Alþýðublaðið - 07.07.1964, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 07.07.1964, Blaðsíða 6
á f rímerkjum MERKISMENN Á FRÍMERJUM. Tékkar eru um þessar mundir □ Þegar setið er undir stýri, á ekki að borða þungmeltan mat, liins vegar á að borða vel, það er að segja meðtaka mikið af eggja- hvítuefnum. Margir veitingastað- ir meðfram þýzkum hraðbrautum hafa tekið upp sérstaka matseðia fyrir bílstjóra og einnig hafa veitingahúsaeigendur í samein- ingu gefið út matreiðslubók með uppskriftum að 30 heitum og 12 köldum réttum, sérstaklega mið- uðum við bifreiðastjóra. Bókin er afhent ókeypis á fyrrnefndum veitingahúsum. að gefa út safn frímerkja til virð- ingar við ýmsa merkimenn löngu liðins tíma. Eitt merkið er að verðgildi 60 hellerar, (sem er tékknesk smámynt), og á því er mynd í svörtu og rauðu úr Jóns- messunæturdraumi Shakespeares . Annað merki, svart og græn., sýn- i ir tvær höggmyndir eftir Michel- ! angelo. Galileo er þarna á éinu merki ásamt stjömukíki sínum og fleiri tólum í bláum og svörtum lit. Loks er þarna mynd af Georg nokkrum Podeibrad, sem var kóngur í Bæheimi fyrir löngu síð- an og lagði fram tillögu um heims frið árið 1464. Hann er á svörtu og gulu merki sýndur við hlið ljónsins, þjóðartákns Tékkóslóva- kíu. sumarsólstöður séu rétt um garð grengnar og sumar- ney.i séu í algleymingi hér um slóðir, þá er kominn haustblær i ( ; rdrúmsIoftið í tízkuhúsum Parísar. Myndin er af sýningar- !f ú-' ~ með hausthatt, sem nefndur er St. Moritz. Hann er úr | r-.c: ’g hvítum minkafeldi brugðið yfir og undir höku. g 7. jií 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ Sama hvaðan gott kemur Við lifum á tímum aukinna mannréttinda og minnkandi kynþáttafordóma. Margt er til vitnis um það og eitt dæmi þess sjáum við hér að ofan. Nú er svo komið, að tízkusýningar stúlkur geta verið af öllum regnbogans litum. Þessar voru af ásettu ráði hafðar sem allra fjölbreytilegastar, en þær komu fram á góðgerðardans- leik mitylum, sem haldinn var í Líbanon hinn fjórða þessa mánaðar. Eins og sjá má af myndinni, voru siúlkurnar hlaðnar skartgripum, heildar verðgildi þeirra var sem svar aði nálægt kostnaðarverði tveggja Hallgrímskirkna. Stúlkurnar eru talið frá vin- siri júgóslavnesk, suðuramer- ísk, afrísk, asísk og taliitísk. LYF SEM UM40TIL50ÁR Annað slagið cru uppi miklar umræður um yngingarlyf. Sóda- blöð hormónainngj. endurnýjun vefja er einnig nefnt. í Sovétríkj- unum hefur nýtt efni skotið upp kollinum. Það er nefnt NRV og mun vera unnið úr olíu. Frásagnir af yngingarhæfileikum þessa efn- is hafa vakið mikla athygli eystra. NRV var í fyrstu notað með góðum árangri sem vaxtahvati í landbúnaði. Á sameiginlegri ráðstefnu Sov- étríkjanna um efnið NRV, hinni annarri í röðinni, komu fram stór merkilegar upplýsingar um efnið. Á henni kom meðal annars fram, að efnið hefur mikla hæfileika til að endurnýja líkamshluta, sem hafa orðið fyrir barðinu á geisl- unarsjúkdómum. Þetta kom í ljós við tilraunir með dýr. Eldissér- fræðingar gáfu upplýsingar um aukinn arð nautgripa eftir að þeir höfðu fengið NRV-meðhöndlun, og einnig voru gefnar skýrslur um livernig NRV, ásamt öðrum lyfjum s*öðvaði krabbameinsvöxt og út- rýmdi honum síðan. Lífeðlisfræð- ingar höfðu rannsakað áhrif NRV á vöðvaþreytu. Menn skyldu ætla. að. fyrir dyr- um stæðu margra ára rannsóknir og þúsundir tilrauna áður en vís- indamenn þora að fara að gera tilraunir á mönnum með NRV. En í smábæ einum í Stavropolhéraði hafa menn látið öll vís ndi lönd og leið, og tekið að gera tilraunir á sjálfum sér ótilkvaddir og án nokkurs leyfis eða eftirlits frá læknum. Á síðustu mánuðum hefur D. Guseinoff, sem er meðlimur vís- indaakademíunnar, veitt viðtöku mörgum .vægast sagt undarlegum bréfum. Hér eru glefsur úr þeim- — Herra x er 65 ára gamall. Efti.r að hafa notað NRV tók grátt hár hans að dökkna, skallinn minnkaði og augnabrúnir dökkn-: Framh. á bls. 13 NÝJUNGILEIKHUSMÁLUM ERLENDIR gestir í London | geta nú gengið inn í leikhús þar í heimsborg og horft á ensk leik- í rit. Þetta hafa þeir reyndar get- að um áratuga og alda skeið, en nú er svo komið, að þeir geta jafn ! framt hlustað á talanda leikrit- anna á tungu feðra sinna, að j minnsta kosti, ef þeir hafa talað I frönsku, þýzku, arabísku, spænsku I eða ítölsku. | Við Westminsterleikhúsið hefur jverið komið upp tækjum, sem snara texta leikritanna jafnóðum á einhverja nefndra tungna og raddirnar í þessi tæki leggja til góðir leikarar frá hverju þessara landa. Þegar leikhúsgesturinn tek- ur sér sæti er honum afhent lítið transistorviðtæki og því getur hann síðan valið þá bylgjulengd, sem hann óskar sér, eftir því á hvaða máli hann vill heyra leikritið, Þessir áhorfendur sitja í sérstakrl stúkú í afturhluta áhorfendasalar- ins og fylgjast með leikritinu á sviðinu eins og aðrir áhorfendur. Auk nefndra tungna er hægt, með því að biðja sérstaklega um það; að fá að heyra Icikritln á hol- lenzku, finnsku, japönsku, norsku og portúgölsku.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.