Alþýðublaðið - 07.07.1964, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 07.07.1964, Blaðsíða 1
EWl) 44. árg. — Þriffjudagur 7. júlí 1964 — 150. tbl. Vikulöndunin var um 265,754 mál HEILDARSÍLDARMAGNH), sem komið' er á land nú, er rúmum 500- 000 málum og tunnum meira en Dætur Krústjovs Júlía Gontar og Elena Krústjova nýkomnar úr ferða- lagi um Suðvesturland. Mennirnir á myndinni eru þeir Vladimir Jacob túlkur og ambassador Sovétríkjanna á íslandi. Sjá nánar á baksíðu. - (Mynd: G0.) tWWmWMWtWWttMMMMMHWWWIW WMMWMMIWWMWIWMWMWIVWW Flugfélagiö fær Fokkervél í apríl Reykjavík, 6. júlí - KG FLUGFÉLAG íslands hefur nú á- kveðið að festa kaup á Fokker friendship skrúfuþotu og voru samningar við Fokkerflugvéla- verksmiðjurnar undirritaðir í j Amsterdam þann 3. júlí. Hin nýja vél kostar án hreyfla 32 milljónir króna. Flugfélagið mun sjálft leggja til hreyflana, sem munu kosta 8 milljónir og varaliiutir kosta um 8 jnilljónir þannig að lieildarverð flugvélárinnar verður 48 milljónir króna. Hin nýja flug- vél verður afhent flugfélaginu í síðari hluta apríl 1965. Það var Örn Ó. Johnson, sem undirritaði samninginn fyrir hönd Flugfélags íslands, en H. C. van Meerten, forstjóri fyrir hönd Fok- ker flugvélaverksmiðjanna. Er á- ætlað, að hin nýja vél verði tekin í notkun þegar sumaráætlunin 1965 gengur í gildi. Jafnframt var samið um að Flugfélag íslands hefði forkaupsrétt að flugvél, sem afgreidd yrði í apríl 1966. Hafa forráðamenn Flugfélagsins hugs- að sér að innanlandsflugið breyt- ist á næstu 3-4 árum þannig að þessi flugvélategund taki við. — Ekki er ákveðið með 3. vélina eins og málin standa í dag og mun það væntanlega að nokkru vera undir Færeyjafluginu komið. Ef miðað er við þann farþegafjölda, sem hin nýja flugvél tekur og flughraða hennar þá eru afköst hennar jafn mikil og þriggja Dakota-véla. Fokker Friendship, sem tekur [ 48 farþega, er tveggja hreyfla skrúfuþota, og eru hreyflarnir af gerðinni Rolls-Royce Dart 514, sem er sama gerð og í Viscount Flugfélagsins, en nokkru aflmeiri. Flugvélin er búin aflþrýstiútbún- aði í farþegaklefa og gerir það flug með vélinni mun þægilegra. Flughraði vélarinnar er 435 km á klukkustund og styttist því flug- tíminn á leiðum innanlands að I miklum mun. Til dæmis tekur ekki nema 52 mínútur að ferðast milli Reykjavíkur og Akureyrar og er þá tekinn með tíminn frá því að vélin rennur af stað frá flugstöð í Reykjavík og þar tif hún stanzar við flugstöð á Akuréyri. Á sama hátt verður ferðathninn milli Reykjavíkur og Egilsstaða 1 klst og 13 mínútur, milli Reykjavíkur Framhald á siðu 4 komið var á land eftir sömu viku í fyrra og ber þess þó að gæta, að allt það magn, sem vciddist í síð- ustu viku, er ekki komið á skýrslu hjá Fiskifélaginu, þar eð löndunar arbið er gífurleg á Austurlands- höfnum. Veiðiveður var ágætt í sl. viku að undanskildum tveim dög- um. í vikunni var aðalveiðisvæðið á svæðunum frá Glettingarnes- grunni að Gerpisflaki, þ. e. Seyð- isfjarðar- og Norðfjarðardýpi, svo og á Héraðsflóadýpi, að því er segir í skýrslu Fiskifélags íslands. Segir í skýrslu félagsins, að lö'nd unarerfiðleikar séu miklir fyrir austan og heldur skýrslan síðan á- fram: Mörg skipin hafa af þessum sök- um siglt til Siglufjarðar og Eyja- fjarðarhafna og landað þar. Nokk- ur skip eru einnig í síldarflutn- 17 grunaóir um ölvun við akstur jtveyKjavík, 6. júlí — KG UM HELGINA eða síðan á föslu- dagskvöld og til jafniengdar á sunnudag voru 17 menn teknir í Reykjavík grunaðir um ölvun við akstur og er það nokkuð há tala. Einn þessara manna stal bíl í Bólstaðahlíð .Var þjófnaðurinn kærður og fannst bíllinn skömmu síðar niður við Röðul og maður- .nn ölvaður undir stýri. Þá var á laugardag ekið á ljósa staur við Skúla.org og losnaði staurinn upp. Fjórir voru í bíln- um og ætlaði annar en bifreiða- stjórinn að taka á sig ákeyrsluna. Við yf.rheyrslu bar þó farþegun- um ekki saman og játaði hinn rétti ökumaður, sem var ölvaður á sig ákeyrsluna. ingum að austan til norðurlands- hafna. Söltun var leyfð í sl. viku og hafa nokkrar söltunarstöðvar hafið söltun. Landaður afli sl. viku var 265,- 754 mál og tn. og var þá heildar- magn á landi komið á miðnætti laugardaginn 4. júlí orðið 866.115 mál og tunnur en var í lok sömu Framhald á síðu 4 Viðræður um S.-Rhodesíu LQNDON og SALISBURG, 6. júlí, (NTB-Reuter). Nokkrir síiiórnarleiðtogar frá sam veldisríkjunum, sem staddir eru i London til að sitja hinn árlega ráðherrafund. samveldr.<jlandauna, héldu einkafund í dag lií að móta sameiginlega afstöðu, m.a. iil Suð ur-Rliodesíumálsins. Allar skuldir gerðarupp Reykjavík, 6. júlí - KG SAMKVÆMT upplýsingum frá Vilhjálmi Lúðvíkssyni lög fræðingi Landsbanka íslands hefur Sigurbjörn Eiríksson veitingamaður, nú gert upp allar skuldir sínar við bank- ann. Lauk hann við að gera skuldina upp siðastliðinn laug ardag og mun upphæðin með vöxtum og kostnaði hafa num- ið um 2.3 miiljónum króna. harogt -- MWWWMMWMMWMMW Réöist a unnustuna Reykjavík, 6. júlí, KG — HKG. AÐFARARNÓTT föstud. gerðust þeir atburðir á Raufarhöfn, að missætti kom upp á milli kær ustupars, sem þar var í síldar- vinnu. Maðurinn réðist að unn- ustu sinni, er deilan harðnaði, en hún kallaði á hjálp og klöngraðist út um gluggann á íbúð þeirra hjónaleysa, — en maður, sem býr í sama húsi, kom henni til hjálp ar og tók á móti henni, — þannig að hún meiddist ekkert á þessu ferðalagi. Maðurinn var tekinn höndum af lögreglunni á Húsavik daginn eft- ir, — á laugardag, — en engin lögregla var til staðar á Raufar- höfn til að skifta sér af honum þarna um nóttina. Maðurinn var svo fluttur til Reykjavíkur, þar sem hann mun í gæzlu. Pilturinn og stúlkan, sem hér um ræðir, eru bæði 17 árá og bæði úr Reykjavík. Stúikan vinn- ur á síldarplani á Raufarh ifn. en pilturinn var nýkominn at.sunn- an. Stúlkan varð ekki fyrir iaikium áverkum, en pilturinn mun i kki að öllu leyti heill á geðsmu iuf.1. Kona fyrir bíl á Vífilstaðavegi Reykjavík, 6. júlí, KG. KLUKKAN 17,35 í dag varð'það slys á Vífisstaðavegi, að. kona sem var að stíga út úr Vífiissíaíavagn inum, varð fyrir bíl, sem kom ofan veginn. Skarst konan á höfðii og var fhjltt á SiysEvar i íofuna í Reykjavík.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.