Alþýðublaðið - 26.06.1964, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 26.06.1964, Blaðsíða 3
Tækni, leit og rannsóknir hafa stóraukið síldveiði Reykjavík, 25. júní — HP. í DAG var síðasti fyrirlestradasr urinn á norrænu fiskimálaráðstefn unni, ogr hófst fundur kl. 10 í morgr un. Þá flutti Per Rogrstad, ráðu- neytisstjóri frá Norejri, fyrirlestur um sölu á ferskfiski þar í landi, en síðan sátu fulltrúarnir hádegris verðarboð samtaka fiskframleið- enda og fiskútflytjenda. Kl. 3 síð degis flutti svo Jakob Jakobsson, fiskifræðingur, fyririestur um tækniþróun í síldveiðum ísiend- inga, og sýnd var kvikmynd. í fyrramáii fara þátttakendur í ráð stefnunni í feröalag til Geysis, Gullfoss og Þingvalla, þar sem henni lýkur annað kvöld. í fyrirlestri sínum lýsti Rog- stad ferskfisksölukerfinu nox-ska, gerði grein fyrir lagasetningunni um það og þróun þess frá upphafi. 1927 voru stofnuð síldarsamlög, Storsildlaget og síðan Stor- vársild laget fyrir annan landshluta en hið fyrrnefnda, og hafa þau notið lagaverndar frá því árið 1929. Sjö árum seinna sameinuðust þau í Norges Sildesalgslag, sem síðar fékk einkarétt á síldarsölu sam- kvæmt lögum. Upp úr 1930 komu upp raddir um, að nauðsyn bæri til að koma svipuðu skipulagi á þorsksöluna og sölu á sem flest- um fisktegundum. Fyrstu freðfisk lögin, sem taka til allra fiskteg- unda, eru frá 1938, og 1947 var gerð á beim breyting, sem tryggði, að þau næðu einnig til verzlunar með skelfisk og skelfiskafurðir, Samkvæmt heimild í ferskfisklög unum eru nú 15 fisksölusamlög lögvernduð í Noi'egi og hafa feng ið einkarétt á sölu og dreifingu þeirra fisktegxinda, sem um er að r,æða í hverju tilfelli. Stærst þeirra er Norges RSfisklag, en það verzlaði árið 1963 með samtals 350.000 tonn af fiski, og nam verð mæti lxans alls um 300 milljónum norskra króna. Þar að auki eru sex önnur þorsksamlög, og 7 önnur fiskisamlög, sem sjá um fisksöljx á ákveðnum tegundum fyrir allt landið eða einstaka landshluta. Stærst þeiri'a hefur lengi verið Norges Sildesalgslag, sem áður er nefnt og Hvalfisksaml. Rogstad sagði, að komið hefði til tals að slá samlögunum saman að ein- hverju leyti. Gæti það í sumum til fellum verið hentugt, en ekki hefði þó enn orðið af því. Um ferskfisksölufyrirkomulagið í heild sagði hann. að það hefði reynzt vel, og væru flestir ánægðir með það í Noregi, ekki sízt sjó- mennirnir sjálfir. Jakob Jakobsson hóf fyrirlestur sinn á því að minna á, að fisk- veiðiþjóðir heimsins hefðu á nokkrum síðustu árum beint at- hygli sinni að hinum öra vexti og viðgangi íslenzkra síldveiða og aukningu aflamagnsins, sem hon- um hefði fylgt. Margir forvitnir gestir hefðu heimsótt íslendinga upp á síðkastið, — sérfræðingar alls staðar að úr heiminum, sem (Framhald á 4. siðu). Stúdentarnir þrír eru nú taldir af Philadelphia, 25. júní. (ntb-r). UMFANGSMIKIL leit að stúd- entunum þremur, sem undanfarið hafa haft áberandi baráttu fyrir jafnrétti kynþáttanna með hönd- um í Mississippi, en hurfu ný- lega, heldur áfram af fullurn krafti. í dag sagði lögreglan, að ekki væri lengur búizt við því, að þeir væru á lífi og því væri nú leitinni einbeitt að því að finna líkin. Sérfræðingar hafa rannsak- að liið útbrunna bílflak rækilega og einnig rannsakað vel og vand- lega ösku þá, er fannst á staðnum. (Framhald at 3. síðu). Taylor einkum talinn sinna styrjöldinni Bændahátíð og Bítlar 25. júní. Grafarn.-Rvk. sh-likg. MIKIL bændahátíð var lialdin um Jónsmessuna í samkomuhúsinu að Breiðabliki. Þar voru ræðuhöld og dans. í gærkvöldi léku Bítl- arnir frá Keflavík á dansleik í Ólafsvík. Þeir eru á ferðalagi hér vestra. Veðrið er ágætt þessa dagana, en spretta er léleg í sveitum sök- um þurrkanna í allt vor. Moskva, 25. júní. (NTB-Reuter). Rauða stjarnan, aðalmálgagn sovézka hermálaráðuneytisins, seg- ir í grein í dag, að hinn ný-út- nefndi ambassador Bandaríkjanna í Suður-Vietnam, Maxwell Taylor hcrshöfðingi, muni fyrst og fremst láta sig skipta styrjöldina þar. Á meir en sex mánuðum hafi Bandaríkjamenn komið sér upp nýjum hestum í hinu órólega suð- austurasíska lýðveldi, en það liafi lítt stoðað, vagninn sitji enn blý- £astur í forai-leðjunni. Nú hafi Washington fengið nýjan ekil en þeim muni ekki ganga neitt bet- ur en fyrirrennurum hans. Hinn nýi ambassador hafi enga reynslu segir í greininni. Hins vegar dragi enginn dul á það í Washington, að Taylor hershöfðingi muni sízt af öllu rækja sendiherraembætti sitt með venjulegum hætti. Hann muni fyrst og fremst sinna styrj- aldarmálefnunum þar eystra. Að því er Rauða stjarnan segir, eru fréttamenn í Washington á því, að skipan Taylor hershöfð- ingja í embættið þýði það, að Bandaríkjastjórn sé fús til þess að taka þá áhættu, sem harðn- andi skæruhernaður í Suður-Viet nam, hefur í för með sér. Myiidin er frá Mississippi og sýnir hóteleigandann Janics Brock tæka brúsa iaf saltsýru yfir nokkra blökkumenn er farið hafa í bað í sundlaug hótelsins. Atburður þessi átti sér stað eftir að 70 blakkir menn og hvítir höfðu farið inn í hótelið í mátmælaskyni við það að Brock neitar blökkumönnum aðgang að hótelinu. Papandreou enn ófús til samvinna Bjarni Benedikts- son frá Húsavík Pátinn Bjarni Benediktsson, fyrrum póstafgreiðslumaður á Húsavík, andaðist í gær í sjúkrahúsi í Reykjvík, 87 ára gamall. Washington, 25. júní. (NTB-R.) Dean Rusk, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, átti í dag viðræður við George Papandreou, forsætis- ráðherra Grikklands, um Kýpur- málið. Lýsti hann í smáatriðum fyrir forsætisráðherranum hverju Bandaríkin stefndu að í Kýpur- deilunni. Síðar átti Papandreou viðræður við Johnson forseta, er reynir að fá Tyrkland og Grikk- land til að setjast að samninga- borði um deiluna. Að því er góðar heimildir segja neitar Papandreou stöðugt að hefja tvíhliða samninga við Tyrk- land á grundvelli tyrknesku til- lögunnar um að annað hvort verði Kýpur skipt í tvo hluta eða mynd uð verði sambandsstjórn þjóða- brotanna tveggja. Af hálfu Banda ríkjanna er sú skoðun uppi, að til raifn Johnson forseta til að kpma á friði, liafi heppnast vel, ef liann getur fengið Tyrkland og Grikk- land til að skilja, að styrjöld milli þeirra er óhugsandi. í Washington er sagt, að gríska sendinefndin hafi stungið upp ó því, að stjórnir Grikklands og Bandaríkjanna gefi út sameigin- lega yfirlýsingu, er að vissu marki dragi úr yfirlýsingu þeirri, — er Hvíta liúsið sendi frá sér að lokn- um samtölum Johnson foi’seta og ísmet Inönu, forsætisráðherra Tyrklands. Sagt er, að Papandreou líki ekki ein setning í hinni tyrk- nesk-bandarísku yfirlýsingu, en hún er á þá leið, að Bandaríkin og Tyrkland staðfesti með sér skuld- bindingar þær, er núverandi samn ingar milli ríkjanna leggi þeim á herðar við núverandi aðstæður. Er hér átt við samningana um Kýpur frá 1960, sem gefa tyrkneska minnihlutanum á Kýpur neitunar- vald í vissum málum og veitir einnig Grikklandi og Tyi-klandi í- hlutunarrétt, ef svo stendur á. — Ekki hefur Grikkland foi'mlega sagt upp samningum þessum, en heldur því hins vegar fi’am, að reynslan hafi sýnt, að samnings- atriðin hafi ekki lengur raunhæft gildi. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 26. júní 1964 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.