Alþýðublaðið - 07.07.1964, Side 3
WWMMWWWWWWWWWII
Lygafrétt um
skipskaða
við Grænland
NEW YORK, 6. júlí
(NTB-Reuter)
Dularfullt neyðarkall frá
brezku vöruflutningaskipi,
sem heyrðist bæði í Bret-
landi og Bandaríkjunum í
dag og- var á þá lund, að
skipið væri að því komið að
sökkva eftir að hafa rekizt
á ísjaka, virðist vera upp-
spuni.
Neyðarkallið heyrðist síð-
degfs í dag og virtist koma
frá brezka vöruflu'ningaskip
inu „Baltic Star“, sem er
1.571 brúttólest. Sagt var, að
áhöfnin væri farin í bátana
og að skipið hefði sokkið á
skammri stundu.
Skipið var sagt sta't ein-
hvers staðar milli Græn-
lands og Labrador.
Útgerðarfyrirtæki það í
London, sem á „Baitic S'ar“,
skýröi hins vegar svo frá að
skipið væri í höfn. Banda-
ríska strandgæzlan rahnsak
ar því, hvort hér geti verið
um skipið „Baltic Swift“ frá
sama fyrirtæki að ræða.
„Baltic Swift“ fór frá Mon-
treal á laugardaginn áleiðis
til Skotlands ,en í ljós hefur
komið, að óhugsandi sé að
skipið geti verið á þeim slóð
um þar sem sagt var að hið
nauðstadda skip væri.
tWWWWWWIWWWWWWWWM
MOSKVA, 6. júií
(NTB-Reu'.er).
Forsætisráðherra Rúmeníu, Ghe-
orghe Maurer, kom í dag til Mosk-
vu ásamt fjölmennri sendinefnd
rúmenska kommúnistaflokksins.
Þetta er önnur Moskvu-heimsókn
rúmenskra kommúnista á tveim
mánuðum, og segir fréttas ofan
Tass að hér sé um vináttuheimsókn
að ræða.
Tshombe myndar
stiórn í Kongó
Georg Grivas
hótar stríði
Georg Grivas hershöfðingi, sem
stjórnaði baráttunni gegn Bretum
áður en Kýpur hlaut sjálfstæði,
lýsti því yfir í dag j ræðu til
grískra fulltrúa á Kýpurþingi í
Nikosíu, að ef allt annað brygðist
yrði að gripa til styrjaldar — og
í þeirri styrjöld mundu Grikkir
sigra.
Athygli vakti, að Grivas var
klæddur grískum hershöfðingja-
búningi sínum er hann gekk inn í
þingsalinn og í fylgd með honum
voru tveir lífverðir vopnaðir vél-
byssum í annarri hendi og skot-
hylkjum í hinni.
Grivas minndst ekki á forseta
Kýpur, Makarios erkibiskup, í
ræðu sinni á þinginu. Hann bað
Framh. á bls. 4
Málað á
rekavið
Reykjavík, 6. júlí, HKG.
SÓLVEIG Eggerz Pétursdóttir
sýnir um 30 trémyndir á kaffi
húsinu Mokka þessa dagana.
Myndirnar eru allar málaðar
með olíulitum á tré, og segist
frúin hafa tint viðinn í fjörum.
Myndirnar eru sérkennilegar
og skemmtilegar.
Frú Sólveig segist allt frá
barnæsku hafa haft gaman af
að sjá myndir út úr 'rédrumb-
um, sem borizt hafa víða vegu
og veðrast í vindi og vatni. í
haust segist hún hafa lent í
bílslysi og læknirinn hafi ráð
lagt henni að taka róandi lyf.
En upp úr þessu fór hún að
mála á rekavið og „það er
miklu be ra en nokkrar pillur“
sagði málarinn á fundi með
blaðamönnum í gær.
Myndirnar á Mokka eru allar
málaðar á þessum vetri, — en
frú Sólveig segir, að hún muni
halda áfram að mála á tré, á
meðan hún rekst á nokkra
spýtu.
LeopoldviIIe, 6.' júlí
(NTB-Reuter)
KASAVUBU Kongóforseti fól í
dag Moise Tsliombe fv. forseta í
Katanga að mynda bráðabirgða-
stjórn. Liðnir eru tíu dagar síðan
Tshombe sneri aftur til Kongó úr
útlegð sinni.
Tssombe lýsti því yfir í gær, að
liann ætti að geta myndað stjórn
á einum sólarhring. En hann verð
ur ekki lengi í embætti forsætis-
ráðherra. í fyrsta lagi eftir sex
mánuði og í siðasta lagi eftir níu
mánuði verða haldnar nýjar kosní
ingar samkvæmt nýrri stjórnar-
skrá, sem þessa dagana er borin
undir þjóðaratkvæði.
Kunnugir segja, að Kasavubu
muni áreiðanlega fallast á ráð-
herralista Tshombe, enda hefði
Kasavubu ekki falið Tshombe
stjórnarmyndun ef hann nyti ekki
nauðsynlegs stuðnings hinna ýmsu
stjóx-nmálaflokka.
Sjálfur hefur Tshombe rætt við
flesta helztu stjórnmálamenn í
Leopoldville siðan hann kom úr út-
legðinni. Hann hefur bent á sig
sem þann mann, er auðveldast ætti
með að sameina hin ýmsu flokks
brot til starfa í þágu landsins. —
Hann sagði á blaðamannafundi í
dag, að hann væri bjartsýnn á horf
urnar á stuðningi hinnar svoköll-
uðu Þjóðfrelsisnefndar, sem Cy-
rille Adoula fráfarandi forsæt-
isráðherra, hefur sakað um undir-
búning uppreisnar.
Sovézk tillaga um gæzlu-
lið Sameinuðu þjóðanna
TOKYO, 6. júlí
(NTB-Reuter)
Sovétríkin lögðu til í dag í
orðsendingu til japönsku stjórn
arinnar, að komið yrði á fót
Sþ-gæzluliði, sem gera ætti Sþ
kleift að gegna hlutverki sínu
með meiri árangri, að því er
fréttastofan Jiji hermdi. Svip
aðar orðsendingar hafa verið
sendar öllum aðildarríkjum Sþ.
Sovézki sendifulltrúinn, sem
afhenti utanríkisráðherra Jap-
ana orðsendinguna, sagði að
bezt væri að þau fimm ríki sem
eiga fastafulltrúa í Öryggisráð
inu (Bandaríkin, Bretland,
Frakkland, Jtína, (Formósa) og
Sovétríkin) tækju ekki þátt í
störfum gæzluliðsins.
Tilkynnt var í brezku utan-
ríkisráðuneytinu í dag, að ekk
ert væri viiað um þessa tillögu
"Rússa. Formælendur sendiráða
Bretlands og Bandaríkjanna i
Moskvu segjast ekkert vita um
tillöguna. Japanska sendiráðið
kvaðst ekkert hafa frétt um mál
ið fyrr en Jiji-fréttin barst frá
Tokyo.
Glæsilegt safn
hús á Selfossi
Reykjavík, 6. júlí - KG
SAFNHÚS Árnessýslu var tekið í
notkun við hátíðlega athöfn síðast
liðinn sunnudag að viðstöddum for
seta íslands. í hinu nýja safnhúsi
verður byggðasafn héraðsins,
skjala- og héraðsbókasafn svo og
málverkasafn það sem frú Bjarn-
veig Bjarnadóttir og synir gáfu
Árnessýslu.
Fyrst var farið að hreyfa máli
þessu í sýslunefndinni fyrir nokkr
um árum og árið 1952 var kosin
nefnd til þess að unciirbúa málið
og skömmu síðar byrjaði Skúli
Helgason fræðimaður að safna
munum fyrir byggðasafnið.
Byggingarframkvæmdir hófust
svo haustið 1961 og teiknaði Sigur-
jón Sveinsson arkitekt húsið en
byggingarmeistari var Kristinn
Vigfússon og hefur hann náð mjög
góðum árangri því að liúsið kost-
ar ekki nema 1000 krónur á rúm-
metra.
Húsið er 246 fermetrar á tveim
hæðum. Á neðri hæðinni er
Skjala- og bókasafnið en á þeirri
efri byggðasafnið, sem Gísli Gests-
son setti upp í samráði við Skúla
Helgason og Kristján Eldjárr}. í
sérstakri stofu og á ganginum er
svo málverkasafnið.
ALÞÝDUBLAÐIO
7. júlí 1964 3