWW Margvísleg fjáröflun1 tíl íbúðabygginga Reykjavík, 29. apríl EG. Emil Jónsson félagsmálaráð- herra, upplýsti á Alþingi í dag, að næsta úthlutun úr lána- sjóði Húsnæðismálastjórnar yrði innan skamms, eða strax og fyrir lægi, hve miklu fé mundi verða hægt að ráðstafa. Emil gerði grein fyrir liinum ýmsu fjáröflimarleiðum til í- búðalána. Nú lægi fyrir Alþingi ' frumvarp um -að auka skyldu- sparnað úr 6% í 15% og mundi sú ráðstöfun valda þvi að til ráðstöfunar yrðu um 30 milljón ir á ári, þá hefði verið Iagt fram í dag frumvarp til laga um að skylda tryggingarfélög in til að kaupa skuldabréf Hús næðismálastjóirnar fyrir 25% af ráðstöfunarfé sínu. Mundu fyrir tilstilli þeirrar ráðstöfun ar verða til reiðu um 20 milljón ir á ári, miðað við núverandi ráðstöfunarfé tryggingarfélag- anna. Atvinnuleysistrygginga- -sjóður mundi á árinu kaupa skuldabréf fyrir 37 milljónir króna. Þá sagði Emil, að staðið hefðu yfir samningar við lífeyr issjóðina um kaup þeirra á skuldabréfum Húsnæðismála- stjórnar, en árangur lægi enn ekki fyrir af þeim samninga- umleitunum. Við framangreint bættist svo að sjálfsögðu eigið ráðstöfunarfé húsnæðismála- 'stjórnar. Ennfremur væru ýms ar frekari fjáröflunarleiðir í athugun. Það væri lítill vandi að benda á, að fjár væri nú þörf á vettvangi húsnæðismála, sagði Emil, en öllu meiri vandi væri á að benda á raunhæfar fjáröflunarleiðir. Reiknað væri með að byggingaþörf okkar væri um 1500 íbúðir á ári og teldu sérfræðingar, að Húsnæð ismálastjórn þyrfti að útvega lán til helmings þeirra íbúða. Á síðastliðnu ári hefði verið úthlutað um 110 milljónum og það léti mjög nærri að vera 150 þúsund krónur á 750 íbúð ir. Emil sagði, að ríkisstjórnin mundi gera allt, sem í hennar valdi stæði til að bæta það á- stand sem nú rikir í þessum efnum. Hann benti á, að ef líf eyrissjóðirnir tækju á sig alla fyrirgreiðslu meðlima sinna í þessum efnum mundi það létta töluvert á hinu almenna veð- lánakerfi, og mundu þá með- limir lifeyrissjóðanna ekki fá úrlausn hjá húsnæðismála- stjórn fyrr en búið væri að sinna þeim, sem ekki ættu í annað hús að vcnda með lán. Næsta úthlutun lána verður innan skamms, eða strax og fyrir liggur hve mikið fé verð ur til úthlutunar, sagði ráð- herrann. Framangreindar upplýsingar veitti ráðherrann í svari við fyrirspurnum frá Geir Gunn arssyni og Ingvari Gíslasyni. 45. árg. — Fimmtudagur 30. apríl 1964 — 97. tbl. Veizlukaffið hefst kl. 2,30 á morgun iWWWWWWWWWtWWW^WWWWWWWWWWWWMWWWWWWMWWMWMWWWWMWWtWW1 FYRIR FIMM árum hóf Kvenfél- ag Alþýðuflokksins í Reykjavík þá nýbreytni að efna til veizlukaffis á hátíðisdegi verkalýðsins 1. maí Þessi nýjung mælist mjög vel fyr ir og er veizlukaffið nú orðinn fastur þá tur í starfsemi félagsiHS Félagskonur annast sjálfar allan undirbúning og hafa jafnan á boð stólum geysi margar gerðir af glæsilegum kökum og tertum. Getur hver snætt af þeim eins og hann lystir. Alþýðublaðið vill minna á þessa vinsælu starfsemi Kvenfélags Alþýðuflokksins og hvetja menn til þess að bregða sér niður í Iðnó á morgun og kynn- ast veizlukaffinu af eigin raun, Húsið verður opnað kl. 2.30. BONN, 29. apríl (NTB-Rauter). — Jafnaðarmannaflokkur Vestur-, Þýzkalands fór þess á leit við stjórnina að vísa ekki á bug án þess 'að hugsa sig um tvisvar til lögu A-Þjóðverja um að Austur og Vestxir-Þjóðverjar skiptist á blöðum. t-f MYNDIN var tekin í Listamannaskálanum í gær, en þar var þá werið að hengja upp málverk og koma fyrir höggmyndum, sem sýnd verða á vorsýningu Myndlistarfélagsins. Talið frá vinstrí: Finnur Jónsson, listmálari, form. félagsins, Helga Weisshappel, formaður «ýningarncfndar, Nína Sæmundsson, listmálari og Eggert Guðmunds 'fton, listmálari. — Mynd: K. G. Reytojavík, 29. apríl — HP ÞRIÐ JA vorsýning Myndlistar- lélagsins verður opnuð í Lista- enannaskálanum kl. 5 siðd. föstu- daginn Jt. maí n.k. og verður hún ■eíðan opin frá kl. 13—22 daglega 6 hálfan mánuð. Á sýningunni verða olíiunálverk, vatnslita- og jpastelinyndir, höggmyndir og 4eikningar, — alls 70 verk eftir 26 myndlis'armenn. Form. Mennta- málaráðs, Helgi Sæmundsson, mim opna sýninguna. 23 þeirra, sem verk eiga á sýnr ingunni, eru félagar í Myndlistarr félaginu, en auk þeirra sýna mál7 ararnir Jóhannes Kjarval, Jójj Engilberts og Kári Eiríksson. Á, þessari vorsýningu félagsins verða (Framhald á 15. síðn). Miklar skólabyggingar í Kópavogi f sumar Reykjavík, 29. apríl, ÁG MIKLAR framkvæmdir verða við skólabyggingar í Kópavogi í sum ar. Lokið verður við Digranes- skóla og þriðja áfanga Kársnes- skóla. Einnig er ætlunin að byggja smíðahús við Képavogsskóla. Þá hefur verið boðin út bygging vatns geymis, og er unnið að því, að semja við væntanlega verktaka. Blaðið ræddi i dag við H.iálmar Ólafsson, bæjarstjóra í Kópavogi. Hann sagði, að ætlunin væri að hefja byggingu Digranesskóla í sumar, og ljúka við hann. í honum verða sex kennslustofur. Þá á að ljúka við þriðja áfanga Kársnes- skóla, og verða þar sjö toennslu- stofur, Hjálmar gat þess, ;að skort ur væri mikill á vinnuafli, og gæti | það haft einliver áhrif á 'þcssar 1 fyrirætlanir. Þá sagði hann, að nú hefði ver- ið boðin út bygging vatnsgeymis sem mun standa við Digranesveg. Er nú verið að semja við verktak- ana. Hann sagði, að nokkuð hefði borið á vatnsleysi í bænum en það hefði lagazt nokkuð eftir að ný (Framhald á 4. síSu). Sýnir blaðateikningar UM ÞESSAR mundir stendur yfir í Mokka nýstárleg mynd listarsýning. Ragnar Lár, blaða maður og teiknari Alþýðublaðs ins, sýnir 34 blaðateikningar, og hafa flestar þeirra birzt hér í Alþýðublaðinu. Er þetta fyrsta sýning sinnar tegundar liér á landi. Sýningu þessa nefndir Ragn ar „Úr rissblokkinni" og eru þetta mest myndir af flóki. Þarna skjóta upp kollinum ýmsir góðborgarar, eins og t. d. Albert Guðmundsson, Jakob Hafstein og fleiri. Þarna eru myndir úr leikritum, sem sýnd hafa verið í leikliúsum höfuð- staðarins í vetur, svipmyndir af götulífi bæjarins og sitthvað fleira. Allar myndirnar eru til sölu og verða til sýnis á Mokka næstu daga. WWMWWWiWWWWtWWWWWWWWMWWWW WWWW4WWWWWWMWWWWWWWWWWWWV

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.